Forsíða Fréttir Fréttir 2009 Rjóður fær afhent viðbótarhúsnæði til listmeðferðar
Rjóður fær afhent viðbótarhúsnæði til listmeðferðar Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Miðvikudagur, 09. Desember 2009
Ingibjörg Pálmadóttir opnar viðbótarhúsnæðið með dyggri hjálp.

Rjóður; hvíldar- og endurhæfingarheimili fyrir langveik börn, tók í dag formlega í notkun viðbótarhúsnæði til listmeðferðar. Það samanstendur af myndlistarherbergi, nuddherbergi og viðtalsherbergi og er gjöf frá Velferðarsjóði barna.

Listmeðferðaraðstaðan er kærkomin viðbót við það húsnæði sem heimilið hefur yfir að ráða hjá Landspítala–Kópavogi, í húsi nr. 7 við Kópavogsbraut 5-7, en það húsnæði afhenti Velferðarsjóður barna fullbúið fyrir um sex árum. Þar er rými fyrir átta langveik börn í einu í endurhæfingu og aðhlynningu en alls nýta um 50 fjölskyldur á landinu öllu sér þjónustu Rjóðurs, þó ekki samfellt.

rjod9707
Myndir: Hreinn Magnússon
Samstarfssamningur Velferðarsjóðs barna, heilbrigðisráðuneytisins og Landsspítala um hjúkrunarheimilið var undirritaður fyrir rúmum sex árum. Þar skuldbatt ríkið sig til að leggja til húsnæði og tryggja fé til reksturs heimilisins, sem áætlað er að kosti um 84 milljónir króna á ári. Frá því samningurinn var gerður hefur Velferðarsjóður barna staðið að ýmsum endurbótum á heimilinu og lagt fram alls um 110 milljónir króna til verkefnisins í heild sinni. Einnig hafa ýmiss samtök og fyrirtæki lagt því lið. 

Um Velferðarsjóð barna
Íslensk erfðagreining stofnaði Velferðarsjóð barna fyrir níu árum og er frumkvöðull hér á landi hvað varðar slíkan styrktarsjóð. Markmið sjóðsins er að hlúa að velferð og hagsmunamálum barna á Íslandi, m.a. með fjárframlögum til heilbrigðis-, velferðar- og menntamála og samtaka og félaga á Íslandi sem hafa velferð og lækningar barna að megintilgangi.

Í stjórn Velferðarsjóðs barna eru:  Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, Ingibjörg Pálmadóttir, fyrrverandi heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra og Valgerður Ólafsdóttir.