Forsíða Fréttir Fréttir 2007 Samið um sölu á 150 þúsund OSRAM perum
Samið um sölu á 150 þúsund OSRAM perum Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Miðvikudagur, 05. Desember 2007
Nýlega var gengið frá samningi milli Volta hf, umboðsaðila fyrir OSRAM á Íslandi og fyrirtækja innan Samorku, sem eru samtök orku- og veitufyrirtækja, um sölu á um 50 þúsund OSRAM ljósaperum árlega næstu þrjú árin. Samningurinn sem gildir til 31. des. 2010 var gerður í kjölfar útboðs sem efnt var til fyrr á þessu ári en alls bárust þá 8 tilboð frá 7 fyrirtækjum.

Gert er ráð fyrir að hægt verði að framlengja samninginn um tvö ár. Um er að ræða allar perur sem Samorkufyrirtækin munu nota næstu þrjú árin og er stór hluti þeirra til götulýsingar. Þetta er stærsti einstaki samningur um sölu á ljósaperum sem Volti hefur gert til þessa en um er að ræða endingargóðar hágæða perur af mörgum gerðum. Samorkufyrirtækin sem að samningnum standa eru Hitaveita Suðurnesja í Reykjanesbæ, Norðurorka á Akureyri, Orkubú Vestfjarða á Ísafirði og Orkuveita Reykjavíkur í Reykjavík.