Forsíða Fréttir Fréttir 2010 Ljósmyndasýning á Evrópuári
Ljósmyndasýning á Evrópuári Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Laugardagur, 04. Desember 2010

artproject_hopLaugardaginn 4. desember opnaði ljósmyndasýning í húsnæði Samhjálpar, en það eru listnemar úr LHÍ sem setja upp sýninguna í samstarfi við fólk sem upplifir fátækt eða félagslega einangrun. Verkefnið er samstarfsverkefni Listaháskóla Íslands og Evrópuárs gegn fátækt og félagslegri einangrun en auk þeirra komu Hlutverkasetur, Hjálparstofnun kirkjunnar og Kvennasmiðjan að framkvæmd verkefnisins. Sýningin stendur fram yfir áramót og eru allir velkomnir.

„Verkefnið er nokkuð óvenjulegt, en tilgangurinn var að leiða saman ólíka hópa og nota listformið til að tjá raunveruleika þeirra sem kljást við fátækt eða félagslega einangrun. Verkefnið er í raun samevrópskt, en svipuðum verkefnum var hrundið af stað í öllum löndum Evrópusambandsins og í Noregi í tilefni af Evrópuári gegn fátækt og félagslegri einangrun,“ segir Linda Rós Alfreðsdóttir hjá félags- og tryggingamálaráðuneytinu sem hefur umsjón með Evrópuárinu á Íslandi.
artproject
Auk sýningar á verkunum verða fimm þeirra gefin út á póstkortum. „Alls gefum við út fimm tegundir af póstkortum en þeim verður dreift um land allt og er ætlað að vekja athygli á fátækt og félagslegri einangrun. Vonandi verða þau kveikjan að fleiri úrlausnum fyrir fólk sem býr við þann vanda.“

„Ég held að allir þeir sem hafa komið að verkinu hafi haft gaman að því, og það hefur sannarlega víkkað sjóndeildarhring allra. Hver nemandi starfaði með einstaklingi sem hefur reynslu af fátækt eða félagslegri einangrun og voru verkefnin því unnin í pörum. Ég hvet alla til að koma og skoða sýninguna,“ segir Eric Wolf sem kenndi á námskeiðinu við Listaháskóla Íslands.

gudbjartur