|
Miðvikudagur, 08. Desember 2010 |
Heyrnarhjálp og hópur erlendra kvenna sem stendur að veitingahúsinu Veröldin okkar – Mömmueldhús á Akranesi sameinuðust í áhugaverðu verkefni á dögunum þar sem fólk frá ólíkum menningarheimum fékk tækifæri til að hittast og deila reynslu, skemmtun og fræðslu sín á milli. Verkefnið kallaðist Við byggjum brýr og er hluti af Evrópuári gegn fátækt og félagslegri einangrun. „Þarna sameinast tveir hópar sem eiga það sameiginlegt að þurfa að kljást við ákveðna hindrun í samskiptum,“ segir Málfríður Gunnarsdóttir hjá Heyrnarhjálp. Hugmyndin að verkefninu spratt frá því að hópur frá Heyrnarhjálp heimsótti opnun Mömmueldhússins og samdi þeim afar vel. „Það var svo gott andrúmsloft og jákvæðni gagnvart því að tengjast öðru fólki. Þá fórum við að velta því fyrir okkur að í raun eiga heyrnarskertir og þeir sem flytja til ókunns lands það sameiginlegt að eiga erfitt með að tjá sig og skilja aðra. Báðir hóparnir hafa þó svo margt áhugavert fram að færa og því er sérlega gaman að leiða þá saman!"
Frá Rakse Sharki til ljóðaupplesturs á táknmáli Bæði Heyrnarhjálp og Mömmueldhúsið hafa hlotið verkefnastyrki frá Evrópuári 2010 - gegn fátækt og félagslegri einangrun og upp úr því spratt þetta þriðja verkefni. Á námskeiðinu verða kynningar á Palestínu, Póllandi og Íslandi, námskeið í matargerð þeirra landa, auk skemmtiatriða á borð við danskennslu í austurlenskum hópdansi (Rakse Sharki), magadans og ljóðaupplesturs á táknmáli.
Þátttakendur í námskeiðinu taka virkan þátt í því og vinna í tengslum við það er öll í ólaunuð. Aðgengi er miðað við þarfir heyrnarskertra, en þar má finna öll helstu hjálpartæki sem heyrnarskertir notast við í daglegu lífi: Tónmöskva, FM búnað, rittúlk ásamt tveimur skjávörpum og táknmálstúlk. |