|
Svokallað kolefnisspor Reykjavíkur er 20-80 falt minna en annarra höfuðborga Norðurlanda og hitaveita sparar þjóðarbúinu um 40 milljarða króna á ári í gjaldeyri. Þetta kom fram á fundi um vistvæn hverfi og byggingar í Hafnarhúsinu í gær og var hann hluti af fundarröð með fagfólki, hagsmunaaðilum og öðrum áhugasömum um endurskoðun aðalskipulags Reykjavíkur.
Um 80 manns sóttu fundinn sem hófst með því að Júlíus Vífill Ingvarsson, formaður skipulagsráðs, kynnti áherslur í endurskoðun aðalskipulagsins 2010-2030 og kom m.a. inn á skynsamlega nýtingu lands, sjálfbærni og ábyrgð gagnvart komandi kynslóðum. Því næst fjallaði Björn Axelsson, umhverfisstjóri Reykjavíkur, um landnýtingu og verndun vatns, lands og lífríkis.
Harpa Stefánsdóttir arkitekt kynnti verkefnið Betri borgarbragur sem snýst um að líta á skiplagsmál í víðara samhengi. Markmið verkefnisins er m.a. að skilgreina hvað felst í hugtakinu „vistvænt og sjálfbært byggðaumhverfi".
Þrándur Ólafsson, verkfræðingur hjá Orkuveitu Reykjavíkur, flutti erindi um orkunýtingu. Hann kynnti samanburð á kolefnisspori Reykjavíkur og nokkurra annarra borga Norðurlanda; Helsinki, Kaupmannahafnar, Stokkhólms og Þrándheims í Noregi. Samanburðurinn byggist á hans eigin útreikningum og sýna þeir að kolefnisspor nágranna okkar, hvað varðar varmaorku og raforku, er 20 til 80 sinnum meira en Reykjavíkur. Jafnframt kom fram hjá Þrándi að hitaveitan spari þjóðarbúinu um fjörutíu milljarða króna á ári í gjaldeyri.
Kristín Þorleifsdóttir landslagsarkitekt fræddi fundargesti um umhverfisviðmið, vottunarkerfi fyrir bætt skipulag, bæði framkvæmd og eftirlit í þeim tilgangi að sjálfbær landnotkun fái aukið vægi.
Að lokum kynnti Björn Guðbrandsson arkitekt drög að stefnu um vistvæna byggð og fór yfir forsendur stefnumörkunar Reykjavíkurborgar varðandi vistvæna byggð. Fram kom hjá Birni að til athugunar væri að þróa hugmyndafræði fyrir vistvæn hverfi, m.a með því að skipuleggja ný hverfi með vistvænni blandaðri byggð og sömuleiðis með því að skipuleggja vistvæna blandaða byggð í eldri hverfum.
Að fyrirlestum loknum voru umræður og skoðanaskipti en fundarstjóri var Ólöf Örvarsdóttir skipulagsstjóri.
Næsti morgunverðarfundur verður 14. janúar kl.8:30 – 10:00 í Hafnarhúsinu og fjallar um umhverfi- og útivist. |