|
Samið um sölu á 150 þúsund OSRAM perum |
|
|
|
Miðvikudagur, 05. Desember 2007 |
|
Nýlega var gengið frá samningi milli Volta hf, umboðsaðila fyrir OSRAM á Íslandi og fyrirtækja innan Samorku, sem eru samtök orku- og veitufyrirtækja, um sölu á um 50 þúsund OSRAM ljósaperum árlega næstu þrjú árin. Samningurinn sem gildir til 31. des. 2010 var gerður í kjölfar útboðs sem efnt var til fyrr á þessu ári en alls bárust þá 8 tilboð frá 7 fyrirtækjum.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Samskip kaupa alþjóðlegu frystivöru- og flutningsmiðlunina ICEPAK |
|
|
|
Fimmtudagur, 29. Nóvember 2007 |
Samskip hafa keypt frystivöru- og flutningsmiðlunina ICEPAK sem er með víðtæka alþjóðlega starfsemi og skrifstofur á Bretlandseyjum, í Bandaríkjunum og Ástralíu.
|
|
Lesa meira...
|
|
Samskip semja við Sjóvá um vátryggingar |
|
|
|
Miðvikudagur, 28. Nóvember 2007 |
Samskip og Sjóvá hafa gert með sér samning um að Sjóvá annist allar vátryggingar Samskipa hér á landi. Jafnframt sameina félögin krafta sína á sviði forvarna með það að markmiði að fækka enn frekar slysum á þjóðvegum landsins og auka öryggi vegfarenda.
|
|
Lesa meira...
|
|
Gestum boðið að mála - Listasafn Árnesinga bryddar upp á nýjungum |
|
|
|
Fimmtudagur, 22. Nóvember 2007 |
Stefnumót við safneign, - listir, leikur og lærdómur er heiti nýrrar sýningar í Listasafni Árnesinga sem hefst laugardaginn 24. nóvember nk. kl. 15. Á sýningunni eru valin verk úr eigu safnsins, að mestu leyti úr gjöf Bjarnveigar Bjarnadóttur og sona.
|
|
Lesa meira...
|
|
Jólaþorp í Hafnarfirði |
|
|
|
Miðvikudagur, 21. Nóvember 2007 |
Á morgun, fimmtudaginn 22. nóvember, verður veglegu jólablaði um Hafnarfjörð dreift til lesenda Morgunblaðsins svo og í hvert hús í bænum. Þetta er annað árið í röð sem slíkt blað kemur út en það er í tilefni af opnun Jólaþorpsins á Thorsplani nk. laugardag. Athygli gefur blaðið út í samvinnu við Hafnarfjarðarbæ og sáu starfsmenn félagsins um alla efnisöflun, sölu auglýsinga og umbrot.
|
|
Lesa meira...
|
|
Ferðamálasamtök Íslands vilja fresta flutningi |
|
|
|
Mánudagur, 19. Nóvember 2007 |
Á aðalfundi Ferðamálasamtaka Íslands sem haldin var í síðustu viku var samþykkt ályktun þar sem þeim eindregnu tilmælum er beint til Alþingis að fresta fyrirhuguðum flutningi á málefnum ferðamála frá samgönguráðuneyti til iðnaðarráðuneytis.
|
|
Lesa meira...
|
|
Hreinn Friðfinnsson er heiðursverðlaunahafi Myndstefs 2007 |
|
|
|
Fimmtudagur, 15. Nóvember 2007 |
Hreinn Friðfinnsson myndlistarmaður er handhafi heiðursverðlauna Myndstefs árið 2007 sem forseti Íslands afhenti við athöfn í Listasafni Íslands í dag. Edda Jónsdóttir í Gallerí I8 veitti verðlaununum viðtöku í fjarveru Hreins.
|
|
Lesa meira...
|
|
Töltkeppni í verslunarmiðstöð |
|
|
|
Fimmtudagur, 15. Nóvember 2007 |
|
Í tilefni af útgáfu 30 ára afmælisrits Eiðfaxa verður efnt til afmælishátíðar í Vetrargarðinum í Smáralind á milli kl.16:00 og 19:00 á morgun föstudag 16. nóvember. Þar munu margir af fremstu knöpum landsins úr Meistaradeild VÍS sýna hesta sína og taka þátt í keppni í hægatölti. Þetta verður í fyrsta skipti sem slík keppni fer fram innanhúss í verslunarmiðstöð hér á landi.
|
|
Lesa meira...
|
|
Hátíð trjánna - fjáröflun Barnaheilla: 17 milljónir söfnuðust á einu kvöldi |
|
|
|
Þriðjudagur, 13. Nóvember 2007 |
Barnaheill stóðu fyrir sínum árlega fjáröflunarkvöldverði, Hátíð trjánna - list í þágu barna, á Hilton Reykjavík Nordica s.l. föstudag. Þar voru boðin upp 11 listaverk sem öll seldust og nam ágóði kvöldsins 17 milljónum króna. Mun hann óskiptur renna til verkefna Barnaheilla hérlendis og erlendis. Hæsta verð fékkst fyrir verkið Skugga eftir Steinunni Þórarinsdóttur en það seldist á 2,5 milljónir króna.
|
|
Lesa meira...
|
|
Tilnefningar til heiðursverðlauna Myndstefs 2007 |
|
|
|
Mánudagur, 12. Nóvember 2007 |
Sex myndhöfundar keppa að þessu sinni um heiðursverðlaun Myndstefs, myndhöfundasjóðs Íslands, sem forseti Íslands úthlutar. Þetta er í þriðja sinn sem verðlaununum er úthlutað en þau eru veitt fyrir afburða framlag til myndlistar, framúrskarandi myndverk eða sýningu.
|
|
Lesa meira...
|
|
Samstarfssamningur VGK-Hönnunar og Háskólans í Reykjavík |
|
|
|
Miðvikudagur, 07. Nóvember 2007 |
Verkfræðistofan VGK-Hönnun og Háskólinn í Reykjavík hafa gert með sér samkomulag til þriggja ára sem felur í sér fjárhagslegan stuðning að upphæð 22,5 milljónir króna til tækni- og verkfræðideildar HR.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
|
|
Bls. 1 af 9 |