|
Hvassafell í erfiðleikum í Rotterdam |
|
|
|
Mánudagur, 29. Desember 2008 |
|
Við losun Hvassafells – leiguskips Samskipa – í Rotterdam í gær kom í ljós að talsverður sjór hafði komist í eina lest skipsins þar sem m.a. voru gámar sem innihalda efnið „Aluminium Dross“, sem við snertingu við vatn hvarfast og veldur þá hita og jafnvel íkveikju.
|
|
Lesa meira...
|
|
Yfirlýsing frá KPMG |
|
|
|
Mánudagur, 22. Desember 2008 |
|
Í tilefni af fréttaskýringu í Morgunblaðinu laugardaginn 20. desember og Staksteinum blaðsins sunnudaginn 21. desember lýsir stjórn KPMG á Íslandi yfir furðu sinni á þessum skrifum blaðsins og spyr sig hvort Morgunblaðið sé í ófrægingarherferð á hendur félaginu. Stjórn KPMG sér sig því knúna til að senda frá sér yfirlýsingu þar sem órökstuddum ásökunum og dylgjum Morgunblaðsins er harðlega mótmælt. Við lýsum ábyrgð á hendur Morgunblaðinu, einum virtasta fjölmiðli landsins og furðum okkur á svo óvandaðri blaðamennsku.
|
|
Lesa meira...
|
|
Styrktarsjóðurinn Faðmur fær jólastyrk Lyfjavers |
|
|
|
Fimmtudagur, 18. Desember 2008 |
|
Katrín Júlíusdóttir alþingismaður og formaður styrktarsjóðsins Faðms tók í gær við jólastyrk Lyfjavers í húsakynnum apóteksins að Suðurlandsbraut 22. Faðmur, sem er styrktarsjóður á vegum samtakanna Heilaheilla, styrkir foreldra sem hafa fengið heilablóðfall og sem eru með börn 18 ára og yngri á framfæri sínu.
|
|
Lesa meira...
|
|
15 milljónir ökutækja undir Hvalfjörð frá upphafi |
|
|
|
Föstudagur, 12. Desember 2008 |
|
Alls hafa um 15 milljónir ökutækja farið um Hvalfjarðargöng á tíu árum eða frá því þau voru opnuð sumarið 1998. Umferðin jókst jafnt og þétt ár frá ári en í efnahagsþrengingunum nú fækkar bílum á þjóðvegum landsins og þar með í göngunum.
|
|
Lesa meira...
|
|
Nýir stjórnarmenn Spalar |
|
|
|
Föstudagur, 12. Desember 2008 |
|
Breytingar urðu í stjórnum beggja Spalarfélaganna á aðalfundum þeirra nú og vel að merkja: tvö félög er til um Hvalfjarðargöng og heita bæði Spölur. Upprunalega félagið, stofnað á Akranesi í janúar 1991, varð að eignarhaldsfélagi í desember 1995 og hefur það hlutverk að eiga eina hlutabréfið í einkahlutafélaginu Speli sem þá var stofnað. Þetta var gert á sínum tíma til að auðvelda veðsetningu hlutafjár í Speli (eitt hlutafjárskírteini í stað margra).
|
|
Lesa meira...
|
|
Tillaga um að banna hefðbundnar ljósaperum innan Evrópusambandsins |
|
|
|
Fimmtudagur, 11. Desember 2008 |
|
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur lagt til að hefðbundnar ljósaperum, svokallaðar glóperur, verði bannaðar og að þeim verði á næstu árum skipt út fyrir sparperur og aðra ljósgjafa sem nota minni orku.
|
|
Lesa meira...
|
|
Landsnet undirbýr styrkingu og endurnýjun raforkuflutningskerfisins á Suðvesturlandi |
|
|
|
Þriðjudagur, 02. Desember 2008 |
|
Landsnet undirbýr endurnýjun og styrkingu raforkuflutningskerfisins á Suðvesturlandi. Framkvæmdakostnaður er áætlaður um 22 milljarðar króna á verðlagi í ágúst 2008 og mannaflaþörf um 380 ársverk. Drög að matsáætlun vegna framkvæmdanna hafa nú verið lögð fram til kynningar og er athugasemdafrestur til 16. desember næstkomandi.
|
|
Lesa meira...
|
|
Samskip útskrifa starfsfólk úr íslenskunámi |
|
|
|
Miðvikudagur, 26. Nóvember 2008 |
|
Á fjórða tug starfsmanna af erlendum uppruna hjá Samskipum luku í vikunni námskeiði í íslensku sem félagið stendur fyrir og hefur notið styrks frá menntamálaráðuneytinu. Þetta er þriðja önnin sem markvisst íslenskunám fer fram í vinnutíma fyrir alla erlenda starfsmenn Samskipa.
|
|
Lesa meira...
|
|
Samskip virkja auð kvenna |
|
|
|
Þriðjudagur, 25. Nóvember 2008 |
Hjá Samskipum, sem á dögunum hlutu Starfsmenntaverðlaunin 2008 í hópi fyrirtækja, er nýlokið 10 vikna leiðtoganámskeiði fyrir konur til að bæta hæfni í mannlegum samskiptum og efla sjálfstraust og tengslanet.
|
|
Lesa meira...
|
|
Athygli sér um Okkar mál |
|
|
|
Fimmtudagur, 20. Nóvember 2008 |
|
Athygli sá um útgáfu á Okkar málum, blaði Geðhjálpar, sem fylgdi DV sl. laugardag. Efni blaðsins sem er 24 síður var fjölbreytt að vanda. Aðalviðtalið að þessu sinni er við Garðar Sölva Helgason, sem hefur barist við geðklofa í áratugi, en náð býsna góðum árangri í baráttunni við sjúkdóm sinn.
|
|
Lesa meira...
|
|
Íslenskir MND sjúklingar taka þátt í erlendri lyfjatilraun |
|
|
|
Föstudagur, 17. Október 2008 |
Fjórir íslenskir MND sjúklingar eru á leið til Bandaríkjanna til að taka þátt í lyfjatilraun á vegum Mount Sinai sjúkrahússins New York. Í tilrauninni verður kannað hvernig sjúklingarnir bregðast við töku malaríulyfsins Pyrimethamine og hvort taka þess hafi áhrif á tiltekið eggjahvítuefni sem talið er að geti verið meðvirkandi ástæða fyrir frumubreytingum sem eiga þátt í MND sjúkdómnum.
|
|
Lesa meira...
|
|
Alcoa Fjarðaál styður Krabbameinsfélagið |
|
|
|
Þriðjudagur, 07. Október 2008 |
Alcoa Fjarðaál er meðal fjölmargra fyrirtækja sem lagt hafa árveknisátaki Krabbameinsfélagsins lið með kaupum á bleiku slaufunni en fjármununum sem fást fyrir sölu slaufunnar verður varið til kaupa á nýjum stafrænum röntgentækjum sem gjörbylta starfsemi Krabbameinsfélagsins.
|
|
Lesa meira...
|
|
Eignir rýrna, lífeyrisréttur skerðist |
|
|
|
Þriðjudagur, 07. Október 2008 |
|
Landssamtök lífeyrissjóða búa landsmenn undir skerðingu lífeyrisréttinda á fyrri hluta árs 2009 sem bein afleiðing þess að eignir sjóðanna rýrna í fjármálakreppunni miklu. Of snemmt er hins vegar að segja til um hverjar lyktir mála verða þegar upp verður staðið að gerningaveðrinu loknu.
|
|
Lesa meira...
|
|
Viljayfirlýsingar um þróun þjónustunets og prófanir á rafbílum |
|
|
|
Föstudagur, 19. September 2008 |
|
Mitsubishi Heavy Industries hefur um langt skeið lagt Íslendingum til hverfla í vatnsafls- og jarðhitavirkjanir. Í dag verður stigið nýtt skref í samstarfi við Mitsubishi sem m.a. miðar að innleiðingu rafbíla á Íslandi og þróun þjónustunets fyrir bifreiðar sem ganga eingöngu fyrir rafmagni.
|
|
Lesa meira...
|
|
Markaðsátak í ferðamálum í haust og vetur |
|
|
|
Þriðjudagur, 16. September 2008 |
Allt að 100 milljónum króna verður varið í sérstakt átak á næstu mánuðum til að markaðssetja Ísland erlendis sem áhugaverðan áfangastað í haust og vetur. Um er að ræða samstarfsverkefni iðnaðarráðuneytisins og fyrirtækja í ferðaþjónustu undir forystu Ferðamálastofu.
|
|
Lesa meira...
|
|
VÍS styður Mænuskaðastofnun Íslands |
|
|
|
Laugardagur, 13. September 2008 |
|
VÍS er einn af aðalstyrktaraðilum Mænuskaðastofnunar Íslands. Með því vill félagið stuðla að því að hægt verði að bjóða fjölbreyttari meðferðarúrræði við mænuskaða og auka líkurnar á því að þeir sem verða fyrir slíkum skaða nái styrk sínum á ný.
|
|
Lesa meira...
|
|
Yfir 200 kaupendur ferðaþjónustu væntanlegir á vestnorrænu kaupstefnuna í Reykjavík |
|
|
|
Föstudagur, 12. September 2008 |
Um 560 þátttakendur eru skráðir á 23. Vestnorden ferðakaupstefnuna sem fram fer í Reykjavík dagana 15. -17. september 2008. Er þetta svipaður þátttakendafjöldi og á síðustu kaupstefnu hér á landi, haustið 2006. Sérstakar svæða- og landshlutakynningar eru nýlunda að þessu sinni á kaupstefnunni sem ferðamálayfirvöld á Íslandi, Grænlandi og Færeyjum hafa staðið fyrir árlega í rúma tvo áratugi.
|
|
Lesa meira...
|
|
Norræn ráðstefna myndréttarsamtaka |
|
|
|
Fimmtudagur, 11. September 2008 |
|
Myndhöfundasjóður Íslands - MYNDSTEF - stendur fyrir norrænni ráðstefnu í samstarfi við Háskólann í Reykjavík um tækifæri og ógnanir sem myndhöfundarréttarhafar standa frammi fyrir með tilkomu Internetsins og stafrænnar tækni í upplýsinga- og efnismiðlun. Á sjöunda tug þátttakenda eru skráðir á ráðstefnuna sem fer fram með styrk frá menntamálaráðuneytinu á Grand hótel í Reykjavík, dagana 11. - 12. september 2008.
|
|
Lesa meira...
|
|
Um Spöl ehf., ný göng og tvöföldun vegar á Kjalarnesi |
|
|
|
Miðvikudagur, 10. September 2008 |
|
Stjórn Spalar telur réttlætanlegt í ljósi hagsmuna vegfarenda, atvinnulífs og íbúanna norðan og sunnan Hvalfjarðar að halda óbreyttu veggjaldi til árins 2018 í því skyni að tryggja nauðsynlegar vegabætur undir Hvalfjörð. Þetta segir stjórnarformaður Spalar meðal annars í ítarlegri grein sem hann skrifaði að gefnu tilefni og birt er hér á Spalarsíðunni.
|
|
Lesa meira...
|
|
Ríkiskaup velja OSRAM perur |
|
|
|
Þriðjudagur, 09. September 2008 |
|
Jóhann Ólafsson og Co., umboðsaðili OSRAM á Íslandi í 60 ár, undirritaði í gær samning við Ríkiskaup um sölu á ljósaperum til liðlega 650 fyrirtækja og stofnana á vegum ríkis og sveitarfélaga, sem í dag eiga aðild að rammasamningakerfi Ríkiskaupa. Samningurinn er gerður í kjölfar útboðs sem auglýst var á Evrópska efnahagssvæðinu í maí síðast liðnum og er hann til tveggja ára. Heimilt er að framlengja samninginn tvisvar sinnum í eitt ár hvort skipti. Við mat á tilboðum var litið til þriggja meginþátta en það eru verð, þjónusta og hve breitt vöruúrval einstaka aðilar gátu boðið.
|
|
Lesa meira...
|
|
Í kapphlaupi við tímann á Kárahnjúkasvæðinu |
|
|
|
Þriðjudagur, 09. September 2008 |
|
„Það má segja að við séum í kapphlaupi við tímann að ljúka þessu verkefni fyrir Impregiló áður en veturinn gengur í garð. Verkið gengur vel enda er keyrt eins stíft og mannskapur og tæki þola,“ segir Gunnar Ásgeirsson verkefnastjóri hjá Hringrás um hreinsun vinnusvæðisins við Kárahnjúka.
|
|
Lesa meira...
|
|
Einn hirtur á 118 km hraða |
|
|
|
Fimmtudagur, 28. Ágúst 2008 |
Lögreglan mældi bíl á 118 km hraða í Hvalfjarðargöngum fyrr í þessari viku. Ökumaðurinn verður að öllum líkindum rukkaður um 60.000 krónur í sekt og fær að auki 3 refsipunkta í ökuferilsskrá sína. Sem betur fer heyrir slíkur brjálæðisakstur til undantekninga undir Hvalfirði en einn bjáni undir stýri er einum bjána of mikið, hvar og hvenær sem er.
|
|
Lesa meira...
|
|
Álfasteinn í síldarvinnsluna á Raufarhöfn |
|
|
|
Þriðjudagur, 26. Ágúst 2008 |
|
Vel hefur gengið að hreinsa tæki og tól út úr húsnæði síldarvinnslunnar á Raufarhöfn og er búist við að verkinu ljúki að mestu í þessari viku. Þegar húsin hafa verið rýmd verður hafist handa við að koma starfsemi Álfasteins fyrir í húsnæðinu en hún er nú á Borgarfirði eystra.
|
|
Lesa meira...
|
|
Bílaumboðin Askja og Kia á Íslandi flytja |
|
|
|
Þriðjudagur, 26. Ágúst 2008 |
|
Bílaumboðin Askja og Kia á Íslandi munu á næstu vikum flytja starfsemi sína að Krókhálsi 11 í nýtt og rúmgott húsnæði þar sem Ræsir hefur verið til húsa. Gengið var frá samningum þess efnis síðdegis í gær.
|
|
Lesa meira...
|
|
Heimsfrumsýning á nýrri kynslóð VW Golf á Íslandi |
|
|
|
Föstudagur, 22. Ágúst 2008 |
|
Stærsta bílakynning sem haldin hefur verið hér á landi fer fram í september næstkomandi þegar sjötta kynslóð hinna vinsælu VW Golf bíla verður heimsfrumsýnd á Íslandi. Kynningarátakið mun standa yfir í þrjár vikur og eru um 1500 blaða- og fréttamenn væntanlegir til landsins og atburðurinn því jafnframt mikil landkynning fyrir Ísland.
|
|
Lesa meira...
|
|
VÍS og Bændasamtökin semja um tryggingavernd |
|
|
|
Föstudagur, 22. Ágúst 2008 |
|
Fyrr í vikunni var gengið frá endurnýjun á samningi VÍS og Bændasamtakanna um víðtæka tryggingavernd fyrir bændur. Samkvæmt samningnum stendur bændum til boða tryggingapakki sem er sérsniðinn að þörfum hvers og eins.
|
|
Lesa meira...
|
|
Reykjavíkurmaraþon 25 ára |
|
|
|
Miðvikudagur, 20. Ágúst 2008 |
|
Árið 1984 hlupu 250 menn og konur í Reykjavíkurmaraþoni en síðan eru liðin 25 ár og í dag hefur þátttakendum fjölgað svo um munar. Í fyrra voru þeir 11.500! Vinsældir þess hafa aukist með hverju árinu sem líður og í dag er Reykjavíkurmaraþon Glitnis með stærstu lýðheilsuviðburðum landsmanna. Lýðheilsu, vegna þess að allir geta tekið þátt í Reykjavíkurmaraþoni Glitnis, burtséð frá kyni, aldri eða reynslu af hlaupum.
|
|
Lesa meira...
|
|
Mun minni umferð um Fiskidagshelgina en í fyrra |
|
|
|
Miðvikudagur, 20. Ágúst 2008 |
|
Umferð í Hvalfjarðargöngum um verslunarmannahelgina í ár var umtalsvert meiri en í fyrra. Umferðin um Fiskidagshelgina í ár var hins vegar talsvert minni en í fyrra.
|
|
Lesa meira...
|
|
5% minni umferð síðustu fjóra mánuði |
|
|
|
Þriðjudagur, 19. Ágúst 2008 |
Umferðin í göngunum var liðlega 5% minni í júlí en í sama mánuði í fyrra. Þá fóru 235.000 bílar undir Hvalfjörð, hátt í 13.000 færri en í fyrra.
|
|
Lesa meira...
|
|
Langflestir hlaupa í þágu góðgerðafélaga |
|
|
|
Þriðjudagur, 12. Ágúst 2008 |
|
Eins og í fyrra geta þátttakendur í Reykjavíkurmaraþoni Glitnis í ár valið að hlaupa í þágu tiltekinna góðgerðafélaga. Nærri lætur að á síðasta ári hafi 9 af hverjum 10 íslenskum hlaupurum hlaupið fyrir góðgerðafélög og safnað áheitum frá fjölskyldum og vinum sem vildu hvetja hlauparana til dáða og styrkja um leið gott málefni. Þær skráningar sem þegar liggja fyrir benda til að þessi þróun haldi áfram og að langflestir hlauparanna kjósi að hlaupa í þágu góðgerðafélaga.
|
|
Lesa meira...
|
|
Kærkominn stuðningur íslenskra barna í Latabæjarhlaupi |
|
|
|
Þriðjudagur, 12. Ágúst 2008 |
|
Upp úr hádegi laugardaginn 23. ágúst nk. mun grasflötin fyrir framan aðalbyggingu Háskóla Íslands breytast í sannkallað barnaland því þá fer Latabæjarhlaupið þar fram í þriðja sinn í tengslum við Reykjavíkurmaraþon Glitnis. Í fyrra tóku um 4300 börn þátt í hlaupinu sem ætlað er 9 ára börnum og yngri og búist er við að þátttakan geti orðið jafn góð eða betri í ár. Þátttökugjald er það sama og á síðasta ári eða 800 kr. og rennur óskipt til Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, en Glitnir er einn af bakhjörlum samtakanna á Íslandi.
|
|
Lesa meira...
|
|
Myndstefsverðlaunin 2008 |
|
|
|
Föstudagur, 08. Ágúst 2008 |
Sigurgeir Sigurjónsson er handhafi Myndstefsverðlaunanna 2008 sem forseti Íslands afhenti við hátíðlega athöfn í Listasafni Íslands í dag. Viðurkenninguna hlýtur Sigurgeir fyrir ljósmyndir sínar af mönnum, dýrum og landi sem draga upp sterka drætti úr íslenskum veruleik sem sjá má í fjölmörgum og margvíslegum ljósmyndabókum hans.
|
|
Lesa meira...
|
|
Ný fullkomin metanstöð opnuð á Bíldshöfða |
|
|
|
Fimmtudagur, 07. Ágúst 2008 |
|
Ný og fullkomin metanafgreiðsla var opnuð í nýrri þjónustustöð N1 á Bíldshöfða í dag. Um er að ræða fyrstu fullbúnu þjónustumiðstöðina fyrir metanbíla á Íslandi, með sjálfsafgreiðslu fyrir bæði fólksbíla og stærri þjónustubíla. Það var Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra sem opnaði stöðina formlega með því að dæla metani á fyrsta bílinn sem nýtir þessa nýju aðstöðu.
|
|
Lesa meira...
|
|
Stærstu umferðarhelgarnar framundan |
|
|
|
Mánudagur, 28. Júlí 2008 |
|
Alls fóru ríflega 10.500 bílar um Hvalfjarðargöng síðastliðinn föstudag, 25. júlí, sem er mesta umferð á einum sólarhring hingað til á árinu. Ætla má að sól og sumarylur norðanlands um helgina hafi stuðlað að því að fleiri en fóru í norðurátt frá höfuðborgarsvæðinu en ella.
|
|
Lesa meira...
|
|
Dólgslæti og dónaskapur |
|
|
|
Miðvikudagur, 23. Júlí 2008 |
Viðskiptavinir okkar eru upp til hópa kurteisir og elskulegir í alla staði en fyrir kemur samt að þeir séu illa fyrir kallaðir og láti það bitna á starfsfólki Spalar, bæði vaktmönnum í gjaldskýlinu og þeim sem svara síma á skrifstofu félagsins á Akranesi.
|
|
Lesa meira...
|
|
Endurskipulagning hjá MEST |
|
|
|
Mánudagur, 21. Júlí 2008 |
Að undanförnu hafa eigendur, stjórnendur og lánadrottnar unnið að endurskipulagningu rekstrar MEST ehf. með það að markmiði að tryggja áframhaldandi starfsemi sem og að tryggja hag starfsmanna fyrirtækisins. Niðurstaða þessarar vinnu er að nýtt félag, Steypustöðin Mest ehf., hefur tekið yfir rekstur steypustöðva og helluframleiðslu MEST ehf. í Hafnafirði, Reykjavík og á Selfossi. Þá mun hið nýstofnaða félag einnig taka yfir verslun með múrvörur MEST ehf. Höfuðstöðvar nýja félagsins verða að Malarhöfða 10 í Reykjavík.
|
|
Lesa meira...
|
|
Afmælisveislan mikla |
|
|
|
Mánudagur, 14. Júlí 2008 |
Fjölmennt og góðmennt var í afmælisveislu Spalar á Akranesi á afmælisdaginn, 11. júlí. Þarna voru aðstandendur félagsins fyrr og síðar, menn sem tengdust undirbúningi, fjármögnun og framkvæmdum við göngin, fulltrúar stjórnvalda og sveitarfélaga á Vesturlandi og fleiri.
|
|
Lesa meira...
|
|
Framkvæmdir við ný göng hefjist ekki síðar en 2012 |
|
|
|
Mánudagur, 14. Júlí 2008 |
Stjórn Spalar telur að hefja beri framkvæmdir við ný göng undir Hvalfjörð og tvöföldun akbrauta um Kjalarnes ekki síðar en árið 2012. Þetta kemur fram í skýrslu um málið sem Gísli Gíslason, stjórnarformaður Spalar, afhenti Kristjáni L. Möller samgönguráðherra í hófi á Akranesi tíu ára afmæli Hvalfjarðarganga, föstudaginn 11. júlí 2008.
|
|
Lesa meira...
|
|
Landsnet og Landgræðslan í samstarfi um uppgræðslu sunnan Langjökuls -Dreifa áburði og sá |
|
|
|
Föstudagur, 11. Júlí 2008 |
Frá árinu 2006 hefur Landsnet unnið með Landgræðslu ríkisins að uppgræðslu og stöðvun jarðvegseyðingar í nágrenni háspennulína á afréttinum sunnan Langjökuls. Ákveðið hefur verið að í sumar verði kröftunum beint að brýnum verkefnum annars vegar við Tjaldafell og hins vegar að nýju svæði á móts við vegamót línuvegar og Kaldadalsvegar.
|
|
Lesa meira...
|
|
Göngin tíu ára |
|
|
|
Föstudagur, 11. Júlí 2008 |
Hvalfjarðargöng eru orðin tíu ára! Í dag, 11. júlí er sem sagt áratugur liðinn frá þvi þetta einstaka umferðarmannvirki Íslandssögunnar var opnað við hátíðlega athöfn að viðstöddu fjölmenni. Kvöldið áður hafði Akraborgin farið síðustu áætlunarferðina frá Reykjavík til Akraness. |
|
Lesa meira...
|
|
Samdráttur í efnahagslífinu birtist skýrt í umferðartölum |
|
|
|
Fimmtudagur, 10. Júlí 2008 |
Umferð í Hvalfjarðargöngum dróst saman um 4,8% í júní 2008 miðað við sama tíma í fyrra. Þetta er þriðji mánuðurinn í röð þar sem bílum fækkar þar og þannig birtist glögglega efnahagsástandið í samfélaginu yfirleitt í umferðartölum í göngunum.
|
|
Lesa meira...
|
|
Ólafur Jóhann Ólafsson nýr stjórnarformaður Geysis Green Energy |
|
|
|
Þriðjudagur, 08. Júlí 2008 |
Ólafur Jóhann Ólafsson rithöfundur og aðstoðarforstjóri Time Warner fjölmiðla-samsteypunnar og bandaríska fjárfestingarfélagið Wolfensohn & Company eru nýir hluthafar í Geysi Green Energy. Á hluthafafundi sem haldinn var í Reykjanesbæ í dag tóku Ólafur Jóhann Ólafsson og Adam Wolfensohn sæti í stjórn Geysis og var Ólafur Jóhann kjörinn formaður stjórnar. Ásgeir Margeirsson forstjóri félagsins segir mikinn feng í því að fá jafn öfluga og alþjóðlega virta fjárfesta og Ólaf Jóhann og Wolfensohn & Company til liðs við félagið.
|
|
Lesa meira...
|
|
Athygli gefur út Austurland |
|
|
|
Fimmtudagur, 03. Júlí 2008 |
Athygli gaf út á dögunum blaðið "Austurland - þangað sem leiðin liggur." Þar er fjallað um flest það sem hæst ber eystra um þessar mundir: nú á liggjandanum eftir mikla uppbyggingu á sviði virkjunar og stóriðju síðustu ár.
|
|
Lesa meira...
|
|
Bílaþing HEKLU verður HEKLA notaðir bílar |
|
|
|
Miðvikudagur, 25. Júní 2008 |
Öll starfsemi Bílaþings HEKLU hefur verið sameinuð á 1.600 fermetra athafnasvæði að Kletthálsi 1B í Árbæ undir nýju nafni - HEKLA notaðir bílar. Vegleg opnunarhátíð verður af því tilefni á morgun, fimmtudaginn 26. júní, þar sem boðið verður upp á 20% afslátt á öllum notuðum bílum og hagkvæma fjármögnunarmöguleika í erlendri mynt.
|
|
Lesa meira...
|
|
Flugumferðarstjórar boða hrinu stuttra verkfalla |
|
|
|
Miðvikudagur, 18. Júní 2008 |
|
Félag íslenskra flugumferðarstjóra (FÍF) hefur boðað 20 stuttar vinnustöðvanir dagana 27. júní til 20. júlí nk.. Verkfallsboðunin nær til allra starfandi flugumferðarstjóra í landinu hjá Flugmálastjórn Íslands, Flugmálastjórn á Keflavíkurflugvelli og hjá Flugstoðum.
|
|
Lesa meira...
|
|
Afmælistónleikar MND félagsins 21. júní |
|
|
|
Miðvikudagur, 18. Júní 2008 |
|
Í tilefni af því að í ár eru 15 ár liðin frá því að MND félagið á Íslandi var stofnað býður félagið til stórtónleika á Thorsplani í Hafnarfirði á alþjóðlega MND daginn sem er laugardaginn 21. júní. Með tónleikunum vill félagið þakka þann stuðning sem landsmenn hafa sýnt MND sjúkum undanfarin ár um leið og það leggur sitt af mörkum til að halda upp á 100 ára afmæli Hafnarfjarðar en þar hefur aðsetur félagsins verið frá upphafi.
|
|
Lesa meira...
|
|
Erlent starfsfólk Samskipa útskrifað úr íslenskunámi |
|
|
|
Fimmtudagur, 05. Júní 2008 |
Á sjötta tug erlendra starfsmanna Samskipa voru útskrifaðir úr íslenskunámi í gær. Um 70 nemendur hafa stundað nám í íslensku á vegum félagsins í vetur.
|
|
Lesa meira...
|
|
Þjóðarátak VÍS gegn umferðarslysum 2008 |
|
|
|
Miðvikudagur, 04. Júní 2008 |
|
Í sumar efnir VÍS til þjóðarátaks gegn umferðaslysum í sjöunda skipti. Í ár verður lögð áhersla á að brýna fyrir ökumönnum að þeir haldi ekki út í umferðina í tímaþröng og stressi heldur gefi sér rúman tíma þegar þeir skipuleggja ferðir sínar. Vakin er athygli á hættunni sem fylgir því þegar ökumenn setjast undir stýri án þess að vera í andlegu jafnvægi.
|
|
Lesa meira...
|
|
Ákvæði Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna komin á veggspjöld og á heimasíðuna barnasattmali.is |
|
|
|
Fimmtudagur, 29. Maí 2008 |
Umboðsmaður barna, Barnaheill og UNICEF á Íslandi hafa gefið út tvö veggspjöld með ákvæðum Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna í styttri útgáfu. Veggspjöldin eru ætluð til notkunar í skólastarfi og mun Námsgagnastofnun sjá um dreifingu til grunnskólanna. Einnnig stendur til að dreifa veggspjöldunum víðar.
|
|
Lesa meira...
|
|
AT tímaritið komið út |
|
|
|
Þriðjudagur, 27. Maí 2008 |
Fyrsta tölublað AT tímarits 2008 er komið út en það er gefið út af Athygli ehf. í samvinnu við Arkitektafélag Íslands og Félag íslenskra landslagsarkitekta. Blaðið er eins og endranær fullt af áhugaverðu efni um arkitektúr, skipulag og landmótun.
|
|
Lesa meira...
|
|
Samskip tengja Grikkland við þjónustunet sitt |
|
|
|
Fimmtudagur, 22. Maí 2008 |
Grikkland hefur bæst við ört stækkandi þjónustunet Samskipa í Evrópu eftir að félagið hóf vöruflutninga frá Rotterdam og Mannheim til Aþenu og Þessalóníku, í samstarfi við Carel Ltd., eitt stærsta flutningafyrirtæki Grikklands. Notast er að mestu við lestar á Grikklandsleiðinni en þær hafa reynst hagkvæmur og umhverfisvænn kostur í samanburði við flutninga með skipum og bílum.
|
|
Lesa meira...
|
|
Ganga gegn slysum |
|
|
|
Föstudagur, 09. Maí 2008 |
Fleiri þúsundir gengu gegn slysum í gær í blíðskaparviðri. Það er hópur hjúkrunarfræðinga á Landspítala, BAS hópurinn, sem efndi á ný til fjöldagöngu gegn umferðaslysum í því skyni að votta fórnarlömbum slysa og aðstandendum þeirra samúð og stuðning og vekja almenning til umhugsunar hve slys geta haft alvarlegar og víðtækar afleiðingar. Síðast en ekki síst vildu aðstandendur göngunnar minna á að alvarleg slys koma líka illa við alla þá sem starfs síns vegna koma þar við sögu.
|
|
Lesa meira...
|
|
Sáðmenn sandanna valin fræðibók ársins 2007 |
|
|
|
Þriðjudagur, 06. Maí 2008 |
Sáðmenn sandanna, Saga landgræðslu á Íslandi 1907-2007 hefur verið valin besta fræðibók ársins 2007 af Upplýsingu, Félagi bókasafns- og upplýsingafræða. Greint var frá niðurstöðu matsnefndar félagsins á aðalfundi félagsins í Þjóðarbókhlöðunni í dag. Við það tækifæri tók höfundur bókarinnar Friðrik G. Olgeirsson sagnfræðingur við viðurkenningarskjali úr hendi Sigrúnar Klöru Hannesdóttur formanns Upplýsingar.
|
|
Lesa meira...
|
|
Lambakjot.is í nýjum búningi |
|
|
|
Föstudagur, 02. Maí 2008 |
Vefurinn lambakjot.is sem rekinn er af Markaðsráði kindakjöts var upphaflega settur upp árið 2002 en hefur staðið að mestu óbreyttur síðan.
Nú hefur allt útlit hans verið endurhannað og efni yfirfært í nýtt umsjónarkerfi. Jafnframt var aukið talsvert við efnið. Vinna við það hefur staðið síðan um áramót. Útlitshönnun annaðist HN markaðssamskipti en tæknivinna var í höndum Eddu Langworth vefráðgjafa hjá Athygli hf.
|
|
Lesa meira...
|
|
HEKLA lækkar verð á nýjum bílum um allt að 17% |
|
|
|
Miðvikudagur, 30. Apríl 2008 |
Bifreiðaumboðið HEKLA lækkar verð á nýjum bílum um allt að 17% í kjölfar betri samninga við framleiðendur. Lækkunin tekur strax gildi og þar með er að talsverðu leyti gengin til baka sú hækkun sem orðið hefur á nýjum bílum hjá fyrirtækinu frá áramótum.
|
|
Lesa meira...
|
|
Lækkun á lyfjaverði hjá GlaxoSmithKline |
|
|
|
Miðvikudagur, 30. Apríl 2008 |
GlaxoSmithKline á Íslandi hefur lækkað verð á fjórum tegundum frumlyfja í kjölfar lækkunar á verði samheitalyfja. Algengasta verðlækkunin er 20% en meðal verðlækkun er um 14,5%. Um er að ræða sýklalyfið Augmentin, mígrenilyfið Imigran Radis, flogaveikilyfið Lamictal og geðlyfið Seroxat. GlaxoSmithKline á Íslandi hefur í orðsendingu til apóteka óskað eftir að umrædd breyting taki gildi frá og með 1. maí þrátt fyrir að hún hafi ekki náð inn í lyfjaverðskrá Lyfjagreiðslunefndar fyrir maímánuð.
|
|
Lesa meira...
|
|
MND félagið veitir styrk til að þróa hagnýtt skimunarpróf |
|
|
|
Miðvikudagur, 30. Apríl 2008 |
|
Dollarasjóður MND félagsins hefur veitt Páli Ragnari Karlssyni sameindalíffræðingi og dr. Thomas Schmitt-John, leiðbeinanda hans í meistaranámi við Árósaháskóla í Danmörku, rannsóknastyrk að upphæð 26 þúsund dollurum eða um 2 milljónir ísl. króna til þess að vinna að gerð hagnýts skimunarprófs á MND-sjúklingum.
|
|
Lesa meira...
|
|
Bjarni Þjóðleifsson Heiðursvísindamaður ársins |
|
|
|
Miðvikudagur, 30. Apríl 2008 |
Á Vísindaþingi Landspítalans, „Vísindi á vordögum 2008“, var Bjarni Þjóðleifsson, prófessor og yfirlæknir, tilnefndur Vísindamaður ársins 2008 við LSH. Hann hefur starfað hjá Landspítalanum í rúmlega 30 ár en á þeim tíma hefur hann skrifað 80 ritrýndar greinar og stundað markverðar og mikilvægar rannsóknir á sviði lyflækninga og meltingarsjúkdóma.
|
|
Lesa meira...
|
|
Öflugt vísindastarf á Landspítala |
|
|
|
Þriðjudagur, 29. Apríl 2008 |
|
Yfir 350 vísindamenn Landspítala og samstarfsaðilar þeirra kynna niðurstöður rannsókna við spítalann á vísindadögum sem standa frá 30. apríl - 7. maí næstkomandi.
|
|
Lesa meira...
|
|
Stóraukin lýsing í norðurhlutanum |
|
|
|
Fimmtudagur, 24. Apríl 2008 |
Hvalfjarðargöng eru nú opin allan sólarhringinn á nýjan leik að lokinni árlegri „vorhreingerningu“. Næturlokun í fyrri viku og framan af þessari viku var meðal annars notuð til að stórauka lýsingu í norðurhluta ganganna.
|
|
Lesa meira...
|
|
Vetnisljósavél tekin í notkun í hvalaskoðunarbátnum Eldingu og sýning á visthæfum bílum |
|
|
|
Fimmtudagur, 24. Apríl 2008 |
Fimm árum eftir að fyrsta almenna vetnisstöðin í heiminum var tekin í notkun hérlendis, á sumardaginn fyrsta 2003, brjóta Íslendingar á ný í blað í vetnismálum og taka í notkun vetnisljósavél í hvalaskoðunarbátnum Eldingu en til þessa hafa vetnistilraunir á sjó eingöngu verið hernaðarlegs eðlis og upplýsingar um þær mjög takmarkaðar. Eldingarverkefnið er hluti af svokölluðu SMART-H2 (Sustainable Marine and Road Transport, Hydrogen in Iceland) verkefni sem hófst formlega í nóvember í fyrra.
|
|
Lesa meira...
|
|
Athygli gefur út Ævintýralandið |
|
|
|
Miðvikudagur, 23. Apríl 2008 |
Ferðaþjónustunni í landinu eru gerð góð skil í blaðinu „Ævintýralandinu Ísland - góða ferð“ sem fylgir Morgunblaðinu í dag, síðasta vetrardag. Þetta er þriðja árið sem Athygli gefur blaðið út, nú sem fyrr í samstarfi við Ferðamálasamtök Íslands. Víða er komið við; Hildigunnur Jörundsdóttir, ferðamálafulltrúi í Fjarðabyggð segir frá áhugaverðum möguleikum til afþreyingar í austasta sveitarfélagi landsins og Svavar Njarðarson veitingamaður í Gullfossi segir frá „lystagóðri“ kjötsúpu sinni.
|
|
Lesa meira...
|
|
Sýning og reynsluakstur á visthæfum bílum á Miðbakka |
|
|
|
Miðvikudagur, 23. Apríl 2008 |
Á morgun, sumardaginn fyrsta, gefst almenningi kostur á að reynsluaka bæði vetnis-, metan- og rafbílum en þá fer fram sýning á Miðbakkanum í Reykjavík á þeim fjölmörgu visthæfu bifreiðum sem komnar eru í umferð hérlendis. Borgarstjóri opnar sýninguna kl. 11 fyrir hádegi og afhendir fulltrúa Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands lyklana að nýjasta bílnum í vetnisflota landsmanna. Því næst verður boðið upp á reynsluakstur og kynningu á mismunandi visthæfum bílum til klukkan 15. Verkefnið er unnið í samstarfi Íslenskrar NýOrku, Bílgreinasambandsins og Reykjavíkurborgar, með öflugum stuðningi Faxaflóahafna.
|
|
Lesa meira...
|
|
Verðlaunamöstrin frá Austurríki og Kóreu |
|
|
|
Miðvikudagur, 23. Apríl 2008 |
Austurrískur arkitekt vann fyrstu verðlaun í alþjóðlegri samkeppni um hönnun nýrra háspennulínumastra sem Landsnet efndi til í samstarfi við Arkitektafélag Íslands. Greint var frá niðurstöðum samkeppninnar og verðlaun afhent í höfuðstöðvum Landsnets í dag.
|
|
Lesa meira...
|
|
Lykilllinn að Almenna lífeyrissjóðnum |
|
|
|
Fimmtudagur, 17. Apríl 2008 |
Lykillinn að Almenna lífeyrissjóðnum var kynntur á ársfundi sjóðsins sem haldinn var á Hótel Nordica í dag. Lykillinn er reiknivél fyrir lífeyrisréttindi sem sjóðfélagar geta tengst í gegnum heimasíðu sjóðsins. Gunnar Baldvinsson framkvæmdastjóri Almenna lífeyrissjóðsins segir Lykilinn fela í sér byltingu í upplýsingagjöf til sjóðfélaga og að með honum skapi Almenni lífeyrissjóðurinn sér skýra sérstöðu meðal lífeyrissjóða hér á landi.
|
|
Lesa meira...
|
|
6% umferðaraukning fyrstu sex mánuðina |
|
|
|
Miðvikudagur, 16. Apríl 2008 |
Umferð í Hvalfjarðargöngum jókst um 6,2% á fyrra helmingi yfirstandandi rekstrarárs Spalar frá sama tímabili í fyrra. Þá fóru tæplega 790.000 bílar um göngin á sex mánuðum en tæplega 840.000 nú.
|
|
Lesa meira...
|
|
Netvari Símans - öruggari netnotkun |
|
|
|
Þriðjudagur, 15. Apríl 2008 |
|
Síminn hefur ákveðið að bjóða ADSL viðskiptavinum sínum á einstaklingsmarkaði ókeypis aðgang að Websense, sem er ein besta netvörn sem völ er á í heiminum í dag. Lausnin hefur fengið nafnið Netvari Símans og er veigamikill liður í að börn geti leitað sér upplýsinga og skemmtunar á Netinu á jákvæðan og öruggan hátt um leið og Netvarinn ver þau gegn viðsjárverðu efni.
|
|
Lesa meira...
|
|
70 ára verkstjórasaga |
|
|
|
Mánudagur, 14. Apríl 2008 |
Í tilefni af 70 ára afmæli Verkstjórasambands Íslands 10. apríl sl. var gefið út veglegt afmælisrit og því dreift með Morgunblaðinu sl. fimmtudag. Blaðið er hlaðið efni; viðtölum við verkstjóra og aðra þá sem tengjast Verkstjórasambandinu. Athygli annaðist útgáfuna og sáu starfsmenn fyrirtækisins alfarið um textagerð, ljósmyndun og umbrot. Augljós miðlun ehf., samstarfsaðili Athygli, annaðist auglýsingaöflun.
|
|
Lesa meira...
|
|
Okkar mál komin út |
|
|
|
Mánudagur, 07. Apríl 2008 |
Víða er komið við í Okkar málum, fréttablaði Geðhjálpar, sem var dreift með 24 stundum sl. laugardag. Sigurður Bogi Sævarsson ritstýrði blaðinu sem unnið var hjá Athygli.
|
|
Lesa meira...
|
|
Viðurkenning fyrir vandaða birgðastýringu lyfja og bóluefna |
|
|
|
Miðvikudagur, 02. Apríl 2008 |
Nýverið hlaut Frans Páll Sigurðsson, fjármála- og birgðastjóri GlaxoSmithKline á Íslandi, viðurkenningu alþjóðlegu GSK samstæðunnar fyrir vandaða birgðastjórn á árinu 2007. Á hverju ári veitir GSK í Norður-Evrópu viðurkenningar fyrir ýmsa þætti birgðastjórnunar en öryggi, gæði og skilvirkni eru lykilatriði við vörustjórnun með lyf og bóluefni. Frans þótti ná frábærum árangri við að tryggja stöðugt og gott aðgengi að lyfjum frá GSK á sínu starfssvæði.
|
|
Lesa meira...
|
|
Uppbókað á fund Al Gore í Háskólabíói |
|
|
|
Sunnudagur, 30. Mars 2008 |
Fullbókað er á opinn fund um umhverfismál með Al Gore fyrrum varaforseta Bandaríkjanna í Háskólabíói þriðjudaginn 8. apríl næst komandi. Fundurinn sem haldinn er á vegum Glitnis og Háskóla Íslands var fyrst auglýstur í blaðaauglýsingu í gær. Strax á hádegi í dag voru allir miðar bókaðir en ósóttum pöntunum verður ráðstafað eftir 4. apríl.
|
|
Lesa meira...
|
|
Nýtt skipurit hjá VÍS |
|
|
|
Fimmtudagur, 27. Mars 2008 |
Nýtt skipurit hefur tekið gildi hjá Vátryggingafélagi Íslands (VÍS). Nýja skipulagið miðar að því að efla enn frekar starfsemi VÍS hér á landi og erlendis en það felur meðal annars í sér tilflutning verkefna og breytingu á verksviði einstakra stjórnenda innan fyrirtækisins.
|
|
Lesa meira...
|
|
Fjölsótt námskeið VÍS og Landbúnaðarháskóla Íslands um öryggi í hestamennsku |
|
|
|
Mánudagur, 10. Mars 2008 |
Mikilvægt er að knapar kunni þá list að detta af hestbaki, láti sig falla mjúklega og taki nokkurs konar kollhnís áður en þeir snerta jörðina. Þannig verður byltan mýkri en ella sem dregur úr hættu á alvarlegum slysum, til dæmis á mænu. Æskilegt er að taka slík atriði inn í skipulagða reiðkennslu og mikilvægt er að efla alla fyrirbyggjandi þætti. Þetta kom m.a. fram á námskeiði um öryggi í hestamennsku sem Vátryggingafélag Íslands hélt um helgina á Hvanneyri í samvinnu við Landbúnaðarháskóla Íslands.
|
|
Lesa meira...
|
|
SORPA fær afhentan metanknúinn lúxusbíl af gerðinni Mercedes Benz E200 |
|
|
|
Sunnudagur, 09. Mars 2008 |
Sorpa bs. hefur fest kaup á einum fullkomnasta og umhverfisvænsta lúxusbíll sem komið hefur hér á göturnar og var hann afhendur framkvæmdastjóra fyrirtækisins á dögunum. Bílinn er af gerðinni Mercedes Benz E200, knúinn tvíbrennihreyfli, og gengur jafnt fyrir metani sem bensíni.
|
|
Lesa meira...
|
|
Bormenn með líf í lúkum |
|
|
|
Föstudagur, 07. Mars 2008 |
Þeir sem vinna við kjarnaborun í Hvalfjarðargöngum eru með lífið í lúkunum, í orðsins fyllstu merkingu. Sumir vegfarendur aka bæði hratt og ógætilega með fram hjá vinnusvæðinu og virða merkingar að vettugi. Einn ók á tilkynningarskilti þar í dag þegar hann reyndi að aka öfugum megin fram úr flutningabíl upp brekkuna að norðan.
|
|
Lesa meira...
|
|
Búseti á Norðurlandi lýkur við stærsta fjölbýlishús landsbyggðarinnar |
|
|
|
Fimmtudagur, 06. Mars 2008 |
Búseti á Norðurlandi hefur afhent 58 nýjar íbúðir í nýju fjölbýlishúsi félagsins við Kjarnagötu í Naustahverfi á síðustu 6 mánuðum. Um er að ræða stærsta fjölbýlishús utan höfuðborgarsvæðisins og er áætlað að íbúar í húsinu verði rösklega 200 talsins. Á sama byggingarreit við Kjarnagötu og Brekatún er hafin bygging 24 íbúða í viðbót.
|
|
Lesa meira...
|
|
Hagnaður Sparisjóðs Svarfdæla 107 milljónir árið 2007 |
|
|
|
Fimmtudagur, 06. Mars 2008 |
Hagnaður Sparisjóðs Svarfdæla nam 107 milljónum króna á árinu 2007, samanborið við 902 milljónir á árinu 2006. Vaxtatekjur sparisjóðsins á árinu 2007 námu 362 millj. kr. og vaxtagjöld 299 millj. kr. Hreinar vaxtatekjur námu því 63 millj. kr. samanborið við 114 millj. kr. á árinu 2006.
|
|
Lesa meira...
|
|
Keilusalur opnaður á Akureyri í fyrsta sinn |
|
|
|
Fimmtudagur, 06. Mars 2008 |
Keilan, fyrsti keilusalurinn á Akureyri, var opnaður í dag. Í salnum eru átta brautir og hafa sérhæfðir starfsmenn frá Bandaríkjunum unnið að uppsetningu tækja síðustu vikur. Keilan Akureyri og Kaffi Jónsson eru rekin samhliða af sömu eigendum í svokölluðu glerhúsi við Hafnarstræti en aðaleigendur eru þau Dagný Ingólfsdóttir og Þorgeir Jónsson.
|
|
Lesa meira...
|
|
80 ár frá því mjólkurvinnsla hófst á Akureyri |
|
|
|
Fimmtudagur, 06. Mars 2008 |
Í dag, 6. mars, eru tímamót í atvinnusögu Akureyrar en liðin eru 80 ár frá því mjólkurvinnsla hófst í bænum. Þennan dag fyrir 80 árum var tekið á móti mjólk í fyrsta skipti hjá Mjólkursamlagi Kaupfélags Eyfirðinga en vinnslan var til húsa við Grófargil, þar sem nú er veitingastaðurinn Friðrik V. MS Akureyri mun sérstaklega fagna þessum tímamótum síðar á árinu en í tilefni dagsins var starfsfólki fyrirtækisins boðið upp á afmælistertu í morgunkaffinu í morgun.
|
|
Lesa meira...
|
|
Um eldvarnir í Hvalfjarðargöngum |
|
|
|
Miðvikudagur, 05. Mars 2008 |
|
Laugardaginn 1. mars síðastliðinn birti Morgunblaðið grein um eldvarnir í Hvalfjarðargöngum eftir Gísla Árnason rannsóknarlögreglumann. Sama grein hafði áður birst í Skessuhorni í tilefni kjarnaborana í göngunum. Greinarhöfundur gefur sér forsendur sem benda til þess að hann skorti upplýsingar um staðreyndir. Skal nú reynt að bæta úr því.
|
|
Lesa meira...
|
|
Eignir SL jukust um 8.200 milljónir kr. árið 2007 |
|
|
|
Fimmtudagur, 28. Febrúar 2008 |
Rekstur Sameinaða lífeyrissjóðsins hefur gengið mjög vel undanfarin ár og er staða hans sterk þrátt fyrir óhagstæða þróun hlutabréfamarkaða á síðasta ári. Eignir sjóðsins við áramót námu 96,6 milljörðum króna og höfðu hækkað um 8,2 milljarða milli ára eða um 9,3%. Þannig voru eignir umfram áfallnar skuldbindingar 7.119 milljónir króna eða 8,0% og eignir umfram heildarskuldbindingar voru 2,8% í lok árs 2007. Á síðastliðnu ári var nafnávöxtun eigna sjóðsins 5,9% sem er jafnt hækkun vísitölu neysluverðs á árinu. Meðal raunávöxtun sl. 5 ára er 7,5%.
|
|
Lesa meira...
|
|
Lyfjaver opnar eitt tæknivæddasta apótek Evrópu |
|
|
|
Miðvikudagur, 27. Febrúar 2008 |
Á morgun mánudaginn 28. janúar opnar Lyfjaver nýtt apótek að Suðurlandsbraut 22 í Reykjavík. Nýja apótekið er í sama húsi og eldra apótek en aðstaða er öll mun stærri og betri bæði fyrir viðskiptavini og starfsfólk.
|
|
Lesa meira...
|
|
VÍS og Landbúnaðarháskóli Íslands efna til öryggisnámskeiðs í hestamennsku |
|
|
|
Miðvikudagur, 27. Febrúar 2008 |
Vátryggingafélag Íslands stendur fyrir námskeiði um öryggismál í hestamennsku í samvinnu við Landbúnaðarháskóla Íslands laugardaginn 8. mars næstkomandi á Hvanneyri og í hestamiðstöð Landbúnaðarháskólans að Mið-Fossum í Borgarfirði. Námskeiðið er tvíþætt og ætlað hestamönnum á öllum aldri en ekki síst þeim sem bjóða upp á hestaferðir og reiðkennslu.
|
|
Lesa meira...
|
|
EJS Akureyri og Akureyrarbær semja um tölvubúnað og þjónustu til fimm ára |
|
|
|
Þriðjudagur, 26. Febrúar 2008 |
Forsvarsmenn Akureyrarbæjar og EJS hafa undirritað samning um kaup bæjarins á tölvubúnaði og þjónustu sem því tengist til næstu fimm ára. Um er að ræða stærsta samning EJS Akureyri hingað til en Akureyrarbær er með um 1000 tölvur í rekstri. Tölvurnar sjálfar koma frá Dell og áttu forsvarsmenn Dell beina aðkomu að undirbúningi samningsins með verðtilboði sem skilar Akureyrarbæ verulegum ávinningi.
|
|
Lesa meira...
|
|
Mjólka kaupir Vogabæ og flytur starfsemina í Hafnarfjörð |
|
|
|
Fimmtudagur, 21. Febrúar 2008 |
Mjólka hefur fest kaup á matvælafyrirtækinu Vogabæ og hefur mjólkurstöð Mjólku verið flutt í verksmiðjuhúsnæði Vogabæjar við Eyrartröð 2a í Hafnarfirði. Vogabær og Mjólka munu halda áfram að framleiða undir eigin merkjum. Kaupin á Vogabæ fela í sér umtalsverð samlegðaráhrif í framleiðslu og dreifingu á afurðum beggja fyrirtækja. Vogabær er leiðandi í framleiðslu á sósum og ídýfum hér á landi og selur framleiðslu sína undir merkjum Vogabæjar og E. Finnsson. Fráfarandi eigendur og stjórnendur Vogabæjar munu starfa áfram hjá fyrirtækinu.
|
|
Lesa meira...
|
|
SVÞ ganga frá sátt við Samkeppniseftirlitið |
|
|
|
Fimmtudagur, 14. Febrúar 2008 |
SVÞ-Samtök verslunar og þjónustu hafa gengið frá sátt við Samkeppniseftirlitið um að greiða 1 milljón króna í sekt fyrir að hafa átt þátt í að leysa álitamál um hvernig haga skyldi merkingum á svokölluðum forverðmerktum vörum í tengslum við lækkun virðisaukaskatts af matvælum þann 1. mars á síðasta ári.
|
|
Lesa meira...
|
|
MS veitti ábúendum í Stærri-Árskógi viðurkenningu |
|
|
|
Þriðjudagur, 12. Febrúar 2008 |
Í dag var mjólk tekin í Stærri-Árskógi í Dalvíkurbyggð, innan við þremur mánuðum eftir stórbruna þar sem öll útihús á bænum gjöreyðilögðust og um 200 nautgripir drápust. Við þetta tækifæri veitti MS ábúendunum, þeim Guðmundi Geir Jónssyni og Freydísi Ingu Bóasdóttur, viðurkenningu fyrir stórhug og dugnað við uppbyggingu í kjölfar brunans en þau hafa endurbyggt um þriðjung af áætlaðri aðstöðu.
|
|
Lesa meira...
|
|
RES Orkuskólinn á Akureyri settur í fyrsta sinn |
|
|
|
Mánudagur, 11. Febrúar 2008 |
RES Orkuskólinn (RES - the School for Renewable Energy Science) var settur í fyrsta sinn á Akureyri síðastliðinn laugardag. Undanfarin fjögur ár hefur verið unnið að uppbyggingu skólans en RES er einkarekin mennta- og vísindastofnun sem mun byggja starfsemi sína á forystu Íslendinga á sviði orkumála.
|
|
Lesa meira...
|
|
Nýr CATERPILLAR 160M veghefill frá Vélasviði HEKLU |
|
|
|
Fimmtudagur, 07. Febrúar 2008 |
Stjórnendur Vélasviðs HEKLU afhentu á dögunum fyrsta CATERPILLAR 160M veghefilinn sem seldur er hér á landi. „Þessi nýja gerð veghefla hefur vakið mikla athygli vinnuvélaeigenda og nú þegar liggja fyrir nokkrar pantanir á tækjum sem við munum afhenda á næstu mánuðum,“ segir Ásmundur Jónsson framkvæmdastjóri Vélasviðsins.
|
|
Lesa meira...
|
|
Íslendingar setja ný viðmið um MND rannsóknir |
|
|
|
Fimmtudagur, 24. Janúar 2008 |
Fimmudaginn 24. janúar lauk formlega söfnuninni „Dollar á mann“ sem MND félagið hefur gengist fyrir til að safna fé til rannsókna á MND sjúkdómnum. Markmið söfnunarinnar var að safna jafngildi eins Bandaríkjadollara á hvern Íslending til rannsókna á þessum banvæna sjúkdómi. Miðað við fjölda Íslendinga 1. desember síðast liðinn er ljóst að þetta markmið hefur nú náðst því um 21 milljón króna hefur nú safnast.
|
|
Lesa meira...
|
|
GlaxoSmithKline Gullbakhjarl Læknadaga frá upphafi |
|
|
|
Miðvikudagur, 23. Janúar 2008 |
GlaxoSmithKline er Gullbakhjarl hinna árlegu Læknadaga sem haldnir eru dagana 21.-25. janúar. Læknadagar eru skipulagðir af Fræðslustofnun Læknafélags Íslands og er þetta í 14. sinn sem þeir eru haldnir. GSK hefur verið aðalstyrktaraðili Læknadaga frá því þeir voru fyrst haldnir árið 1994. Læknadagar er stærsta íslenska læknaþingið sem haldið er hér á landi og hefur aðsókn að þeim aukist jafnt og þétt í gegnum árin. Í ár er búist við að um 900 gestir sæki Læknadaga sem að þessu sinni verða haldnir á Hótel Sögu.
|
|
Lesa meira...
|
|
GSK kynnir bóluefni gegn leghálskrabbameini |
|
|
|
Miðvikudagur, 23. Janúar 2008 |
„Það má segja með þessu málþingi séum við að kynna til sögunnar fyrir íslenskum læknum og heilbrigðisstarfsfólki nýtt bóluefni gegn leghálskrabbameini, Cervarix frá GSK, en það var skráð hér á landi og annars staðar í Evrópu í lok nóvember 2007,“ segir Sigríður Jakobínudóttir hjá GSK um málþing um bólusetningar gegn leghálskrabbameini sem GSK gengst fyrir á Læknadögum í dag, miðvikudag.
|
|
Lesa meira...
|
|
210 milljónum króna ráðstafað úr Aurora velgerðasjóði |
|
|
|
Miðvikudagur, 23. Janúar 2008 |
Stjórn Aurora velgerðasjóðs kynnti í dag þá ákvörðun sína að ráðstafa alls 210 milljónum króna til fyrstu styrktarverkefna sjóðsins. Þetta var tilkynnt á samkomu í Þjóðminjasafninu að viðstöddum fjölda gesta.
Athygli ehf. vann undirbúningi samkomunnar ásamt aðstandendum velgerðarsjóðsins og annaðist tilheyrandi fjölmiðlasamskipti ásamt því að taka þátt í að setja upp nýja heimasíðu sjóðsins sem opnuð var í dag.
|
|
Lesa meira...
|
|
Sveitarfélög á Vesturlandi vilja hefjast handa strax við tvöföldun vegs og ganga |
|
|
|
Föstudagur, 04. Janúar 2008 |
|
Sveitarstjórnir Skorradalshrepps, Hvalfjarðarsveitar, Borgarbyggðar og Akraneskaupstaðar þrýsta á stjórnvöld að hefjast handa strax við undirbúning að tvöföldun vegar um Kjalarnes og ganga undir Hvalfjörð. Þetta kemur fram í ályktun sem fulltrúar þeirra samþykktu á dögunum.
|
|
Lesa meira...
|
|
Ársumferðin í Hvalfjarðargöngum í fyrsta sinn tvær milljónir bíla |
|
|
|
Föstudagur, 04. Janúar 2008 |
|
Alls fóru um 2.030.000 bílar um Hvalfjarðargöng á árinu 2007 eða 9,3% fleiri en árið 2006. Þetta er í fyrsta sinn sem ársumferðin nær tveimur milljónum bíla frá því göngin voru opnuð og hefur raunar tvöfaldast frá árinu 1999!
|
|
Lesa meira...
|
|
Björn Ingi til Saltkaupa |
|
|
|
Miðvikudagur, 02. Janúar 2008 |
Saltkaup eru umsvifamesta fyrirtæki landsins í viðskiptum með salt til framleiðslu sjávarafurða og íseyðingar á götum. Saltkaup selja jafnframt umbúðir fyrir sjávarútveginn, tunnur og íbætiefni fyrir rækju og síld, og fleira. Höfuðstöðvar fyrirtækisins eru í Hafnarfirði og starfsstöðvar á vegum þess eru í Grundarfirði, á Flateyri, Dalvík, Húsavík, Höfn, Djúpavogi, í Vestmannaeyjum og Grindavík. Þá er fyrirtækið með dótturfélag í Færeyjum, Smápartafélagið Saltkeyp.
|
|
Lesa meira...
|
|
|