Forsíða Fréttir Fréttir 2007 Jólaþorp í Hafnarfirði
Jólaþorp í Hafnarfirði Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Miðvikudagur, 21. Nóvember 2007
jólaþorp í HafnarfirðiÁ morgun, fimmtudaginn 22. nóvember, verður veglegu jólablaði um Hafnarfjörð dreift til lesenda Morgunblaðsins svo og í hvert hús í bænum. Þetta er annað árið í röð sem slíkt blað kemur út en það er í tilefni af opnun Jólaþorpsins á Thorsplani nk. laugardag. Athygli gefur blaðið út í samvinnu við Hafnarfjarðarbæ og sáu starfsmenn félagsins um alla efnisöflun, sölu auglýsinga og umbrot.

Meðal efnis í blaðinu eru viðtöl við nokkra aðila sem verða með sölubása í Jólaþorpinu, rætt er við sr. Braga Ingibergsson sóknarprest í Víðstaðakirkju, litið er inn í leikskólann Smáralund, fjallað er um fyrirbrigðið Syngjandi jól, rætt við Lúðvík Geirsson bæjarstjóra og Björgvin Halldórsson tónlistarmann með meiru. Þá er viðtal við bæjarlistamann Hafnarfjarðar, Jónínu Guðnadóttur, fjallað um 100 ára afmæli bæjarins á næsta ári og rætt við rekstraraðila í Strandgötunni. Fjölmargir Hafnfirðingar segja frá helstu kostum bæjarins, kíkt er við á bókasafninu og í listagalleríi við Linnetsstíg - og er þá aðeins fátt upp talið. Í blaðinu er rætt við hátt í 70 einstaklinga og segir það nokkuð um fjölbreytnina.

Hafnarfjörður - Velkomin í Jólaþorpið er dreift til áskrifenda Morgunblaðsins um allt land en auk þess fer blaðið til  allra heimila og fyrirtækja í Hafnarfirði. Umsjón og ábyrgð með útgáfu fyrir hönd Athygli hafði Sigurður Bogi Sævarsson blaðamaður en Marín Guðrún Hrafnsdóttir og Ásbjörg Una Björnsdóttir höfðu hönd í bagga með útgáfunni fyrir hönd Hafnarfjarðarbæjar.