Forsíða Fréttir Fréttir 2008 Athygli sér um Okkar mál
Athygli sér um Okkar mál Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Fimmtudagur, 20. Nóvember 2008
Athygli sá um útgáfu á Okkar málum, blaði Geðhjálpar, sem fylgdi DV sl. laugardag. Efni blaðsins sem er 24 síður var fjölbreytt að vanda. Aðalviðtalið að þessu sinni er við Garðar Sölva Helgason, sem hefur barist við geðklofa í áratugi, en náð býsna góðum árangri í baráttunni við sjúkdóm sinn.

Af öðru efni má nefna viðtal við Láru V. Júlíusdóttur hjá Borgarlögmönnum sem tekið hafa að sér lögfræðilega þjónustu og ráðgjöf við skjólstæðinga Geðhjálpar. Vanda Sigurgeirsdóttir brautarstjóri við Háskóla Íslands ræðir um viðbrögð ástæður eineltis og hrikalegar afleiðingar þess. Katrín Baldursdóttir segir frá nýrri ljóðabók sinni. Þá er sagt frá ferð starfsfólks Svæðisskrifstofu um málefni fatlaðra á Austurlandi til Englands og Danmerkur til að kynna sér nýjungar í þjónustu við geðsjúka þar. Guðmundur Þorsteinsson sá um alla prentvinnslu blaðsins. Sigurður Bogi Sævarsson blaðamaður hélt utan um efnisvinnslu og skrifaði leiðara blaðsins og sagði þar meðal annar: "Veisluhallir síðustu ára eru brunnar til grunna. Nýtt Ísland er í dögun. Ein mikilvægasta skylda ráðamanna og raunar fólksins á götunni er að í því spili sem framundan er, hafi enginn þá hunda á hendi að geta ekki lifað sómasamlegulífi. Fyrir slíku ætti að vera skilningur. Á þetta mun Geðhjálp minna og berjast fyrir. Slíkt er í samræmi við stefnu félagsins og starf á undangenginni tíð en meira er íhúfi nú en nokkru sinni fyrr."