Forsíða Fréttir Fréttir 2010 Frítt í bíó á Ísafirði
Frítt í bíó á Ísafirði Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Föstudagur, 10. Desember 2010

born_ninadoggÍ tilefni Evrópuárs gegn fátækt og félagslegri einangrun hefur stýrihópur Evrópuársins í samstarfi við Rauða Kross deild Ísafjarðar og Vesturport ákveðið að sýna myndina Börn eftir Ragnar Bragason í Alþýðuhúsinu á Ísafirði þann 11. desember.

Í myndinni er fjallað um nokkra einstaklinga sem allir glíma við tilvistarvanda. Karítas, einstæð móðir fjögurra barna, á erfitt með að láta enda ná saman og er á barmi örvæntingar. Guðmundur elsti sonur hennar hefur orðið fyrir einelti í skóla og er vinafár. Maríno, nágranni Karítasar, er misþroska geðklofasjúklingur sem býr hjá móður sinni. Hann hættir að taka geðlyfin sín þegar hann kemst að því að mamma hans fer á bak við hann með því að hitta ókunnan mann á laun. Myndin hefur hlotið afburðadóma. Nína Dögg Filippusdóttir, sem fer með eitt aðalhlutverka í myndinni, er sendiherra Evrópuársins 2010 á Íslandi.

Rauða Kross bandið mun hita upp fyrir sýninguna og fram fer stutt kynning á starfi Rauða Krossins á svæðinu, meðal annars Heimsóknarvini. Heimsóknavinir er eitt af áhersluverkefnum Rauða kross Íslands en þeir eru sjálfboðaliðar sem vinna gegn félagslegri einangrun með því að heimsækja þá sem þess óska. Heimsóknir eru að jafnaði einu sinni í viku og eru sjálfboðaliðar, sem og gestgjafar, af báðum kynjum og á öllum aldri.