Forsíða Fréttir Fréttir 2009 Skoskur sigur í hugmyndasamkeppni fagfólks um Gömlu höfnina í Reykjavík
Skoskur sigur í hugmyndasamkeppni fagfólks um Gömlu höfnina í Reykjavík Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Föstudagur, 11. Desember 2009
Júlíus Vífill Ingvarsson, formaður skipulagsráðs og hafnarstjórnar og formaður dómnefndar óskar vinningshöfunum, Graeme Massie, Robin Sutherland til hamingju.  Myndir: Hreinn Magnússon
Júlíus Vífill Ingvarsson, formaður skipulagsráðs og hafnarstjórnar og formaður dómnefndar óskar vinningshöfunum, Graeme Massie, Robin Sutherland til hamingju. Myndir: Hreinn Magnússon
Arkitektastofa í Edinborg í Skotlandi, Graeme Massie Architects, hlaut fyrstu verðlaun í A-hluta hugmyndasamkeppni sem Faxaflóahafnir sf. efndu til vegna skipulags Gömlu hafnarinnar og Örfiriseyjar í Reykjavík. Samstarfsaðili hennar á Íslandi er ráðgjafarfyrirtækið Alta ehf. Úrslitin voru tilkynnt við athöfn í Víkinni sjóminjasafni nú síðdegis um leið og sigurlaunin voru afhent, 7,5 milljónir króna.

Höfundar tveggja tillagna deildu 2.-3. sæti og hlutu hvorir um sig tvær milljónir króna í verðlaun: annars vegar arkitektarnir Björn Ólafs og François Perrot,  hins vegar Þorsteinn Helgason, Gunnar Örn Sigurðsson, Páll Gunnlaugsson og Valdimar Harðarson arkitektar FAÍ hjá arkitektastofunni ASK arkitektum ehf. Viðurkenningu/innkaup fyrir athyglisverða tillögu hlaut Arkibúllan ehf., 500.000 krónur.

  • Verðlaunahafarnir, Graeme Massie, Robin Sutherland og samstarfsaðilar á Íslandi, Matthildur Kr. Elmarsdóttir, Hrafnkell Proppé og Árni Geirsson.
    Verðlaunahafarnir, Graeme Massie, Robin Sutherland og samstarfsaðilar á Íslandi, Matthildur Kr. Elmarsdóttir, Hrafnkell Proppé og Árni Geirsson.
    Samkeppnin var tvískipt. Alls barst 51 tillaga, þar af 12 tillögur í A-hlutann, sem var ætlaður hönnuðum og öðru fagfólki og undirbúin í samvinnu við Arkitektafélag Íslands. B-hlutinn var hins vegar opinn öllum án nokkurra skilyrða og þar bárust 39 tillögur. Heildarupphæð verðlauna var 14 milljónir króna, þar af 12 milljónir króna fyrir A-hluta samkeppninnar.

Átta tillögur hlutu verðlaun í B-hluta hugmyndasamkeppninnar, fjórar fengu 300.000 krónur og aðrar fjórar 200.000 krónur. Það kom aðstandendum samkeppninnar þægilega á óvart hve margir sýndu viðfangsefninu áhuga með því að senda inn tillögur um leiðir til að auðga mannlíf og efla hafnarsvæðið. Dæmi um hugmyndir er listaverk sem jafnframt gegnir hlutverki upplýsingamiðils fyrir almenning, fisk- og kjötmarkaður undur þaki á Miðbakka, graffítí-skreyting á útvöldum olíugeymum, leikvöllur með sjóræningjaskipi og sérstök lýsing á Miðbakka.

  • Allar tillögur verða til sýnis í Víkinni sjóminjasafni, Grandagarði 8, til 20. desember. Þar er opið alla virka daga kl. 11:00-17:00 og um helgar kl. 13:00-17:00.

 

fax0048
Verðlaunahafarnir í hugmyndasamkeppni Faxaflóahafna um Gömlu höfnina og Örfirisey.

Sundlaug á Ægisgarði
Dómnefnd segir að höfundum skosku verðlaunatillögunnar í A-hluta samkeppninnar hafi tekist að styrkja tengsl miðbæjarins og hafnarinnar og tileinka sér  meginatriði  framtíðarsýnar Faxaflóahafna sf., meðal annars með því að leggja til að umferð um miðbæinn verði færð út fyrir hafnarmynnið. Skýr skil eru á milli blandaðrar byggðar íbúðarhúsnæðis, athafna- og iðnaðarhúsnæðis og vettvangs menningar og viðskipta á svæðinu. Höfundarnir gera meðal annars ráð fyrir viðlegukanti fyrir skemmtiferðaskip, þjónustuhúsi fyrir ferðafólk og hóteli á nýjum stað í miðbænum, austan Tónlistar- og ráðstefnuhússins. Þeir gera og ráð fyrir sundlaug á Ægisgarði, í innhöfninni miðri, að Slippurinn verði áfram á sínum stað og olíubirgðastöðin sömuleiðis.

ver-l.till_1_grunnmynd ver-l.till_1_slippur
ver-l.till_1_sundlaug ver-l.till_1_yfirlit

Samkeppnin skilaði því sem til var stofnað
Markmið samkeppninnar var að kalla eftir fjölbreyttum og frumlegum hugmyndum um skipulag og nýtingu Gömlu hafnarinnar, svæði sem aldrei hefur verið gert af heildarskipulag.  Faxaflóahafnir vonuðust til þess að verðlaunatillögurnar gætu nýst í vinnu við gerð heildarskipulags fyrir höfnina, bæði aðalskipulags og deiliskipulags. Júlíus Vífill Ingvarsson, formaður dómnefndar, segir að þær vonir hafi ræst. Faxaflóahafnir séu nú með í höndum. metnaðarfullar tillögur sem vísað geti veginn í skipulagsmálum svæðisins til framtíðar.

Dómnefndin
Tilnefnd af Faxaflóahöfnum sf.

  • Júlíus Vífill Ingvarsson, formaður skipulagsráðs og stjórnar Faxaflóahafna, formaður dómnefndar.
  • Dagur B. Eggertsson, borgarfulltrúi og stjórnarmaður Faxaflóahafna.
  • Lena Helgadóttir, arkitekt FAÍ,
  • Gísli Gíslason, hafnarstjóri Faxaflóahafna.

Tilnefnd af Arkitektafélagi Íslands

  • Þorvaldur S. Þorvaldsson, arkitekt FAÍ.
  • Valdís Bjarnadóttir, arkitekt FAÍ.
  • Harpa Stefánsdóttir, arkitekt FAÍ.

Ritari dómnefndar var Ásdís Ingþórsdóttir, arkitekt FAÍ.

Ráðgjafar dómnefndar

  • Jórunn Ragnarsdóttir, arkitekt hjá Lederer+Ragnarsdottir+Oei, Stuttgart, Þýskalandi
  • Ólöf Örvarsdóttir, arkitekt og skipulagsstjóri í Reykjavík.
  • Vignir Albertsson, skipulagsfulltrúi Faxaflóahafna.
  • Ólafur Bjarnason, samgöngustjóri Reykjavíkurborgar