| Maður vikunnar og ófriður við Reykjavíkurhöfn |
|
|
| Miðvikudagur, 16. Desember 2009 |
|
Binni í Vinnslustöðinni í Eyjum er maður dagsins í DV í dag vegna humars, sem VSV gaf hjálparsamtökum á höfuðborgarsvæðinu í vikunni og vegna myndarlegs jólabónuss sem starfsmenn VSV hreppa fyrir hátíðar. Starfsmenn Faxaflóahafna fengu yfir sig holskeflu fyrirspurna í kjölfar auglýsinga um verbúðir til leigu við Reykjavíkurhöfn. Í öllum tilvikum kom Athygli ehf. að því að kveikja eldana ... Vinnslustöðin í Eyjum var nánast á hausnum fyrir um áratug og endurreisnarstarfið kostaði svita og tár, þar á meðal fjöldauppsagnir starfsfólks. Sigurgeiri Brynjari Kristgeirssyni, Binna, framkvæmdastjóra fyrirtækisins, og öðrum í stjórnendateymi fyrirtækisins, tókst hins vegar að skapa stemningu meðal starfsfólks, sem endurráðið var, og í öllu samfélaginu í Eyjum , fyrir því að reisa félagið við og styrkja stoðir þess til frambúðar. Skemmst er frá að segja að það hefur tekist með slíkum ágætum að verðskuldaða athygli vekur í öðrum héruðum. VSV er komið í hóp öflugustu fyrirtækja landsins og fjölgar starfsfólki nú í krepputíðinni á sama tíma og fréttir af samdrætti og uppsögnum einkenna því miður fréttir úr atvinnulífi landsmanna.
Órói við Reykjavíkurhöfn!Á laugardaginn var birtust auglýsingar frá Faxaflóahöfnum í Fréttablaðinu og Morgunblaðinu þar sem lýst var eftir leigjendum í verbúðir við Grandagarð og Geirsgötu í Reykjavík. Athygli ehf. sá um gerð auglýsinganna og framkvæmd málsins. Viðbrögðin urðu firnaskörp, mun meiri en ráðamenn Faxaflóahafna bjuggust við og þorðu að vona:
|