| Nýrri sendingu bóluefnis gegn inflúensunni A(H1N1) dreift til heilsugæslustöðva eftir helgi |
|
|
| Föstudagur, 11. Desember 2009 |
|
Ný sending bóluefnis gegn inflúensunni A(H1N1) berst heilsugæslustöðvum um land allt á mánudag og þriðjudag, 14. og 15. desember, og þá verður unnt að taka þráðinn upp að nýju og bólusetja fólk sem skráð hefur sig á biðlista.
Sóttvarnalæknir beinir því til heilsugæslustöðva að gefa skýrar upplýsingar á heimasíðum sínum, og við símsvörun á hverjum stað, um gang bólusetningarinnar og helstu tímasetningar. Þetta er afar mikilvægt því staða mála er mismunandi á heilsugæslustöðvunum, eins og eðlilegt er. Þannig verður unnt á sumum heilsugæslustöðvum að bólusetja fleiri núna í desember en eru þar á biðlista en á öðrum heilsugæslustöðvum dugar ný sending bóluefnis nú ekki til að bólusetja alla þá sem hafa skráð sig í bólusetningu. Í einhverjum tilvikum kemur því röðin ekki að fólki á biðlistum fyrr en í janúar. Mjög hefur dregið úr inflúensufaraldrinum hér á landi undanfarna daga og vikur. Þrír sjúklingar lágu í gær á Landspítala vegna veikinnar, þar af einn á gjörgæsludeild. Í 49. viku ársins (29. nóvember-7. desember) var greint 101 inflúensulíkt tilfelli. Að mati sóttvarnalæknis hafa um 60.000 manns sýkst af inflúensunni frá því að faraldurinn hófst í vor. Um 180 manns hafa verið lagðir inn á sjúkrahús með grun um inflúensu eða staðfesta inflúensu, langflestir á Landspítala eða um 130. |