Sveinn Áki Lúðvíksson, formaður Íþróttasambands fatlaðra, tekur við Barnamenningarverðlaunum Velferðarsjóðs barna árið 2010 fyrir öflugt starf í þágu ungmenna. Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, afhenti verðlaunin. Meðal þeirra sem fram komu á verðlaunaafhendingunni í Iðnó í dag voru börn úr leikskólanum Urðarhól í Kópavogi. Myndir: Hreinn Magnússon
Sveinn Áki Lúðvíksson, formaður Íþróttasambands fatlaðra, fær Barnamenningarverðlaun Velferðarsjóðs barna árið 2010 fyrir öflugt starf í þágu ungmenna. Verðlaunaféð, tvær milljónir króna, verður nýtt til að efla enn frekar starfsemi ÍF. Samtals nema styrkirnir sem afhentir voru úr Velferðarsjóði barna í dag um sjö milljónum króna.
Þetta er í sjötta sinn sem Barnamenningarverðlaunum Velferðarsjóðs barna er úthlutað. Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, afhenti Sveini Áka Lúðvíkssyni, formanni Íþróttasambands fatlaðra, verðlaunin við hátíðlega athöfn í Iðnó í dag; verðlaunagrip úr silfri eftir Dýrfinnu Torfadóttur gullsmið og ávísun að upphæð tvær milljónir króna.
Við sama tækifæri var Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur afhentur styrkur að upphæð 1,5 milljónir króna, Hjálparstarf kirkjunnar fékk styrk að upphæð ein milljón króna og Fjölsmiðjan fékk styrk að upphæð ½ milljón króna til tækjakaupa. Dyngjan, áfangaheimili fyrir konur og börn, fékk styrk að upphæð ein milljón króna, verkefnið Sjáðu hæfa barnið fékk 200 þúsund króna styrk og Líf og framtíð fékk 150 þúsund króna styrk.
Sveinn Áki Lúðvíksson, formaður Íþróttasambands fatlaðra, tekur við Barnamenningarverðlaunum Velferðarsjóðs barna árið 2010
Yfir 600 milljónum króna úthlutað á 10 árum Frá því að Íslensk erfðagreining stofnaði Velferðarsjóð barna fyrir tíu árum hefur verið úthlutað úr honum yfir 600 milljónum króna til margvíslegra verkefna en fyrirtækið var í fararbroddi hérlendis hvað varðar stofnun slíks styrktarsjóðs. Úthlutað er úr sjóðnum 6-8 sinnum á ári.
Um Velferðarsjóð barna Stofnfjármagn Velferðarsjóðs barna, rúmur hálfur milljarður króna, kom frá Íslenskri erfðagreiningu. Markmið sjóðsins er að hlúa að velferð og hagsmunamálum barna á Íslandi, m.a. með fjárframlögum til heilbrigðis-, velferðar- og menntamála og samtaka og félaga á Íslandi sem hafa velferð og lækningar barna að megintilgangi. Markmiðum með stofnun sjóðsins skal náð með beinum fjárframlögum og styrkjum, svo sem nánar greinir í skipulagsskrá Velferðarsjóðs barna.
Í stjórn Velferðarsjóðs barna sitja Kári Stefánsson, forstjóri og fulltrúi Íslenskrar erfðagreiningar, Ingibjörg Pálmadóttir, fyrrverandi heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, og Valgerður Ólafsdóttir sem er framkvæmdastjóri sjóðsins.
Fagráð sjóðsins, sem m.a. kemur með tillögur til sjóðsstjórnar um úthlutun styrkja, skipa Valgerður Ólafsdóttir, Þórólfur Þórlindsson, Guðrún Helgadóttir, Elín Þorgeirsdóttir, Þórkatla Aðalsteinsdóttir, Grétar H. Gunnarsson og Rósa Guðbjartsdóttir. Sjóðurinn er til húsa að Sturlugötu 8 í Reykjavík.
Sveinn Áki Lúðvíksson, formaður Íþróttasambands fatlaðra, fær Barnamenningarverðlaun Velferðarsjóðs barna árið 2010 fyrir öflugt starf í þágu ungmenna. Verðlaunaféð, tvær milljónir króna, verður nýtt til að efla enn frekar starfsemi ÍF. Samtals nema styrkirnir sem afhentir voru úr Velferðarsjóði barna í dag um sjö milljónum króna.
Þetta er í sjötta sinn sem Barnamenningarverðlaunum Velferðarsjóðs barna er úthlutað. Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, afhenti Sveini Áka Lúðvíkssyni, formanni Íþróttasambands fatlaðra, verðlaunin við hátíðlega athöfn í Iðnó í dag; verðlaunagrip úr silfri eftir Dýrfinnu Torfadóttur gullsmið og ávísun að upphæð tvær milljónir króna.
Við sama tækifæri var Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur afhentur styrkur að upphæð 1,5 milljónir króna, Hjálparstarf kirkjunnar fékk styrk að upphæð ein milljón króna og Fjölsmiðjan fékk styrk að upphæð ½ milljón króna til tækjakaupa. Dyngjan, áfangaheimili fyrir konur og börn, fékk styrk að upphæð ein milljón króna, verkefnið Sjáðu hæfa barnið fékk 200 þúsund króna styrk og Líf og framtíð fékk 150 þúsund króna styrk.
Yfir 600 milljónum króna úthlutað á 10 árum Frá því að Íslensk erfðagreining stofnaði Velferðarsjóð barna fyrir tíu árum hefur verið úthlutað úr honum yfir 600 milljónum króna til margvíslegra verkefna en fyrirtækið var í fararbroddi hérlendis hvað varðar stofnun slíks styrktarsjóðs. Úthlutað er úr sjóðnum 6-8 sinnum á ári.
Um Velferðarsjóð barna Stofnfjármagn Velferðarsjóðs barna, rúmur hálfur milljarður króna, kom frá Íslenskri erfðagreiningu. Markmið sjóðsins er að hlúa að velferð og hagsmunamálum barna á Íslandi, m.a. með fjárframlögum til heilbrigðis-, velferðar- og menntamála og samtaka og félaga á Íslandi sem hafa velferð og lækningar barna að megintilgangi. Markmiðum með stofnun sjóðsins skal náð með beinum fjárframlögum og styrkjum, svo sem nánar greinir í skipulagsskrá Velferðarsjóðs barna.
Í stjórn Velferðarsjóðs barna sitja Kári Stefánsson, forstjóri og fulltrúi Íslenskrar erfðagreiningar, Ingibjörg Pálmadóttir, fyrrverandi heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, og Valgerður Ólafsdóttir sem er framkvæmdastjóri sjóðsins.
Fagráð sjóðsins, sem m.a. kemur með tillögur til sjóðsstjórnar um úthlutun styrkja, skipa Valgerður Ólafsdóttir, Þórólfur Þórlindsson, Guðrún Helgadóttir, Elín Þorgeirsdóttir, Þórkatla Aðalsteinsdóttir, Grétar H. Gunnarsson og Rósa Guðbjartsdóttir. Sjóðurinn er til húsa að Sturlugötu 8 í Reykjavík. |