Forsíða Fréttir Fréttir 2007 Hátíð trjánna - fjáröflun Barnaheilla: 17 milljónir söfnuðust á einu kvöldi
Hátíð trjánna - fjáröflun Barnaheilla: 17 milljónir söfnuðust á einu kvöldi Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Þriðjudagur, 13. Nóvember 2007
Hátíð trjánna - fjáröflun BarnaheillaBarnaheill stóðu fyrir sínum árlega fjáröflunarkvöldverði, Hátíð trjánna - list í þágu barna, á Hilton Reykjavík Nordica s.l. föstudag. Þar voru boðin upp 11 listaverk sem öll seldust og nam ágóði kvöldsins 17 milljónum króna. Mun hann óskiptur renna til verkefna Barnaheilla hérlendis og erlendis. Hæsta verð fékkst fyrir verkið Skugga eftir Steinunni Þórarinsdóttur en það seldist á 2,5 milljónir króna.

Petrína Ásgeirsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla, segir árangur kvöldsins hafa verið langt umfram væntingar. „Samkoman tókst einstaklega vel og skemmtu gestirnir, sem voru um 190 talsins, sér ákaflega vel. Öll verkin seldust og sum fyrir metfé. Ég vil koma á framfæri þökkum til allra þeirra sem lögðu okkur lið í þessu frábæra fjáröflunarátaki en árangurinn veitir okkur vissu fyrir því að fólk kann að meta það mikilvæga starf sem Barnaheill vinna,“ sagði Petrína í samtali. Hún sagði áherslur Barnaheilla í verkefnum hérlendis vera á réttindi barna, baráttu gegn kynferðislegu ofbeldi á börnum, geðheilbrigðismál og málefni barna innflytjenda. Áherslur Barnaheilla í erlendum verkefnum væru á grunnmenntun barna, fyrst og fremst í stríðshrjáðum löndum og styddu Barnaheill m.a. við verkefni í Kambódíu og Norður- Úganda.

Dagskrá kvöldsins var vegleg með glæsilegum kvöldverði, skemmtidagskrá og uppboði á listaverkunum. Allir sem fram komu á kvöldinu gáfu vinnu sína að öllu leyti eða að hluta til. Veislustjóri var Gísli Einarsson og heiðursgestur kvöldsins var Sir Mike Aaronson fyrrum framkvæmdastjóri Barnaheilla í Bretlandi. Uppboðshaldarar voru Alp Mehmet sendiherra Bretlands og Harpa Þórsdóttir listfræðingur. Félagar úr Lionsklúbbnum Nirði aðstoðuðu við uppboðið. Tónlistarmennirnir, Elísabet Waage, Laufey Sigurðardóttir, Björg Þórhallsdóttir og Steinunn Birna Ragnarsdóttir komu fram og vöktu mikla lukku og síðast en ekki síst dúettinn Hundur í óskilum.

Á Hátíð trjánna voru boðin upp listaverk eftir Alistair Macintyre, Brian Pilkington, Finnboga Pétursson, Helga Gíslason, Huldu Hákon, Jónas Braga Jónasson, Sigurð Guðmundsson, Steinunni Þórarinsdóttur, Svövu Björnsdóttur, Vigni Jóhannsson og Þórdísi Öldu Sigurðardóttur. Skipuleggjendur Hátíðar trjánna voru, auk starfsmanna Barnaheilla, Dögg Káradóttir, Elaine Mehmet, Elsa Einarsdóttir, Helga Sverrisdóttir, Inga Sónes og Ragnhildur Skarphéðinsdóttir og unnu þær allt sitt starf í sjálfboðavinnu. Styrktaraðilar viðburðarins voru verslunin Sævar Karl, Hilton Reykjavik Nordica, Icelandair, Blómaval, Athygli og PR.