|
Töltkeppni í verslunarmiðstöð |
|
|
|
Fimmtudagur, 15. Nóvember 2007 |
Í tilefni af útgáfu 30 ára afmælisrits Eiðfaxa verður efnt til afmælishátíðar í Vetrargarðinum í Smáralind á milli kl.16:00 og 19:00 á morgun föstudag 16. nóvember. Þar munu margir af fremstu knöpum landsins úr Meistaradeild VÍS sýna hesta sína og taka þátt í keppni í hægatölti. Þetta verður í fyrsta skipti sem slík keppni fer fram innanhúss í verslunarmiðstöð hér á landi.
Meðal hestamanna sem fram koma á hátíðinni verður Valdimar Bergstað en hann var kjörinn efnilegasti knapinn árið 2007 á uppskeruhátíð hestamanna um síðustu helgi. Þá mun Þorvaldur Árni Þorvaldsson reiðkennari verða með sýnikennslu í grunnatriðum reiðmennskunnar. Leitast verður við að bjóða upp á spennandi og skemmtilega dagskrá þar sem lögð er áhersla á að skemmta bæði hestamönnum sem öðrum. Settir verða upp sýningarbásar í Vetrargarðinum þar sem fyrirtæki sýna vörur sem tengjast hestamennsku og félagasamtök hestamanna kynna starfsemi sína. Aðgangur að afmælishátíðinni er ókeypis og er hægt að nálgast dagskrá hennar á vef Eiðfaxa: www.eidfaxi.is |