| Gestum boðið að mála - Listasafn Árnesinga bryddar upp á nýjungum |
|
|
| Fimmtudagur, 22. Nóvember 2007 |
Stefnumót við safneign, - listir, leikur og lærdómur er heiti nýrrar sýningar í Listasafni Árnesinga sem hefst laugardaginn 24. nóvember nk. kl. 15. Á sýningunni eru valin verk úr eigu safnsins, að mestu leyti úr gjöf Bjarnveigar Bjarnadóttur og sona.Flest verkin eru unnin á fyrri hluta og um miðbik síðustu aldar og eru höfundar þeirra þrjátíu talsins. Má þar nefna m.a. Ásgrím Jónsson, Kjarval, Gunnlaug Scheving, Þorvald Skúlason, Jóhann Briem, Hörð Ágústsson, Gerði Helgadóttur, Hildi Hákonardóttir, Gunnar Örn og fleiri. Auk þess að njóta verkanna á sýningunni er bryddað upp á þeirri nýbreytni að bjóða gestum upp á að taka sér liti í hönd og spreyta sig. Leitað var til tveggja myndlistakennara með langan og fjölbreyttan feril í sjónlistum, þeirra Katrínar Briem og Margrétar Zophoníasardóttur, um aðstoð og fjórar myndir valdar sem útgangspunktur fyrir þessar tilraunir. Um er að ræða myndir eftir Ásgrím Jónsson, Gunnlaug Scheving, Jóhann Briem og Snorra Arinbjarnar sem eiga ýmislegt sameiginlegt, þó svo viðfangsefni, nálgun, og stílar séu mismunandi. Myndlistarkennari verður til staðar í safninu kl. 14-16 á sunnudaginn kemur, 24. nóvember, og laugardaginn 8. desember, og leiðbeinir þeim sem þess óska. Eftir áramót verður myndmenntakennari með leiðbeiningar annan hvorn sunnudag en sýningin stendur til 17. febrúar 2008. Listasafn Árnesinga er við Austurmörk 21 í Hveragerði. Safnið er opið fimmtudaga til sunnudaga, frá kl. 12 - 18 en það verður lokað yfir jól og áramót, frá og með 16. desember - 16. janúar. Aðgangur að Listasafni Árnesinga er ókeypis. |