|
Hreinn Friðfinnsson er heiðursverðlaunahafi Myndstefs 2007 |
|
|
|
Fimmtudagur, 15. Nóvember 2007 |
Hreinn Friðfinnsson myndlistarmaður er handhafi heiðursverðlauna Myndstefs árið 2007 sem forseti Íslands afhenti við athöfn í Listasafni Íslands í dag. Edda Jónsdóttir í Gallerí I8 veitti verðlaununum viðtöku í fjarveru Hreins.
Viðurkenninguna hlýtur Hreinn fyrir einstakt framlag sitt til íslenskrar myndlistar en hluta þess gefur nú að líta á yfirlitssýningu í Listasafni Reykjavíkur sem upphaflega var sett upp í Serpentine Gallery í Lundúnum í sumar.
Heiðursverðlaun Myndstefs, Myndhöfundasjóðs Íslands, nema samtals einni milljón króna. Helmingur verðlaunaupphæðarinnar kemur úr sjóðum Myndstefs en Landsbanki Íslands, sem er fjárhagslegur bakhjarl heiðursverðlaunanna, leggur til hinn helminginn. Þetta er í þriðja sinn sem heiðursverðlaunum Myndstefs er úthlutað. Dómnefnd skipuðu að þessu sinni Áslaug Thorlacius myndlistarmaður, Björgólfur Guðmundsson, stjórnarformaður Landsbanka Íslands, og Margrét Harðardóttir arkitekt.
Einstakur þokki og fegurð „Verk Hreins eru hrífandi og einföld, full af ljóðrænum vísunum og heimspekilegum vangaveltum. Ásýnd hlutanna skiptir ekki höfuðmáli heldur andinn og hin tæra hugsun enda snúast verkin gjarnan um eitthvað loftkennt og ósnertanlegt einsog ljósið, vindinn eða það sem ekki er. Þrátt fyrir - og kannski einmitt fyrir þessa ákveðnu naumhyggju - búa þau yfir einstökum þokka og fegurð,“ segir m.a. í niðurstöðu dómnefndarinnar, sem var einróma í afstöðu sinni að veita Hreini heiðursverðlaun Myndstefs að þessu sinni.
Hreinn Friðfinnsson fæddist í Dölum árið 1943 en býr nú og starfar í Amsterdam. Hreinn á að baki langan og fjölbreyttan myndlistarferil. Hann var einn stofnenda og meðlima SÚM-hreyfingarinnar og á 8. áratugnum vann hann undir áhrifum hugmyndalistar, en hefur síðan unnið í fleiri miðla með blandaðri tækni.
Auk Hreins voru eftirtaldir myndhöfundar einnig tilnefndir til heiðursverðlauna Myndstefs 2007: Halldór Baldursson teiknari, Ilmur María Stefánsdóttir, myndlistarmaður og leikmyndahöfundur, Katrín Elvarsdóttir ljósmyndari, Ólöf Nordal myndlistarmaður og Pálmar Kristmundsson arkitekt.
Um Myndstef Innan vébanda Myndstefs eru á fjórtánda hundrað manns í sex aðildarfélögum, Sambandi íslenskra myndlistarmanna, Ljósmyndarafélagi Íslands, Félagi íslenskra teiknara, Félagi grafískra teiknara, Arkitektafélagi Íslands og Félagi leikmynda- og búningahöfunda. Einnig eiga aðild að Myndstefi allmargir erfingjar að myndhöfundarétti.
 |