| Nýir stjórnarmenn Spalar |
|
|
| Föstudagur, 12. Desember 2008 |
Breytingar urðu í stjórnum beggja Spalarfélaganna á aðalfundum þeirra nú og vel að merkja: tvö félög er til um Hvalfjarðargöng og heita bæði Spölur. Upprunalega félagið, stofnað á Akranesi í janúar 1991, varð að eignarhaldsfélagi í desember 1995 og hefur það hlutverk að eiga eina hlutabréfið í einkahlutafélaginu Speli sem þá var stofnað. Þetta var gert á sínum tíma til að auðvelda veðsetningu hlutafjár í Speli (eitt hlutafjárskírteini í stað margra). Spölur ehf. annast rekstur ganganna uns skuldir félagsins hafa verið greiddar upp samkvæmt samningi við samgönguráðuneytið fyrir hönd ríkisins. Í nýkjörinni stjórn Eignarhaldsfélagsins Spalar sitja:
Einar kom inn í stjórnina á aðalfundinum nú í stað Þórðar Magnússonar, framleiðslustjóra Íslenska járnblendifélagsins.
Einar kom inn í stjórnina á aðalfundinum nú í stað Þórðar Magnússonar og Hlynur í stað Hallfreðar Vilhjálmssonar, oddvita Hvalfjarðarsveitar. |