|
Samskip semja við Sjóvá um vátryggingar |
|
|
|
Miðvikudagur, 28. Nóvember 2007 |
Samskip og Sjóvá hafa gert með sér samning um að Sjóvá annist allar vátryggingar Samskipa hér á landi. Jafnframt sameina félögin krafta sína á sviði forvarna með það að markmiði að fækka enn frekar slysum á þjóðvegum landsins og auka öryggi vegfarenda.
Þó svo að tjónum á þjóðvegum landsins hafi fækkað verulega með öflugu forvarnarstarfi á síðastliðnum tveimur árum kallar aukinn umferðarþungi á enn frekari aðgerðir í forvarnarmálum. Þar ætla Samskip að verða leiðandi afl og hefur félagið þegar sett sér ítarlega frovarnaráætlun, í samstarfi við Sjóvá-Forvarnarhúsið.
Bæði Samskip og Sjóvá vænta mikils af samstarfinu en náin samvinna bílstjóra Samskipa, sem sumir hverjir eru reyndustu ökumenn landsins með áratuga ökureynslu að baki, og starfsfólks Sjóvá-Forvarnarhússins er forsenda þess að forvarnastarfið skili tilætluðum árangri.
Landflutningar-Samskip, innanlandsdeild Samskipa, er leiðandi fyrirtæki í landflutningum á Íslandi með fjölda flutningabíla í ferðum alla daga ársins í þéttriðnu þjónustuneti sem nær til allra byggðarlaga. Miðstöðin er í Reykjavík en afgreiðslustaðir eru í öllum landsfjórðungum auk umboðsmanna um land allt.
Sjóvá er í fararbroddi í forvörnum, meðal annars forvörnum er tengjast umferðinni, og annast Sjóvá-Forvarnahúsið forvarnaþjónustu með fyrirtækjum, stofnunum og sveitarfélögum með góðum árangri.
 |