|
Sex tilnefnd til heiðursverðlauna Myndstefs |
|
|
|
Mánudagur, 13. Nóvember 2006 |
Sex myndhöfundar, þrjár konur og þrír karlar, keppa um heiðursverðlaun Myndstefs, myndhöfundasjóðs Íslands, sem forseti Íslands úthlutar við hátíðlega athöfn þann 21. nóvember næstkomandi.
Þetta er í annað sinn sem heiðursverðlaunum Myndstefs er úthlutað en þau eru veitt fyrir afburða framlag til myndlistar, framúrskarandi myndverk eða sýningu. Verðlaunin nema samtals einni milljón króna. Landsbanki Íslands er fjárhagslegur bakhjarl heiðursverðlaunanna og leggur til helming verðlaunafjárins en hinn helmingurinn kemur úr sjóðum Myndstefs.
Myndhöfundarnir sem tilnefndir eru að þessu sinni eru:
- Andrés Kolbeinsson fyrir merkt framlag til íslenskrar ljósmyndalistar sem kynnt var almenningi í fyrsta sinn á yfirlitssýningu á vegum Ljósmyndasafns Reykjavíkur sumarið 2006.
- Atli Hilmarsson fyrir fjölþætt verkefni á sviði grafískrar hönnunar, meðal annars í tengslum við landnámssýninguna Reykjavík 871+/- í kjallara Aðalstrætis 16 og Sjónlist 2006 á Akureyri.
- Birgir Andrésson fyrir persónulegt framlag á sviði myndlistar og frumlega túlkun á íslenskum þjóðareinkennum í verkum sínum á yfirlitssýningu í Listasafni Íslands vorið 2005.
- Rúrí fyrir gjörninginn Tileinkun, sem fram fór við Drekkingarhyl á Þingvöllum í tengslum við samsýninguna Mega vott í Hafnarborg haustið 2006, og fyrir áhrifamikið framlag til íslenskrar myndlistar.
- Sigríður Sigþórsdóttir, VA arkitektum, fyrir hönnun lækningalindar Bláa lónsins og Landnámsseturs í Borgarnesi, þar sem næm tilfinning og virðing fyrir náttúrulegu umhverfi og sögulegu samhengi er einkennandi.
- Valgerður Bergsdóttir fyrir steinda glugga í Reykholtskirkju, sýningarnar Teikn og hnit og AND-LIT í Gerðarsafni og fyrir fjölþætt störf á vettvangi íslenskrar myndlistar sem kennari, stjórnandi og myndlistarmaður.
Kallað var eftir ábendingum frá aðildarfélögum Myndstefs, sem og frá einstökum félagsmönnum, og valdi þriggja manna dómnefnd, skipuð þeim Valgerði Hauksdóttur myndlistarmanni, Pétri Ármannssyni arkitekt og Björgólfi Guðmundssyni, stjórnarformanni Landsbanka Íslands, sexmenningana úr þeim hópi. Hver hreppir hnossið verður ljóst þriðjudaginn 21. nóvember næstkomandi, þegar forseti Íslands afhendir heiðursverðlaunin við hátíðlega athöfn í Listasafni Íslands.
Innan vébanda Myndstefs eru á fjórtánda hundrað manns í sex aðildarfélögum: Sambandi íslenskra myndlistarmanna, Ljósmyndarafélagi Íslands, Félagi íslenskra teiknara, Félagi grafískra teiknara, Arkitektafélagi Íslands og Félagi leikmynda- og búningahöfunda. Einnig eiga aðild að Myndstefi allmargir erfingjar að myndhöfundarétti. |