| Yfirlýsing frá KPMG |
|
|
| Mánudagur, 22. Desember 2008 |
|
Það mál sem er til umfjöllunar í fyrrnefndri fréttaskýringu varðar deilu milli aðila í einkahlutafélaginu FS-13 ehf. en snýr að takmörkuðu leyti að KPMG enda þótt blaðamaður túlki málsgögn með allt öðrum hætti og geri félagið að skálki málsins. Efnisatriðin sem snúa að KPMG eru eftirfarandi: Á umliðnu ári leitaði Árni B. Sigurðsson fjárfestir til KPMG og óskaði eftir aðstoð við að koma ákveðinni viðskiptahugmynd sinni í framkvæmd. Meðal annars fól hann félaginu að finna fjárfesta til samstarfs um rekstur viðarkurlsverksmiðju í Króatíu. Starfsmenn KPMG unnu í góðu samstarfi við Árna og samstarfsmenn hans að stofnun félags um reksturinn og frágang skjala þar að lútandi. Róbert Melax fjárfestir kom að félaginu fyrir atbeina KPMG með 50% hlut og eins og fram hefur komið lagði hann fram 1,8 milljónir evra til verkefnisins. Vanefndir urðu hins vegar á framlögum Árna B. Sigurðssonar sem varð til þess að samningar þeir, sem KPMG gerði milli aðila í FS-13, voru í uppnámi. Eftir að KPMG hafði án árangurs reynt að fá Árna til að standa við sinn hlut, var gripið til þess ráðs í desember 2007 að rifta samningum milli aðila. Taldi Róbert Melax sig í fullum rétti til að yfirtaka félagið enda hefði hann einn staðið við sínar skuldbindingar. Í útfærslu þess gjörnings af hálfu KPMG áttu sér stað mistök og hefur KPMG viðurkennt húsbóndaábyrgð sína hvað það varðar með því að gera viðeigandi leiðréttingar. Eru afskipti KPMG af þessu máli þar með upptalin. Okkur þykir ljóst að ef blaðamaður Morgunblaðsins hefði leitað eftir sjónarmiðum KPMG við vinnslu fréttaskýringarinnar sem birtist í Morgunblaðinu sl. laugardag hefði myndin sem birtist lesendum blaðsins af KPMG orðið önnur. Fréttaflutningur sem þessi er til þess fallinn að kasta rýrð á KPMG og er ósanngjarn gagnvart starfsmönnum félagsins. Um samsetning þann sem birtist svo í Staksteinum Morgunblaðsins sunnudaginn 21. desember er skynsamlegast að hafa sem fæst orð. Nafnlaus skrif af því tagi dæma sig vonandi sjálf en við undrumst þau vinnubrögð í virtu dagblaði að skapa vettvang fyrir hroða af því tagi án þess að höfundur þurfi að segja til nafns. Finnst Morgunblaðinu þetta gott siðferði? Stjórn KPMG. |