Forsíða Fréttir Fréttir 2006 HYDRO opnar skrifstofu í Reykjavík
HYDRO opnar skrifstofu í Reykjavík Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Föstudagur, 17. Nóvember 2006
Hydro opnar skrifstofu í ReykjavíkHydro hefur opnað skrifstofu á Íslandi með það að markmiði að leita uppi og þróa ný umhverfisvæn viðskiptatækifæri á sviði ál- og orkuframleiðslu. Norður-Atlantshafsskrifstofan er til húsa að Smiðshöfða 1 í Reykjavík og þjónar bæði Íslandi og Kanada.

Hydro hefur stundað viðskipti á Íslandi í nokkur ár, bæði í tengslum við áliðnað og orkuvinnslu. Hydro sér álveri Norðuráls fyrir tæknibúnaði vegna álframleiðslunnar. Hydro lagði einnig af mörkum tæknibúnað fyrir tilraunavetnisstöðina á Ártúnshöfða sem sér íslensku vetnisstrætisvögnunum fyrir umhverfisvænu eldsneyti.

Hydro byggir á sterkri stöðu sinni varðandi þróun tæknibúnaðar í áliðnaði. Þar hefur fyrirtækið tekið forystu og þróað búnað til álvinnslu sem er í fremstu röð þegar kemur að því að draga sem mest úr umhverfisáhrifum álframleiðslunnar. Hydro framleiðir einnig tæknibúnað til álsteypu.

Talið er að eftirspurn eftir orku í heiminum mun aukast um 60% fram til ársins 2030. Hydro starfar innan orkugeirans um heim allan, bæði sem orkunotandi og orkuframleiðandi (vatnsorka, olía og gas og vindorka). Hydro vinnur einnig að tækniþróun í orkumálum, s.s. við leit, nýtingu og vinnslu á olíu og gasi, vetnisframleiðslu, koltvísýringsbindingu, vindmyllur á sjó og undan ströndum, sjávarfallaorku, vinnslu eldsneytis úr lífmassa og lífrænu gasi ásamt tilraunum með notkun efnarafala og sólarorku.

Hydro gerir ráð fyrir því að eftirspurn eftir áli hafi tvöfaldast á heimsvísu árið 2020. Ál er eitt af umhverfisvænstu hráefnum sem fáanlegt er og einstakir eiginleikar þess, t.d. léttleiki og styrkur, gera það mjög samkeppnishæft í öllum iðnaði til framtíðar litið. Því leitar Hydro að nýjum tækifærum í álframleiðslu víðsvegar um heiminn, á svæðum þar sem hagkvæma orkugjafa er að finna.

Það er ætlun Hydro með opnun skrifstofunnar á Íslandi að leita uppi og móta ný viðskiptatækifæri á sviði álframleiðslu, samtímis því sem skrifstofunni er ætlað að styðja enn frekar við þá starfsemi sem fyrirtækið er þegar með á Íslandi. Jafnframt verður sjónum beint að nýjum umhverfisvænum viðskiptatækifærum á sviði ál- og orkuframleiðslu, í sátt og samlyndi við íslenskt samfélag. Framkvæmdastjóri Norður-Atlantshafsskrifstofunnar er Bjarne Reinholdt.

Hydro er á Fortune 500 fyrirtækjalistanum og hefur einsett sér að auka lífvænleika samfélagsins með nýtingu náttúrulegra auðlinda á framsækinn og skilvirkan hátt. Hydro sinnir olíu-, orku og álframleiðslu og starfa nærri 35.000 manns í rúmlega 40 löndum hjá fyrirtækinu.

Kynnignarfundur Hydro fyrir valda gesti á Hótel Nordica. Bjarne Reinholdt er fremstur á myndinni. Myndir: -áþj