|
Athygli gefur út veglegt Akureyrarblað |
|
|
|
Fimmtudagur, 02. Desember 2010 |
|
Áskrifendur Morgunblaðsins um allt land og öll heimili á Akureyri fengu í dag blaðið Akureyri Ísem Athygli gefur út í samvinnu við Kaupmannafélag Akureyrar og Akureyrarstofu. Þetta er í sjöunda sinn sem Athygli stendur að slíkri útgáfu á aðventunni.
Akureyrarblaðið er stútfullt af efni og víða leitað fanga hjá fólki og fyrirtækjum í höfuðstað Norðurlands. Sem fyrr er fjallað vítt og breitt um málefni bæjarins frá ýmsum sjónarhornum: verslun og þjónustu, iðnað, menningarmál, afþreyingu og fleira.
Jóhann Ólafur Halldórsson, hjá Athygli á Akureyri, ritstýrði blaðinu og skrifaði það að stórum hluta. Hann naut aðstoðar fleiri blaðamanna, bæði starfsmanna Athygli og annarra.
Hönnun og umbrot annaðist Akureyringurinn Gulli, Guðmundur Þorsteinsson, hjá Athygli í Reykjavík. Ingibjörg Ágústsdóttir annaðist auglýsingasöluna og Landsprent sá um prentvinnsluna.
|
|
Fyrstu eintök Akureyrarblaðs renna úr vélum Landsprents að kveldi fullveldisdagsins 1. desember. Á vettvangi voru Valþór, Atli Rúnar og Gulli frá Athygli og með þeim (þriðji frá vinstri) er Stefán Stefánsson prentari.
Myndi Helgi Hannes Atlason
|
|