| Tillaga um að banna hefðbundnar ljósaperum innan Evrópusambandsins |
|
|
| Fimmtudagur, 11. Desember 2008 |
|
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur lagt til að hefðbundnar ljósaperum, svokallaðar glóperur, verði bannaðar og að þeim verði á næstu árum skipt út fyrir sparperur og aðra ljósgjafa sem nota minni orku. Ný tilskipun um þetta, sem nú er til umfjöllunar innan Evrópusambandsins, gerir ráð fyrir lokið verði að skipta út öllum hefðbundnum glóperum í löndum Evrópusambandsins í lok árs 2016. Þessi umskipti munu fara fram í áföngum þannig að sterkustu perurnar munu hverfa fyrst úr hillum verslana, en síðan perur sem eru af minni styrkleika þar til öllum hefðbundnum glóperum hefur verið skipt út fyrir sparneytnari perur í lok árs 2016. Áætlað er að með því að skipta yfir í sparneytnari ljósaperur megi minnka orkunotkun til lýsingar um meira en 30% en í Evrópusambandsríkjum mun það spara um 40 terawattstundir af rafmagni sem svarar til allrar rafmagnsnotkunar í Rúmeníu. Með minni rafmagnsnotkun dregur einnig úr losun gróðurhúsalofttegunda og er áætlað að CO2 útblástur muni minnka um 15 milljónir tonna á ári í löndum Evrópusambandsins vegna þessarar aðgerðar. „Þessi ákvörðun Evrópusambandsins er liður í að vernda loftslagið og að draga úr rafmagnskostnaði neytenda,“ segir Martin Goetzeler, framkvæmdastjóri OSRAM sem er annar af tveimur stærstu ljósaframleiðendum í heiminum og hefur verið leiðandi í þróun nýrra ljósgjafa. Hann segir að ástæða þess að nú sé vilji til að hætta að nota hefðbundnar glóperur sé að þær séu ekki nógu hagkvæmar. „OSRAM er með mikið úrval af öðrum háþróuðum og mun hagkvæmari valkostum á markaðinum og við munum halda áfram að leiða breytinguna yfir í nýja ljósgjafa,“ segir Martin Goetzeler. Innan við 5% af sölu OSRAM hefðbundnar ljósaperur Meira en 95% af sölu OSRAM kemur í dag af sölu annarra ljósgjafa en hefðbundinna glópera en það eru m.a. halogenperur, fluorcent perur og ljósdíóður. OSRAM hefur fengið margvíslegar viðurkenningar fyrir þróunarstarf sitt á þessum vettvangi á undanförnum árum. Þannig hlaut fyrirtækið í síðustu viku þýsku sjálfbærniverðlaunin (German Sustainability Prize) fyrir mikið og fjölbreytt framboð af vörum sem nýta orku vel og fyrir framúrskarandi rannsóknar- og þróunarvinnu á sviði orkunýtingar. Árið 2007 fékk OSRAM þýsku framtíðarverðlaunin (German Prize for the Future) fyrir framlag sitt til þróunar orkunýtinna ljósgjafa. |