|
|
|
Hvassafell í erfiðleikum í Rotterdam |
|
|
|
Mánudagur, 29. Desember 2008 |
|
Við losun Hvassafells – leiguskips Samskipa – í Rotterdam í gær kom í ljós að talsverður sjór hafði komist í eina lest skipsins þar sem m.a. voru gámar sem innihalda efnið „Aluminium Dross“, sem við snertingu við vatn hvarfast og veldur þá hita og jafnvel íkveikju.
|
|
Lesa meira...
|
|
Yfirlýsing frá KPMG |
|
|
|
Mánudagur, 22. Desember 2008 |
|
Í tilefni af fréttaskýringu í Morgunblaðinu laugardaginn 20. desember og Staksteinum blaðsins sunnudaginn 21. desember lýsir stjórn KPMG á Íslandi yfir furðu sinni á þessum skrifum blaðsins og spyr sig hvort Morgunblaðið sé í ófrægingarherferð á hendur félaginu. Stjórn KPMG sér sig því knúna til að senda frá sér yfirlýsingu þar sem órökstuddum ásökunum og dylgjum Morgunblaðsins er harðlega mótmælt. Við lýsum ábyrgð á hendur Morgunblaðinu, einum virtasta fjölmiðli landsins og furðum okkur á svo óvandaðri blaðamennsku.
|
|
Lesa meira...
|
|
Styrktarsjóðurinn Faðmur fær jólastyrk Lyfjavers |
|
|
|
Fimmtudagur, 18. Desember 2008 |
|
Katrín Júlíusdóttir alþingismaður og formaður styrktarsjóðsins Faðms tók í gær við jólastyrk Lyfjavers í húsakynnum apóteksins að Suðurlandsbraut 22. Faðmur, sem er styrktarsjóður á vegum samtakanna Heilaheilla, styrkir foreldra sem hafa fengið heilablóðfall og sem eru með börn 18 ára og yngri á framfæri sínu.
|
|
Lesa meira...
|
|
15 milljónir ökutækja undir Hvalfjörð frá upphafi |
|
|
|
Föstudagur, 12. Desember 2008 |
|
Alls hafa um 15 milljónir ökutækja farið um Hvalfjarðargöng á tíu árum eða frá því þau voru opnuð sumarið 1998. Umferðin jókst jafnt og þétt ár frá ári en í efnahagsþrengingunum nú fækkar bílum á þjóðvegum landsins og þar með í göngunum.
|
|
Lesa meira...
|
|
Nýir stjórnarmenn Spalar |
|
|
|
Föstudagur, 12. Desember 2008 |
|
Breytingar urðu í stjórnum beggja Spalarfélaganna á aðalfundum þeirra nú og vel að merkja: tvö félög er til um Hvalfjarðargöng og heita bæði Spölur. Upprunalega félagið, stofnað á Akranesi í janúar 1991, varð að eignarhaldsfélagi í desember 1995 og hefur það hlutverk að eiga eina hlutabréfið í einkahlutafélaginu Speli sem þá var stofnað. Þetta var gert á sínum tíma til að auðvelda veðsetningu hlutafjár í Speli (eitt hlutafjárskírteini í stað margra).
|
|
Lesa meira...
|
|
Tillaga um að banna hefðbundnar ljósaperum innan Evrópusambandsins |
|
|
|
Fimmtudagur, 11. Desember 2008 |
|
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur lagt til að hefðbundnar ljósaperum, svokallaðar glóperur, verði bannaðar og að þeim verði á næstu árum skipt út fyrir sparperur og aðra ljósgjafa sem nota minni orku.
|
|
Lesa meira...
|
|
Landsnet undirbýr styrkingu og endurnýjun raforkuflutningskerfisins á Suðvesturlandi |
|
|
|
Þriðjudagur, 02. Desember 2008 |
|
Landsnet undirbýr endurnýjun og styrkingu raforkuflutningskerfisins á Suðvesturlandi. Framkvæmdakostnaður er áætlaður um 22 milljarðar króna á verðlagi í ágúst 2008 og mannaflaþörf um 380 ársverk. Drög að matsáætlun vegna framkvæmdanna hafa nú verið lögð fram til kynningar og er athugasemdafrestur til 16. desember næstkomandi.
|
|
Lesa meira...
|
|
Samskip útskrifa starfsfólk úr íslenskunámi |
|
|
|
Miðvikudagur, 26. Nóvember 2008 |
|
Á fjórða tug starfsmanna af erlendum uppruna hjá Samskipum luku í vikunni námskeiði í íslensku sem félagið stendur fyrir og hefur notið styrks frá menntamálaráðuneytinu. Þetta er þriðja önnin sem markvisst íslenskunám fer fram í vinnutíma fyrir alla erlenda starfsmenn Samskipa.
|
|
Lesa meira...
|
|
Samskip virkja auð kvenna |
|
|
|
Þriðjudagur, 25. Nóvember 2008 |
Hjá Samskipum, sem á dögunum hlutu Starfsmenntaverðlaunin 2008 í hópi fyrirtækja, er nýlokið 10 vikna leiðtoganámskeiði fyrir konur til að bæta hæfni í mannlegum samskiptum og efla sjálfstraust og tengslanet.
|
|
Lesa meira...
|
|
Athygli sér um Okkar mál |
|
|
|
Fimmtudagur, 20. Nóvember 2008 |
|
Athygli sá um útgáfu á Okkar málum, blaði Geðhjálpar, sem fylgdi DV sl. laugardag. Efni blaðsins sem er 24 síður var fjölbreytt að vanda. Aðalviðtalið að þessu sinni er við Garðar Sölva Helgason, sem hefur barist við geðklofa í áratugi, en náð býsna góðum árangri í baráttunni við sjúkdóm sinn.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
|
|
Bls. 1 af 9 |