| Landsnet undirbýr styrkingu og endurnýjun raforkuflutningskerfisins á Suðvesturlandi |
|
|
| Þriðjudagur, 02. Desember 2008 |
|
Framkvæmdirnar í stórum dráttum Meginflutningskerfið á Suðvesturlandi byggist á loftlínum en á nokkrum stöðum er gert ráð fyrir jarðstrengjum vegna tenginga við stórnotendur. Í heildina er um að ræða nýbyggingu á u.þ.b. 123 km af loftlínum og 17 km af endurnýjuðum línum. Nýjar tengingar orkunotenda og virkjana við meginflutningskerfið verða alls 34 km af loftlínum og 33 km af háspennustrengjum í jörðu. Ný tengivirki rísa á Hellisheiði, við Sandskeið, við Hrauntungur sunnan Hafnafjarðar og á Njarðvíkurheiði en tengivirki við Rauðamel verður fjarlægt. Jafnframt er gert ráð fyrir umfangsmiklu niðurrifi á eldri línum, eða samtals 96 km af loftlínum. Áætlaður framkvæmdakostnaður er um 22 milljarðar króna, á verðalagi í ágúst 2008. Mannaflaþörfin er áætluð um 380 ársverk, skipt á fjögur ár, en stefnt er að því að framkvæmdir geti hafist haustið 2009 og að þeim verði lokið um mitt ár 2012. Þessar tímasetningar eru þó birtar með fyrirvara um breytingu. Drög að matsáætlun til kynningarFramkvæmdin er matsskyld samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum. Vinna við matið er hafin og annast EFLA verkfræðistofa verkstýringu hennar fyrir hönd Landsnets. Mikil áhersla er lögð á samstarf og samráð við sveitarfélög, landeigendur og aðra hagsmunaaðila, sem og leyfisveitendur og lögbundna umsagnaraðila. Drög að tillögu að matsáætlun hafa nú verið birt til kynningar og má nálgast þau á vef Landsnets, www.landsnet.is, EFLU verkfræðistofu, www.efla.is og á sérstakri heimasíðu verkefnisins, www.sudvesturlinur.is. Frestur til að gera athugasemdir við drög að matsáætlun, áður en þeim verður skilað inn til formlegrar umfjöllunar hjá Skipulagsstofnun, er til 16. desember næstkomandi. Markmið og forsendur Markmið framkvæmdanna er að byggja upp raforkuflutningskerfið á Suðvesturlandi til framtíðar svo það geti mætt áformum um orkuflutning á svæðinu, jafnt til atvinnustarfsemi og til almannanota. Núverandi kerfi er nýtt til fulls og annar ekki fyrirsjáanlegri eftirspurn á svæðinu í nánustu framtíð. Styrking og endurnýjunin kerfisins er jafnframt forsenda uppbyggingar af ýmsu tagi í atvinnulífi landshlutans, þar á meðal aukinna umsvifa í orkufrekri atvinnustarfsemi, framleiðslu- og hátækniiðnaði. ![]() |