Forsíða Fréttir Fréttir 2007 Ferðamálasamtök Íslands vilja fresta flutningi
Ferðamálasamtök Íslands vilja fresta flutningi Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Mánudagur, 19. Nóvember 2007
Á aðalfundi Ferðamálasamtaka Íslands sem haldin var í síðustu viku var samþykkt ályktun þar sem þeim eindregnu tilmælum er beint til Alþingis að fresta fyrirhuguðum flutningi á málefnum ferðamála frá samgönguráðuneyti til iðnaðarráðuneytis. Það er mat samtakanna að málið þarfnist betri undirbúnings. Ályktun samtakanna um málið er svohljóðandi.

„Aðalfundur Ferðamálasamtaka Íslands haldin á Flúðum 15. nóvember 2007 vekur sérstaka athygli á fyrirætlunum Ríkisstjórnar Íslands um uppstokkun ráðuneyta og þá sérstaklega á flutningi málefna ferðamála frá Samgönguráðuneyti til Iðnaðarráðuneytis.

Undanfarna áratugi hafa átt sér stað stórstígar framfarir á öllum sviðum málefna ferðaþjónustu og treystir aðalfundurinn á að þau verðmæti, sú reynsla og þekking, sem orðið hafa til, fái að þróast áfram til eflingar ferðaþjónustunni.

Aðalfundurinn beinir þeim eindregnu tilmælum til Alþingis Íslendinga að fresta fyrirhuguðum breytingum t.d. um eins árs skeið og nýta þann tíma til þess að samræma og undirbúa nauðsynlega þætti þessa mikilvæga máls betur. Einnig er mikilvægt að trygga aukið fjármagn til framkvæmdarinnar og atvinnugreinarinnar.“