|
Samskip kaupa alþjóðlegu frystivöru- og flutningsmiðlunina ICEPAK |
|
|
|
Fimmtudagur, 29. Nóvember 2007 |
Samskip hafa keypt frystivöru- og flutningsmiðlunina ICEPAK sem er með víðtæka alþjóðlega starfsemi og skrifstofur á Bretlandseyjum, í Bandaríkjunum og Ástralíu.
|
|
Lesa meira...
|
|
Samskip semja við Sjóvá um vátryggingar |
|
|
|
Miðvikudagur, 28. Nóvember 2007 |
Samskip og Sjóvá hafa gert með sér samning um að Sjóvá annist allar vátryggingar Samskipa hér á landi. Jafnframt sameina félögin krafta sína á sviði forvarna með það að markmiði að fækka enn frekar slysum á þjóðvegum landsins og auka öryggi vegfarenda.
|
|
Lesa meira...
|
|
Gestum boðið að mála - Listasafn Árnesinga bryddar upp á nýjungum |
|
|
|
Fimmtudagur, 22. Nóvember 2007 |
Stefnumót við safneign, - listir, leikur og lærdómur er heiti nýrrar sýningar í Listasafni Árnesinga sem hefst laugardaginn 24. nóvember nk. kl. 15. Á sýningunni eru valin verk úr eigu safnsins, að mestu leyti úr gjöf Bjarnveigar Bjarnadóttur og sona.
|
|
Lesa meira...
|
|
Jólaþorp í Hafnarfirði |
|
|
|
Miðvikudagur, 21. Nóvember 2007 |
Á morgun, fimmtudaginn 22. nóvember, verður veglegu jólablaði um Hafnarfjörð dreift til lesenda Morgunblaðsins svo og í hvert hús í bænum. Þetta er annað árið í röð sem slíkt blað kemur út en það er í tilefni af opnun Jólaþorpsins á Thorsplani nk. laugardag. Athygli gefur blaðið út í samvinnu við Hafnarfjarðarbæ og sáu starfsmenn félagsins um alla efnisöflun, sölu auglýsinga og umbrot.
|
|
Lesa meira...
|
|
Ferðamálasamtök Íslands vilja fresta flutningi |
|
|
|
Mánudagur, 19. Nóvember 2007 |
Á aðalfundi Ferðamálasamtaka Íslands sem haldin var í síðustu viku var samþykkt ályktun þar sem þeim eindregnu tilmælum er beint til Alþingis að fresta fyrirhuguðum flutningi á málefnum ferðamála frá samgönguráðuneyti til iðnaðarráðuneytis.
|
|
Lesa meira...
|
|
Hreinn Friðfinnsson er heiðursverðlaunahafi Myndstefs 2007 |
|
|
|
Fimmtudagur, 15. Nóvember 2007 |
Hreinn Friðfinnsson myndlistarmaður er handhafi heiðursverðlauna Myndstefs árið 2007 sem forseti Íslands afhenti við athöfn í Listasafni Íslands í dag. Edda Jónsdóttir í Gallerí I8 veitti verðlaununum viðtöku í fjarveru Hreins.
|
|
Lesa meira...
|
|
Töltkeppni í verslunarmiðstöð |
|
|
|
Fimmtudagur, 15. Nóvember 2007 |
|
Í tilefni af útgáfu 30 ára afmælisrits Eiðfaxa verður efnt til afmælishátíðar í Vetrargarðinum í Smáralind á milli kl.16:00 og 19:00 á morgun föstudag 16. nóvember. Þar munu margir af fremstu knöpum landsins úr Meistaradeild VÍS sýna hesta sína og taka þátt í keppni í hægatölti. Þetta verður í fyrsta skipti sem slík keppni fer fram innanhúss í verslunarmiðstöð hér á landi.
|
|
Lesa meira...
|
|
Hátíð trjánna - fjáröflun Barnaheilla: 17 milljónir söfnuðust á einu kvöldi |
|
|
|
Þriðjudagur, 13. Nóvember 2007 |
Barnaheill stóðu fyrir sínum árlega fjáröflunarkvöldverði, Hátíð trjánna - list í þágu barna, á Hilton Reykjavík Nordica s.l. föstudag. Þar voru boðin upp 11 listaverk sem öll seldust og nam ágóði kvöldsins 17 milljónum króna. Mun hann óskiptur renna til verkefna Barnaheilla hérlendis og erlendis. Hæsta verð fékkst fyrir verkið Skugga eftir Steinunni Þórarinsdóttur en það seldist á 2,5 milljónir króna.
|
|
Lesa meira...
|
|
Tilnefningar til heiðursverðlauna Myndstefs 2007 |
|
|
|
Mánudagur, 12. Nóvember 2007 |
Sex myndhöfundar keppa að þessu sinni um heiðursverðlaun Myndstefs, myndhöfundasjóðs Íslands, sem forseti Íslands úthlutar. Þetta er í þriðja sinn sem verðlaununum er úthlutað en þau eru veitt fyrir afburða framlag til myndlistar, framúrskarandi myndverk eða sýningu.
|
|
Lesa meira...
|
|
Samstarfssamningur VGK-Hönnunar og Háskólans í Reykjavík |
|
|
|
Miðvikudagur, 07. Nóvember 2007 |
Verkfræðistofan VGK-Hönnun og Háskólinn í Reykjavík hafa gert með sér samkomulag til þriggja ára sem felur í sér fjárhagslegan stuðning að upphæð 22,5 milljónir króna til tækni- og verkfræðideildar HR.
|
|
Lesa meira...
|
|
Nýr ráðgjafi til Athygli |
|
|
|
Miðvikudagur, 07. Nóvember 2007 |
Bryndís Nielsen, sem hefur starfað sem kynningarfulltrúi og verkefnastjóri Íslenska dansflokksins hefur verið ráðin sem ráðgjafi um almannatengsl hjá Athygli ehf. Þar mun hún starfa að ýmsum kynningarmálum fyrir viðskiptavini fyrirtækins, annast fjölmiðlasamskipti og hafa umsjón með útgáfu o.fl.
|
|
Lesa meira...
|
|
Lokahelgi sýningarinnar "Þessa heims og annars" í Listasafni Árnesinga |
|
|
|
Fimmtudagur, 01. Nóvember 2007 |
|
Listunnendum gefst einstakt tækifæri til að kynnast hugarheimi listakonunnar Gabríelu Friðriksdóttur og verkum Einars Þorlákssonar á sunnudaginn kemur, 4. nóvember kl. 15:00. Þá mun Gabríela ásamt Aðalsteini Ingólfssyni listfræðingi ræða við gesti um sýninguna Þessa heims og annars; Einar Þorláksson & Gabríela Friðriksdóttir í Listasafni Árnesinga í Hveragerði. Aðgangur er ókeypis.
|
|
Lesa meira...
|
|
Aukið samstarf Samskipa og Team Line |
|
|
|
Þriðjudagur, 30. Október 2007 |
Samskip og belgíska flutningafyrirtækið Delphis Team Lines hafa náð samkomulagi um að samþætta siglingaáætlanir félaganna milli Benelúxlandanna og Bilbao á Spáni. Bjóða Samskip nú upp á tvær ferðir í viku, í stað vikulega áður.
|
|
Lesa meira...
|
|
Brunabót gefur Landspítala milljónir |
|
|
|
Miðvikudagur, 24. Október 2007 |
Stjórn EBÍ samþykkti að færa spítalanum þessa fjármuni í tilefni af því að í ár eru 90 ár liðin frá stofnun Brunabótafélags Íslands.
|
|
Lesa meira...
|
|
Global Finance velur Glitni besta banka Íslands 2007 |
|
|
|
Miðvikudagur, 24. Október 2007 |
Global Finance, alþjóðlegt tímarit um fjármál, valdi Glitni sem besta banka á Íslandi árið 2007. Verðlaunin voru afhent í tengslum við ársfundi Alþjóðabankans og Alþjóða gjaldeyrissjóðsins í National Press Club í Washington síðast liðinn mánudag.
|
|
Lesa meira...
|
|
Alþjóðleg samvinna um öruggar og skilvirkar flugsamgöngur |
|
|
|
Laugardagur, 20. Október 2007 |
Laugardaginn 20. október halda Alþjóðasamtök flugumferðastjóra IFATCA upp á alþjóðadag flugumferðastjóra en samtökin voru stofnuð á þessum degi fyrir fjörutíu og sex árum.
|
|
Lesa meira...
|
|
Vatn rennur á yfirfalli Hálslóns |
|
|
|
Föstudagur, 19. Október 2007 |
Hálslón er orðið fullt og vatn rennur nú á yfirfalli Kárahnjúkastíflu í farveg Jöklu. Þar með eykst aftur tímabundið rennsli árinnar niðri í byggð en búist er við að rennslið geti orðið allt að 100 rúmmetrar á sekúndu um helgina.
|
|
Lesa meira...
|
|
Breytt fyrirkomulag á gjaldskrá Landsnets |
|
|
|
Föstudagur, 19. Október 2007 |
Landsnet hefur tekið upp breytt fyrirkomulag gjaldskrármála sem á að skerpa skilin milli tekna fyrirtækisins af almennum orkuflutningi og orkuflutningi til stórnotenda og tryggja enn betur en áður að almenningur beri ekki kostnað af flutningi til þeirra. Breytingin á ekki að hafa áhrif á raforkuverð til neytenda.
|
|
Lesa meira...
|
|
SVÞ opna nýja heimasíðu |
|
|
|
Fimmtudagur, 18. Október 2007 |
Björgvin Sigurðsson, viðskiptaráðherra og Hrund Rudolfsdóttir, formaður SVÞ opnuðu nýja heimasíðu SVÞ - Samtaka verslunar og þjónustu á morgunverðarfundi 18. október.
|
|
Lesa meira...
|
|
Heiðursverðlaun Myndstefs festa sig í sessi |
|
|
|
Mánudagur, 15. Október 2007 |
Stjórn Myndhöfundasjóðs Íslands; Myndstefs, hefur í þriðja sinn kallað eftir tilnefningum til heiðursverðlauna sjóðsins sem veitt eru fyrir afburða framlag til myndlistar, framúrskarandi myndverk eða sýningu. Jafnframt hefur verið ákveðið að verðlaunaveitingin verði árlegur viðburður í starfsemi Myndstefs.
|
|
Lesa meira...
|
|
Glitnir stærsti miðlarinn á norrænum hlutabréfamarkaði í september |
|
|
|
Fimmtudagur, 11. Október 2007 |
Í nýliðnum september annaðist Glitnir sölu á 6,6% allra hlutabréfa sem seld voru í OMX Nordic Exchange og er þetta í fyrsta skipti sem Glitnir er söluhæsti aðilinn á norræna hlutabréfamarkaðinum. Ef litið er til hlutabréfaveltu OMX Nordic Exchange það sem af er árinu 2007 er Glitnir með næst mesta markaðshlutdeild allra félaga eða 6,25% af heildarveltu seldra bréfa.
|
|
Lesa meira...
|
|
Samskip annast álflutninga á Evrópumarkað fyrir Alcoa Fjarðaál |
|
|
|
Miðvikudagur, 10. Október 2007 |
|
Alcoa Fjarðaál hefur samið við Samskip um að annast flutninga á framleiðslu fyrirtækisins til Evrópu næstu fimm árin. Meginhluti framleiðslu Alcoa Fjarðaáls fer á Evrópumarkað. Flutningarnir munu stórauka umsvif Samskipa á Íslandi.
|
|
Lesa meira...
|
|
Hönnun glerhjúps Tónlistar- og ráðstefnuhússins við Austurhöfn langt komin |
|
|
|
Þriðjudagur, 09. Október 2007 |
Hönnun glerhjúpsins sem umlykja á Tónlistar- og ráðstefnuhúsið við Austurhöfn er langt komin og hefur stjórn Austurhafnar-TR nú fallist á meginhugmyndir hönnuðanna en bíður með endanlegt samþykki þar til hugmyndir um litasetningu liggja fyrir á næstu vikum.
|
|
Lesa meira...
|
|
Glitnir semur við kínverskt fyrirtæki í matvælaiðnaði |
|
|
|
Fimmtudagur, 04. Október 2007 |
Glitnir og kínverska matvælafyrirtækið Fu Ji skrifuðu í dag undir samning sem felur í sér að Glitnir mun verða ráðgjafi Fu Ji, við vöxt fyrirtækisins á kínverska markaðinum. Með samningnum hyggst Fu Ji nýta sér þekkingu Glitnis á alþjóðlegri matvælaframleiðslu.
|
|
Lesa meira...
|
|
Listasafns Árnesinga í Hveragerði opið frá fimmtudegi til sunnudags í vetur |
|
|
|
Miðvikudagur, 03. Október 2007 |
Nýr opnunartími Listasafns Árnesinga tekur gildi frá og með morgundeginum. Verður safnið framvegis opið fimmtudaga til sunnudaga, frá kl. 12:00-18:00, í vetur en frá því safnið tók til starfa við Austurmörk 21 í Hveragerði árið 2003 hefur það einungis verið opið eftir samkomulagi yfir vetrartímann.
|
|
Lesa meira...
|
|
Áfram gefið út af Athygli |
|
|
|
Miðvikudagur, 03. Október 2007 |
Áfram, blað Öryrkjabandalags Íslands, kom út í morgun sem fylgirit Blaðsins. Athygli annaðist útgáfuna, annað árið í röð. Víða er komið við í umfjöllun blaðsins, en rauði þráðurinn er sjálfstætt líf, einstaklingsmiðuð þjónusta og starfsendurhæfing sem einmitt eru baráttumál ÖBÍ um þessar mundir.
|
|
Lesa meira...
|
|
Okkar mál komin út |
|
|
|
Miðvikudagur, 03. Október 2007 |
Okkar mál, blað Geðhjálpar, kom út síðastliðinn laugardag sem fylgirit Blaðsins. Athygli annaðist útgáfuna líkt og undanfarin ár; skrifaði texta og hannaði útlit. Víða er komið við í blaðinu en meginlínan eru þær breytingar sem nú eiga sér stað í þjónustu við geðsjúka, en hún er í æ ríkari mæli að færast af stofnunum og út í samfélagið, rétt eins og Geðhjálp, ÖBÍ og fleiri hafa barist fyrir um langt skeið.
|
|
Lesa meira...
|
|
Unifem á Íslandi opnar nýja heimasíðu |
|
|
|
Þriðjudagur, 02. Október 2007 |
Íslensk landsnefnd Unifem hefur opnað endurbætta heimasíðu á slóðinni www.unifem.is . Ásgerður Edda Langworth, ráðgjafi hjá Athygli vann vefinn í samvinnu við Sjöfn Vilhelmsdóttur, framkvæmdastýru Unifem á Íslandi.
|
|
Lesa meira...
|
|
Blaðið Kópavogsfréttir komið út |
|
|
|
Fimmtudagur, 27. September 2007 |
Kópavogsfréttir - 40 síðna blað sem Athygli gefur út - var dreift með Morgunblaðinu í dag. Í blaðinu er víða komið við. Fjallað er um verslun og þjónustu, skipulagsmál, menningarmál, íþrótta- og æskulýðsmál og margt fleira - m.ö.o. leitast er við að varpa ljósi á daglegt líf í Kópavogi og þá miklu uppbyggingu sem verið hefur í bænum á undanförnum árum og verður á næstu árum.
|
|
Lesa meira...
|
|
Glitnir eykur hlut sinn í Norsk Privatøkonomi í 77,5% |
|
|
|
Föstudagur, 21. September 2007 |
Dótturfyrirtæki Glitnis, BNbank í Noregi hefur aukið hlutafjáreign sína í Norsk Privatøkonomi úr 45% í 77.5%. BNbank keypti 45 % hlutafé í Norsk Privatøkonomi ASA í ágúst 2006 og samkvæmt samkomulagi við núverandi eigendur mun BNbank auka hlutafé sitt enn frekar og eignast 97% fyrir lok fyrsta ársfjórðungs 2009. Norsk Privatøkonomi, sem veitir persónulega fjármálaráðgjöf fyrir einstaklinga, mun breyta nafni sínu í Glitnir Privatøkonomi í haust.
|
|
Lesa meira...
|
|
Mikil yfirvinna stefnir flugöryggi í hættu |
|
|
|
Fimmtudagur, 20. September 2007 |
Norrænir flugumferðarstjórar hafa lýst áhyggjum af því að rekstraraðilar flugumferðarþjónustu á Norðurlöndum mæti skorti á flugumferðarstjórum í auknum mæli með yfirvinnu. Þetta kom meðal annars fram á fundi sem Samtök flugumferðarstjóra á Norðurlöndum héldu í Reykjavík dagana 14.-16. september síðast liðinn.
|
|
Lesa meira...
|
|
Sparisjóður Svarfdæla verði hlutafélag |
|
|
|
Miðvikudagur, 19. September 2007 |
Stofnfjáreigendur í Sparisjóði Svarfdæla hafa verið boðaðir til fundar þann 26. september næstkomandi þar sem tekin verður til umræðu og afgreiðslu tillaga stjórnar sjóðsins um „að marka sparisjóðnum þá stefnu að honum skuli, að tilskildu samþykki Fjármálaeftitlitsins, breytt í hlutafélag“ eins og segir í tillögunni.
|
|
Lesa meira...
|
|
Mótvægisaðgerðir ríkisstjórnarinnar dropi í hafið þegar horft er til fórna samfélagsins í Eyjum |
|
|
|
Miðvikudagur, 19. September 2007 |
Útvegsbændur í Vestmannaeyjum segja að á undanförnum 6 árum hafi samfélagið í Eyjum fært fórnir upp á 3,1 milljarð króna í formi byggðakvóta, línuívilnunar og ýmissa bóta, meðal annars vegna brests í rækju- og skelveiðum, útflutningsálags (sem nú hefur verið fellt niður) og þróunarsjóðsgjalds sem síðar varð að veiðigjaldi. Þannig hafi Eyjamenn í raun og veru stutt aðrar sjávarbyggðir árlega með liðlega 500 milljóna króna skerðingu eigin aflaheimilda og með sérstökum gjöldum sem færð hafi verið öðrum byggðarlögum í nafni byggðastefnu („mótvægisaðgerða“).
|
|
Lesa meira...
|
|
Búseti á Norðurlandi tekur til starfa |
|
|
|
Miðvikudagur, 19. September 2007 |
Húsnæðisamvinnufélagið Búseti á Akureyri hefur nú fengið nafnið Búseti á Norðurlandi og víkkað út þjónustusvæði sitt. Félagið hefur 152 íbúðir í rekstri í dag, 137 á Akureyri og 15 á Húsavík. Viðræður hafa farið fram við sveitarfélög á Norðurlandi og útlit fyrir að ráðist verði í byggingu búseturéttaríbúða á vegum félagsins víðar á Norðurlandi en fram til þessa.
|
|
Lesa meira...
|
|
Saga SPK skráð |
|
|
|
Miðvikudagur, 19. September 2007 |
Stofnfjáreigendur SPK samþykktu einróma í gær að sameina sjóðinn BYR sparisjóði. Niðurstaða fundarins er þó háð samþykki Fjármálaeftirlitsins. Byr mun halda fund í byrjun október þar sem stofnfjáraðilar munu kjósa um samruna sjóðanna. Á fundinum var kynnt samkomulag um að Athygli tæki að sér útgáfu á sögu sjóðsins.
|
|
Lesa meira...
|
|
Frank O. Reite fjárfestir í Glitnir Property Group |
|
|
|
Þriðjudagur, 18. September 2007 |
Frank O. Reite hefur ákveðið að verða virkur fjárfestir í Glitnir Property Holding, þar sem hann gegnir stjórnarformennsku, og þá jafnframt að að fara úr framkvæmdastjórn Glitnis banka hf. í lok september. Hann mun halda áfram nánu sambandi við Glitni sérstaklega varðandi áframhaldandi vöxt Glitnir Property Holding og sem ráðgjafi við stefnumótun bankans.
|
|
Lesa meira...
|
|
Samskip með tíðari ferðir milli meginlands Evrópu og Skandinavíu |
|
|
|
Þriðjudagur, 11. September 2007 |
Samskip hafa aukið þjónustu sína á siglingaleiðinni milli meginlands Evrópu og Skandinavíu með tilkomu gámaflutningaskipsins Ute S. Það getur borið allt að 366 gámaeiningar (TEU) og siglir vikulega milli Helsingjaborgar í Svíþjóð, Hull á Bretlandseyjum og Rotterdam.
|
|
Lesa meira...
|
|
Glitnir hefur starfsemi í Finnlandi |
|
|
|
Fimmtudagur, 23. Ágúst 2007 |
Finnska fjármálaráðuneytið hefur gefið FIM Securities Ltd., sem er hluti af FIM Group Corporation, heimild til almennrar bankastarfsemi frá og með 1. október nk. Frá og með sama tíma mun fyrirtækið starfa undir merkjum Glitnis Bank Ltd. í Finnlandi.
|
|
Lesa meira...
|
|
Heitum á Ingunni Hauks og Óskar Þór! |
|
|
|
Þriðjudagur, 14. Ágúst 2007 |
Tveir starfsmenn Athygli taka þátt í Reykjavíkurmaraþoni Glitnis laugardaginn 18. ágúst: Ingunn Guðrún Hauksdóttir, fjármálastjóri fyrirtækisins, og Óskar Þór Halldórsson, ritstjóri Ægis og starfsmaður Athygli á Akureyri. Nú gefst kjörið tækifæri til að hvetja þessara hlaupara okkar til dáða með því að heita á þá og styrkja gott málefni í leiðinni.
|
|
Lesa meira...
|
|
Börn hlaupa fyrir börn |
|
|
|
Laugardagur, 11. Ágúst 2007 |
Í tengslum við Reykjavíkurmaraþon Glitnis 18. ágúst nk. verður í annað sinn efnt til Latabæjarhlaups sem er sérstaklega ætlað börnum 9 ára og yngri. Í ár munu þátttökugjöldin í hlaupinu renna óskipt til UNICEF - Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna.
|
|
Lesa meira...
|
|
Aukin umsvif í Evrópuflutningum Samskipa |
|
|
|
Miðvikudagur, 08. Ágúst 2007 |
Umsvif Evrópuflutninga Samskipa aukast enn frekar 17. ágúst næstkomandi þegar félagið byrjar siglingar milli Zeebrugge i Belgíu og hafna í Skandinavíu og Eystrasaltslöndunum, með viðkomu í Rotterdam og á Bretlandseyjum.
|
|
Lesa meira...
|
|
Geysir kaupir í Ameríku |
|
|
|
Mánudagur, 30. Júlí 2007 |
Gengið hefur verið frá samningum um kaup Geysis Green Energy ehf. á um 20% hlutafjár í kanadíska jarðhitafyrirtækinu Western GeoPower Corporation (WGP). Alls kaupir Geysir liðlega um 40 milljón nýja hluti í félaginu og er hlutafjáraukningin liður í að fjármagna jarðvarmavirkjun sem fyrirtækið vinnur nú að á Geysissvæðinu í Kaliforníu. Geysissvæðið er stórt jarðhitasvæði í Sonomasýslu í norðanverðri Kaliforníu. Heildarkaupverð hlutarins í WGP er um 600 milljónir íslenskra króna og með kaupunum fær Geysir mann í stjórn fyrirtækisins.
|
|
Lesa meira...
|
|
Sátt um eignarhald á Hitaveitu Suðurnesja |
|
|
|
Fimmtudagur, 12. Júlí 2007 |
Reykjanesbær, Hafnarfjarðarbær, Orkuveita Reykjavíkur og Geysir Green Energy ehf. hafa gert með sér samkomulag sem hluthafar í Hitaveitu Suðurnesja hf. (HS). Það er einróma álit samningsaðila að með þessu verði eignarhaldi HS komið í tryggar skorður og eru nýir hluthafar HS einhuga um að vinna ötullega að vexti og viðgangi fyrirtækisins sem sjálfstæðs og öflugs orkufyrirtækis. Höfuðstöðvar HS verða áfram í Reykjanesbæ.
|
|
Lesa meira...
|
|
Ólympíumeistarinn á meðal alþjóðlegra afrekshlaupara |
|
|
|
Fimmtudagur, 12. Júlí 2007 |
Norska hlaupadrottningin Grete Waitz kynnti erlenda hlaupara sem taka þátt í Reykjavíkurmaraþoninu í ár. Stefano Baldini sigurvegari í maraþonhlaupi karla á Ólympíuleikunum í Aþenu 2004 verður meðal keppenda í Reykjavíkurmaraþoni Glitnis þann 18. ágúst næstkomandi. Baldini er einn af 9 alþjóðlegum afrekshlaupurum sem Glitnir hefur boðið hingað til lands til að taka þátt í Reykjavíkurmaraþoninu. Baldini gerir ráð fyrir að hlaupa hálft maraþon hér á landi að þessu sinni. Búast má við að með þátttöku erlendra afrekshlaupara verði gerð atlaga að brautarmetum Reykjavíkurmaraþonsins.
|
|
Lesa meira...
|
|
Fimm milljarða samdráttur á Vesturlandi vegna kvótaskerðingar |
|
|
|
Laugardagur, 07. Júlí 2007 |
Staðbundin efnahagsleg áhrif á Vesturlandi af skerðingu þorskafla, sem stjórnvöld tilkynntu í gær, nema um fimm milljörðum króna á ári. Áhrifanna gætir lang mest í Snæfellsbæ þar sem þau eru reiknuð um tveir milljarðar króna árlega en fiskveiðar nema um 40% af þáttatekjum Snæfellsness og fiskvinnsla um 30%.
|
|
Lesa meira...
|
|
Alþjóða vélflutningaráðið vottar umhverfisverndarstefnu Volkswagen |
|
|
|
Mánudagur, 25. Júní 2007 |
Dr. Ulrich Hackenberg, sem á sæti í framkvæmdastjórn Volkswagen tók nýlega við tveimur viðurkenningum úr hendi Ekhard Zinke, forseta Alþjóða vélflutningaráðsins, (Federal Motor Transport Authority (KBA)). Þetta eru fyrstu viðurkenningarnar af þessu tagi sem KBA gefur út en þær staðfesta að Volkswagen Group er fyrsti bílaframleiðandi í heimi sem fjöldaframleiðir bíla sem eru endurvinnanlegir að 85 hundraðshlutum og endurnýtanlegir að minnsta kosti að 95 hundraðshlutum af eigin þyngd.
|
|
Lesa meira...
|
|
Gengið gegn slysum 26. júní |
|
|
|
Laugardagur, 23. Júní 2007 |
Þrír eldhugar úr röðum hjúkrunarfræðinga á Landspítala-háskólasjúkrahúsi efna til fjöldagöngu gegn umferðarslysum í Reykjavík þriðjudaginn 26. júní. Bríet, Anna og Soffía eru vinkonur og kalla sig BAS-stelpurnar. Á síðasta ári söfnuðu þær áheitum með því að ganga eitt og hálft maraþon eða um 63 km til styrktar rannsóknum og meðferð á brjóstakrabbameini í New York: AVON WALK FOR BREAST CANCER. Um þær sjálfar og áheitagönguna er hægt að fræðast meira á heimasíðunni http://bas.is.
|
|
Lesa meira...
|
|
Allt sem þú þarft að vita um háspennulínur og fleira |
|
|
|
Miðvikudagur, 20. Júní 2007 |
Landsnet hefur gefið út upplýsingabæklinginn Háspennulínur - aðgát skal höfð, þar sem finna má ýmsan gagnlegan fróðleik um umgengni við háspennulínur og önnur flutningsvirki. Bæklingurinn er jafnt ætlaður þeim sem vinna að skipulagsmálum, sveitarfélögum, verktökum, landeigendum, sumarbústaðaeigendum og áhugafólki um útivist.
|
|
Lesa meira...
|
|
Þúsaldarmarkmið Sameinuðu þjóðanna um menntun fyrir öll börn árið 2015 næst ekki að óbreyttu að mati Barnaheilla |
|
|
|
Miðvikudagur, 20. Júní 2007 |
Alþjóðasamtökin Barnaheill - Save the Children vara við því í nýrri skýrslu samtakanna að þúsaldarmarkmið Sameinuðu þjóðanna um menntun fyrir öll börn fyrir árið 2015 náist ekki ef þjóðir heims herði ekki róðurinn enn frekar - en sá tími sem þær settu sér árið 2000, til að ná þessum markmiðunum, er nú hálfnaður.
|
|
Lesa meira...
|
|
Athygli gefur út blað í tilefni að 50 ára afmæli AFS á Íslandi. |
|
|
|
Þriðjudagur, 19. Júní 2007 |
Athygli hf. annaðist útgáfu á blaði um starf AFS á Íslandi, sem fylgdi Morgunblaðinu 16. júní, en þann dag var 50 ára starfs samtakanna hér á landi minnst við hátíðlega athöfn. Efni blaðsins er fjölbreytt og þar má meðal annars nefna viðtöl við Andra Ottesen núverandi formann AFS og Láru V. Júlíusdóttur sem gegndi formennskunni í meira en áratug.
|
|
Lesa meira...
|
|
Athygli styrkir Barnaheill - Save the Children á Íslandi |
|
|
|
Mánudagur, 18. Júní 2007 |
Með sérstökum samningi, sem undirritaður var í dag, hefur Athygli ehf. gerst einn samstarfsaðila Barnaheilla og mun fyrirtækið styrkja samtökin með endurgjaldslausu framlagi vegna ímyndar- og kynningarmála á árinu 2007. Samningurinn er liður í þeirri stefnu stjórnar fyrirtækisins að leggja sitt af mörkum til samfélagsmála.
|
|
Lesa meira...
|
|
Athygli gefur út Sáð í sandinn |
|
|
|
Föstudagur, 15. Júní 2007 |
Sáð í sandinn er yfirskrift blaðs um starfsemi Landgræðslunnar sem fylgdi Morgunblaðinu sl. miðvikudag. Athygli annaðist útgáfuna í samvinnu við Landgræðsluna, sem er elsta stofnun á sínu sviði í heiminum. Meðal efnis í blaðinu má nefna viðtal við Andrés Arnalds fagmálastjóra um jarðvegseyðingu almennt, sem hann telur eitt mesta umhverfisvandamál veraldarinnar. Fjallað er um uppgræðslu á Hólasandi í Suður-Þingeyjarsýslu og rætt við fulltrúa orkufyrirtækjanna en uppgræðsla er stór þáttur í þeirra starfsemi.
|
|
Lesa meira...
|
|
Heklufólk gróðursetur í Hekluskógum |
|
|
|
Þriðjudagur, 12. Júní 2007 |
Á annað hundrað manns frá bifreiðaumboðinu HEKLU gróðursettu á annað þúsund trjáplantna í Hekluskógum á fjölskyldudegi fyrirtækisins um nýliðna helgi. Tengist þetta átak starfsfólksins kolefnisjöfnunarverkefni HEKLU og Hekluskóga sem hleypt var af stokkunum í síðasta mánuði.
|
|
Lesa meira...
|
|
Á ferðinni fyrir þig |
|
|
|
Mánudagur, 11. Júní 2007 |
„Á ferðinni fyrir þig“, er yfirskrift kynningarátaks sem flutningafyrirtæki innan SVÞ-Samtaka verslunar og þjónustu hafa hrundið af stað og sem standa mun næstu mánuði. Þeir sem ferðast um þjóðvegi landsins á næstunni munu varla komast hjá því að verða varir við átakið því um eitt hundrað flutningavagnar í eigu nokkurra stærstu vörudreifingaraðila landsins munu skarta áberandi skilaboðum, sem eiga að minna vegfarendur á gildi flutninga fyrir atvinnulífið og fólkið í landinu.
|
|
Lesa meira...
|
|
Samskip kaupa flutningaþjónustu Delphis Team Lines |
|
|
|
Föstudagur, 08. Júní 2007 |
Samskip hafa fest kaup á hluta af flutningaþjónustu belgíska flutningafyrirtækisins Delphis Team Lines (DTL). Um er að ræða sérhæfða gámaflutningaþjónustu frá dyrum seljenda að dyrum kaupenda (door-to-door) í yfir 10 Evrópulöndum og taka Samskip formlega við rekstrinum 1. júlí nk. Kaupverðið er ekki gefið upp.
|
|
Lesa meira...
|
|
Exorka fær 3 ný virkjanaleyfi í Þýskalandi |
|
|
|
Föstudagur, 08. Júní 2007 |
Exorka, dótturfélag Geysis Green Energy, hefur gengið frá kaupum á þremur leyfum fyrir jarðvarmavirkjanir í Bæjaralandi í Þýskalandi. Fyrir átti Exorka eitt virkjanaleyfi þar ytra.
|
|
Lesa meira...
|
|
Glitnir greiðir 500 krónur til góðgerðarmála fyrir hvern kílómetra sem viðskiptavinirnir hlaupa |
|
|
|
Þriðjudagur, 05. Júní 2007 |
Skráning er hafin í Reykjavíkurmaraþon Glitnis 2007 á heimasíðu hlaupsins, marathon.is. Áhugi á hlaupum hefur aukist mikið að undanförnu, metþátttaka var í Reykjavíkurmaraþoninu í fyrra og aðstandendur þess segja teikn á lofti um að metið verði slegið að morgni menningarnætur Reykjavíkur í ár, laugardaginn 18. ágúst. Reykjavíkurmaraþonið 2007 er hið 24. frá upphafi og hefur Glitnir styrkt hlaupið um árabil.
|
|
Lesa meira...
|
|
AT tímarit komið út |
|
|
|
Mánudagur, 04. Júní 2007 |
Fyrsta tölublað AT tímarits 2007 er komið út en það er gefið út af Athygli ehf. í samvinnu við Arkitektafélag Íslands og Félag íslenskra landslagsarkitekta. Blaðið er sem fyrr stútfullt af áhugaverðu efni um arkitektúr, skipulag og landmótun.
|
|
Lesa meira...
|
|
VÍS styrkir gerð myndarinnar Annað líf Ástþórs |
|
|
|
Föstudagur, 25. Maí 2007 |
Vátryggingafélag Íslands er helsti styrktaraðili heimildarmyndarinnar Annað líf Ástþórs sem frumsýnd verður mánudaginn 28. maí á Heimilda- og stuttmyndahátíðinni í Reykjavík. Myndin er sannkölluð hetjusaga ungs bónda, Ástþórs Skúlasonar, sem missir allan mátt í líkamanum neðan við mitti eftir umferðarslys en tekst á við gjörbreyttar aðstæður af elju og dugnaði sem varla á sér hliðstæðu á Íslandi.
|
|
Lesa meira...
|
|
Sameinaði lífeyrissjóðurinn tekur upp reglur SÞ um ábyrgar fjárfestingar |
|
|
|
Fimmtudagur, 24. Maí 2007 |
Stjórn Sameinaða lífeyrissjóðsins hefur ákveðið að taka upp reglur Sameinuðu þjóðanna um ábyrgar fjárfestingar (Principles for Responsible Investment). Reglurnar sem eru leiðbeinandi fyrir stofnanafjárfesta um allan heim fela í sér að þátttakendur skuldbinda sig til að taka tillit til umhverfislegra og félagslegra þátta við fjárfestingar sínar, auk þess sem lögð er áhersla á góða stjórnarhætti fyrirtækja sem fjárfest er í.
|
|
Lesa meira...
|
|
Græn bylting í bílasölu |
|
|
|
Miðvikudagur, 16. Maí 2007 |
Starfsemi bifreiðaumboðsins HEKLU verður kolefnisjöfnuð frá deginum í dag að telja. Jafnframt mun HEKLA greiða fyrir eins árs kolefnisjöfnun allra nýrra Volkswagenbíla og njóta Hekluskógar ávinningsins. Samkomulag þessa efnis var undirritað við athöfn í höfuðstöðum HEKLU í morgun af Knúti G. Haukssyni, forstjóra HEKLU, og Ísólfi Gylfa Pálmasyni, formanni verkefnisstjórnar Hekluskóga, um leið og gengið var formlega frá kolefnisjöfnun fyrsta Volkswagenbílsins.
|
|
Lesa meira...
|
|
Samskip styðja útrás tónlistarkonunnar Lay Low |
|
|
|
Mánudagur, 14. Maí 2007 |
Samskip ætla að styðja við bakið á tónlistarkonunni Lay Low næstu tvö árin en hún hefur notið vaxandi vinsælda bæði hér heima og erlendis, og sigraði meðal annars í þremur flokkum á Íslensku tónlistarverðlaununum fyrr á árinu.
|
|
Lesa meira...
|
|
Afkoma Vinnslustöðvarinnar 2006 sú besta í 60 ára sögu fyrirtækisins |
|
|
|
Mánudagur, 07. Maí 2007 |
Ótrúleg umskipti í rekstri Vinnslustöðvarinnar hf. í Vestmannaeyjum á örfáum árum voru staðfest á aðalfundi hennar síðastliðinn föstudag. Fyrirtækið hefur aldrei staðið betur en nú, sem er auðvitað sérstakt gleðiefni fyrir samfélagið í Eyjum, því Vinnslustöðin er stærsti vinnustaðurinn þar í bæ og þar með einn helsti bakhjarl byggðarlagsins.
|
|
Lesa meira...
|
|
HEKLA afhendir SORPU sjö metanknúna bíla á degi umhverfisins |
|
|
|
Föstudagur, 27. Apríl 2007 |
SORPA bs. fékk í gær afhenta sjö metanknúna Volkswagen bíla frá HEKLU. Um er að ræða fjóra VW Caddy life EcoFuel og þrjá VW Caddy EcoFuel. Bílarnir eru með tvíbrennihreyfli, sem þýðir að þeir geta gengið bæði fyrir metani og bensíni. Þeir eru fyrst og fremst knúnir metani en þrjóti það, skiptir sjálfvirkt stýrikerfi yfir á bensínkerfið.
|
|
Lesa meira...
|
|
Ferðamálaráð Evrópu sækir Ísland heim |
|
|
|
Fimmtudagur, 26. Apríl 2007 |
Hátt í fimmtíu fulltrúar frá Ferðamálaráði Evrópu (European Travel Commission), sem stofnað var 1948 til að efla ferðamannastraum til Evrópu frá öðrum heimshlutum, eru nú staddir hér á landi í tengslum við 72. aðalfund samtakanna á Nordica hóteli í dag, 26. apríl 2007. Þetta er í annað sinn í 59 ára sögu samtakanna sem aðalfundur þeirra er haldinn hér á landi en 30 ár eru nú liðin frá fyrri fundinum hérlendis.
|
|
Lesa meira...
|
|
Samskip auka umsvif sín enn frekar á heimsvísu. |
|
|
|
Miðvikudagur, 25. Apríl 2007 |
Samskip hafa gert samstarfssamning við Gulf Agency Company (GAC) sem er með höfuðstöðvar í Dubai. Með tilkomu þess geta Samskip nú boðið stórbætta þjónustu í frystivöru- og flutningsmiðlun í Suðaustur-Asíu, á Indlandi, í Austurlöndum nær og í nokkrum löndum Afríku, þ.á.m. Egyptalandi og Suður-Afríku.
|
|
Lesa meira...
|
|
Samskip styrkja stöðu sína í Suður-Ameríku |
|
|
|
Þriðjudagur, 24. Apríl 2007 |
Samskip hafa styrkt stöðu sína enn frekar í frystivöru- og flutningsmiðlun í Suður-Ameríku með samstarfssamningum við argentínska flutningafélagið Transaltic SA annars vegar og brasilíska flutningafélagið Unitrader International hins vegar.
|
|
Lesa meira...
|
|
Athygli gefur út Ævintýralandið |
|
|
|
Föstudagur, 20. Apríl 2007 |
Athygli annaðist útgáfu á blaðinu „Ævintýralandið Ísland - góða ferð“ sem kom út nú í vikunni í tilefni Ferðasýningarinnar 2007 í Fífunni í Kópavogi um helgina.
|
|
Lesa meira...
|
|
Hundrað ára afmælisblað Ægis komið út |
|
|
|
Föstudagur, 20. Apríl 2007 |
Þessi árgangur er sá hundraðasti í sögu Ægis - tímarits um sjávarútvegsmál. Þriðja tölublað ársins, sem nú er komið út, er sérstakt afmælisblað. Mikið blað að vöxtum - 124 bls. að stærð.
|
|
Lesa meira...
|
|
Giftusamlegri björgun Wilson Muuga lokið |
|
|
|
Miðvikudagur, 18. Apríl 2007 |
„Auðvitað er það mikill léttir að það skyldi takast jafn vel að ná skipinu af strandstað og raun ber vitni en það sem skipti sköpum er að við vorum búnir að undirbúa framkvæmdina mjög vel og höfðum reynt að sjá fyrir allt sem gæti farið úrskeiðis,“ segir Hjörtur Emilsson framkvæmdastjóri Navis-Fengs sem var einn þeirra sem skipulagði björgun Wilson Muuga af strandstað við Sandgerði.
|
|
Lesa meira...
|
|
Ný og endurbætt útgáfa Lyfjabókarinnar |
|
|
|
Þriðjudagur, 17. Apríl 2007 |
Lyfja hefur gefið út nýja og endurbætta útgáfu Lyfjabókarinnar - handbókar um lyf á Íslandi, og var Siv Friðleifsdóttur, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, afhent fyrsta eintak hennar við athöfn á dögunum.
|
|
Lesa meira...
|
|
Samskip hasla sér völl í Kanada |
|
|
|
Miðvikudagur, 04. Apríl 2007 |
Samskip hafa eignast helmingshlut í fyrirtækinu Bayside Food Terminal í Bayside í Kanada sem ræður yfir 12.000 tonna frysti- og kæligeymslu. Með tilkomu aðstöðunnar þar getur félagið nú boðið viðskiptavinum sínum upp á enn víðtækari þjónustu á heimsvísu í frystivöru- og flutningsmiðlun.
|
|
Lesa meira...
|
|
Samskip styrkja stöðu sína á Asíumarkaði með samstarfi við Interocean Shipping Corporation í Japan |
|
|
|
Mánudagur, 02. Apríl 2007 |
Samskip hafa styrkt stöðu sína enn frekar í frystivöru- og flutningsmiðlun á Asíumarkaði með samkomulagi við japanska umboðs- og flutningafélagið Interocean Shipping Corporation sem tekur að sér að vera umboðsaðili Samskipa í Japan, einhverjum umsvifamesta og mikilvægasta kæli-og frystivöruflutningsmarkaði í heiminum.
|
|
Lesa meira...
|
|
Navis Fengur vinnur að brottflutningi Wilson Muuga |
|
|
|
Fimmtudagur, 29. Mars 2007 |
Stefnt er að því að draga flutningaskipið Wilson Muuga af strandstað við Sandgerði á stórstraumsflóði um miðjan maí næst komandi. Gengið var frá samningi um flutninginn milli eigenda skipsins og stjórnvalda í dag en hann byggir á verkáætlun sem sérfræðingar frá Navis-Feng unnu fyrir eigendur. Navís Fengur og Kafaraþjónusta Árna Kópssonar munu sjá um framkvæmd verksins.
|
|
Lesa meira...
|
|
Titan verður HP Preferred Partner á Íslandi |
|
|
|
Fimmtudagur, 29. Mars 2007 |
Bandaríski tölvurisinn Hewlett - Packard hefur útnefnt Titan upplýsingatækni ehf. sem HP Preferred Partner á Íslandi. Til að ná slíkri útnefningu þurfa fyrirtæki að hafa á að skipa sölu- og þjónustustarfsfólki sem staðist hefur ákveðin próf frá fyrirtækinu ásamt því að hafa náð árangri í búnaðarsölu.
|
|
Lesa meira...
|
|
Höfuðstöðvar Samskipa erlendis undir eitt þak í Rotterdam |
|
|
|
Miðvikudagur, 28. Mars 2007 |
Samskip hafa flutt alla starfsemi félagsins í Rotterdam í nýja skrifstofubyggingu við gömlu höfnina. Þar verða höfuðstöðvar fyrir starfsemi félagsins erlendis en yfirstjórn félagsins og Íslandsstarfsemin verða eftir sem áður með höfuðstöðvar í Reykjavík.
|
|
Lesa meira...
|
|
Endurvinnslustöðvar Hringrásar á landsbyggðinni draga úr álagi á vegi og vistkerfi |
|
|
|
Fimmtudagur, 22. Mars 2007 |
Undanfarið hafa staðið yfir framkvæmdir á athafnasvæði endurvinnslufyrirtækisins Hringrásar á Reyðarfirði sem miða að því að þar verði ein fullkomnasta aðstaða á landinu til móttöku og endurvinnslu brotamálma, ásamt móttöku á efnum til förgunar.
|
|
Lesa meira...
|
|
Stjórnmálaflokkarnir skýra afstöðu sína til hagsmunamála SVÞ |
|
|
|
Fimmtudagur, 22. Mars 2007 |
SVÞ og stjórnmálaflokkarnir - eigum við samleið var yfirskrift aðalfundar SVÞ-Samtaka verslunar og þjónustu sem haldin var í dag. Formenn þeirra fimm stjórnmálaflokka sem eiga fulltrúa á Alþingi voru sérstakir gestir fundarins og útskýrðu þeir afstöðu flokka sinna til nokkurra þeirra hagsmunamála sem SVÞ hafa beitt sér fyrir. Svörin voru fróðleg og komu sum á óvart.
|
|
Lesa meira...
|
|
Ráðherra kynnir nýja lyfjastefna til ársins 2012 |
|
|
|
Fimmtudagur, 08. Mars 2007 |
|
Siv Friðleifsdóttir heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra kynnti í dag nýja lyfjastefnu til ársins 2012. Í lyfjastefnunni eru dregin fram þau atriði sem betur mega fara í lyfjamálum á Íslandi og sett fram áætlun um úrbætur.Þetta er í fyrsta skipti sem slík stefna til lengri tíma er sett fram hér á landi.
|
|
Lesa meira...
|
|
Agnar til Titan Invest |
|
|
|
Sunnudagur, 25. Febrúar 2007 |
Agnar Már Jónsson, fyrrverandi forstjóri Opinna kerfa, hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Titan Invest og samhliða því mun hann taka sæti í stjórn Titan ehf.
|
|
Lesa meira...
|
|
Invent Farma og Strides Arcolab í samstarf |
|
|
|
Mánudagur, 12. Febrúar 2007 |
Íslenska lyfjafyrirtækið Invent Farma ehf. og indverski lyfjaframleiðandinn Strides Arcolab Ltd. hafa stofnað tvö ný samstarfsfyrirtæki sem eru í jafnri eigu félaganna tveggja. Annars vegar er um að ræða Domac Laboratories sem fyrst um sinn mun leggja áherslu á að þróa og selja lyf til sjúkrastofnana á Spáni og í Portúgal. Hins vegar er um að ræða eignarhaldsfélagið Plus Farma á Íslandi sem nýlega festi kaup á lyfjafyrirtækinu Farma Plus með aðsetur í Osló í Noregi.
|
|
Lesa meira...
|
|
Hreyfing fyrir alla |
|
|
|
Föstudagur, 09. Febrúar 2007 |
Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, hefur stofnað til tilraunaverkefnisins Hreyfing fyrir alla sem er samstarfsverkefni heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins, Lýðheilsustöðvar og Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands.
|
|
Lesa meira...
|
|
Heilbrigði og forvarnir í sókn-með samtakamætti landsmanna |
|
|
|
Miðvikudagur, 07. Febrúar 2007 |
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra hefur mótað stefnu í forvarnarmálum undir kjörorðinu: Heilbrigði og forvarnir í sókn - með samtakamætti landsmanna. Markmiðið er að tryggja að sjónarmiða lýðheilsu verði gætt í ríkari mæli en verið hefur við alla stefnumótun og ákvarðanatöku í samfélaginu. Stefnumótunin byggir á heilbrigðisáætlun til 2010 og ítarlegri aðgerðaáætlun Lýðheilsustofnunar á þessu sviði og er gert ráð fyrir að nota 50-60 milljónir króna á þessu ári til að vinna að framgangi málsins.
|
|
Lesa meira...
|
|
Samskip kaupa skoskt flutningsmiðlunarfyrirtæki |
|
|
|
Mánudagur, 05. Febrúar 2007 |
Samskip hafa fest kaup á skoska flutningsmiðlunarfyrirtækinu Saltire Integrated Shipping Limited í Glasgow. Rekstur fyrirtækisins verður áfram undir eigin nafni en aðlagaður að starfsemi Samskipa á Bretlandseyjum. Kaupverðið er trúnaðarmál.
|
|
Lesa meira...
|
|
Ingibjörg og Ólafur stofna velgerðarsjóð og gefa milljarð króna í hann |
|
|
|
Laugardagur, 20. Janúar 2007 |
Sigurður Einarssopn, stjórnarformaður Kaupþings og stjórnarmaður í nýja sjóðnum, stýrði blaðamannafundinum og kynnti aðdragandann í upphafi. sjóðsins. Auk hans, Ingibjargar og Ólafs hefur Þórunn Sigurðardóttir, listrænn stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík og stjórnarmaður í UNICEF á Íslandi, tekið sæti í stjórn velgerðarsjóðsins og fylgdi stofnun hans úr hlaði á fréttamannafundinum.
|
|
Lesa meira...
|
|
Kvenréttindafélag Íslands opnar nýja heimasíðu |
|
|
|
Föstudagur, 19. Janúar 2007 |
Kvenréttindafélag Íslands hefur opnað nýja heimasíðu á léninu www.krfi.is.
Á heimasíðunni er að finna kynningu á starfsemi félagsins og alla helstu viðburði sem Kvenréttindafélag Íslands stendur fyrir. Auk þess er að finna ýmsan fróðleik um sögu félagsins og myndasafnið er orðið nokkuð fjölbreytt.
Ásgerður Edda Langworth, ráðgjafi hjá Athygli sá alfarið um uppsetningu síðunnar í samráði við stjórn Kvenréttindafélags Íslands.
|
|
Lesa meira...
|
|
Íslensk Passat auglýsing gerir það gott! |
|
|
|
Miðvikudagur, 17. Janúar 2007 |
Ímyndarauglýsing fyrir Volkswagen Passat sem Hvíta húsið og Saga film gerðu fyrir bifreiðaumboðið HEKLU er nú sýnd við góðan orðstír á sjónvarpsstöðvum í Suður-Kóreu og Ungverjalandi. Útlit er fyrir að hróður íslenskrar auglýsingagerðar berist víðar því þegar hefur komið fyrirspurn frá Taívan um afnot af íslensku Passat-auglýsingunni.
|
|
Lesa meira...
|
|
Þjónusta - það er málið |
|
|
|
Miðvikudagur, 17. Janúar 2007 |
Á næstu fjórum árum ætlar íslenska ríkið að spara 1600 milljónir króna með því að bjóða út ýmis þjónustuverkefni á almennum markaði sem í dag eru unnin hjá hinu opinbera. Þetta er meðal þess sem fram kemur í blaðinu Þjónusta - það er málið sem Athygli hefur unnið fyrir SVÞ-Samtök verslunar og þjónustu og sem í dag var dreift til áskrifenda Morgunblaðsins.
|
|
Lesa meira...
|
|
Samið um fyrstu skrefin að tvöföldun á Kjalarnesi og undir Hvalfirði |
|
|
|
Mánudagur, 15. Janúar 2007 |
Fulltrúar Spalar og Vegagerðarinnar hafa undirritað samkomulag sem líta verður á sem fyrsta formlega skrefið að því marki að tvöfalda þjóðveginn um Kjalarnes og gera ný göng undir Hvalfjörð.
|
|
Lesa meira...
|
|
Samskip byggja upp gámamiðstöð í Zeebrugge í Belgíu |
|
|
|
Þriðjudagur, 09. Janúar 2007 |
Vegna aukinna umsvifa í Evrópuflutningum Samskipa hefur félagið tekið upp samstarf við hafnaryfirvöld í Zeebrugge í Belgíu um uppbyggingu gámamiðstöðvar þar. Hefjast siglingar á vegum Samskipa á milli Zeebrugge og hafna á Írlandi strax í þessum mánuði. Áform eru um enn frekari flutninga til og frá Zeebrugge.
|
|
Lesa meira...
|
|
|