|
Heiðursverðlaunahafi Myndstefs 2006 |
|
|
|
Þriðjudagur, 21. Nóvember 2006 |
Valgerður Bergsdóttir er handhafi heiðursverðlauna Myndstefs árið 2006 sem forseti Íslands afhenti við hátíðlega athöfn í Listasafni Íslands í dag. Viðurkenninguna hlýtur Valgerður fyrir hönnun og gerð steindra glugga í Reykholtskirkju og fyrir sýningarnar Teikn og hnit og AND-LIT í Gerðarsafni fyrr á þessu ári. Jafnframt er Valgerður heiðruð fyrir fjölþætt störf á vettvangi íslenskrar myndlistar sem kennari, stjórnandi og myndlistarmaður.
Heiðursverðlaun Myndstefs, Myndhöfundasjóðs Íslands, nema samtals einni milljón króna og er þeim nú úthlutað í annað sinn. Helmingur verðlaunaupphæðarinnar kemur úr sjóðum Myndstefs en Landsbanki Íslands, sem er fjárhagslegur bakhjarl heiðursverðlaunanna, leggur til hinn helminginn.
Það er einróma niðurstaða dómnefndar, sem skipuð var þeim Valgerði Hauksdóttur myndlistarmanni, Pétri Ármannssyni arkitekt og Björgólfi Guðmundssyni, stjórnarformanni Landsbanka Íslands, að verðlaunin hljóti að þessu sinni Valgerður Bergsdóttir myndlistarmaður.
Nýstárleg nálgun Í umsögn dómnefndar kemur fram að í steinglersgluggum Reykholtskirkju nálgist Valgerður aldagamalt listform á nýstárlegan hátt með því að leggja fremur áherslu á formteikningu en litaspil.
„Frjálslega teiknuð og samfléttuð hringform mynda þar meginstef ásamt mismunandi blæbrigðum hliðstæðra litatóna. Valgerður er í hópi færustu teiknara og í þessu verki tekst henni að yfirfæra frjálst og leikandi handbragð yfir í miðil glersins á þann veg sem ekki hefur áður sést,“ segir m.a.í áliti dómnefndarinnar.
Steinglersgluggarnir byggja á ítarlegum rannsóknum og hugmyndavinnu listamannsins á margra ára tímabili, þar sem áhrif frá ólíkum menningarskeiðum myndmáls, táknfræði og ritlistar koma við sögu.
Efnt var til samkeppni um verkefnið árið 1992 þar sem tillaga Valgerðar var valin til útfærslu. Lokið var við hringglugga á austur- og vesturstafni árið 2003 og á 10 ára vígsluafmæli Reykholtskirkju í sumar voru langgluggar á hliðarskipum afhjúpaðir. Þykir dómnefndinni að Valgerði hafi tekist afar vel að fella verk sitt að andblæ og innra rými kirkjunnar svo úr verði órofa listræn heild, um leið og hún feti nýjar brautir á sviði glerlistar.
Þá miklu vinnu og hugsun sem Valgerður lagði í útfærslu Reykholtsglugganna mátti sjá á sýningunni Teikn og hnit í Gerðarsafni, þar sem m.a. voru sýndar vinnuteikningar í fullri stærð. Samtímis kom Valgerður að undirbúningi sýningarinnar AND-LIT á verkum móður sinnar, myndlistarkonunnar Valgerðar Briem.
Sex tilnefniningar Auk Valgerðar voru eftirtaldir myndhöfundar tilnefndir til heiðursverðlauna Myndstefs 2006: Andrés Kolbeinsson ljósmyndari, Atli Hilmarsson grafískur hönnuður, Sigríður Sigþórsdóttir arkitekt og myndlistarmennirnir Birgir Andrésson og Rúrí.
Innan vébanda Myndstefs eru á fjórtánda hundrað manns í sex aðildarfélögum, Sambandi íslenskra myndlistarmanna, Ljósmyndarafélagi Íslands, Félagi íslenskra teiknara, Félagi grafískra teiknara, Arkitektafélagi Íslands og Félagi leikmynda- og búningahöfunda. Einnig eiga aðild að Myndstefi allmargir erfingjar að myndhöfundarétti.
Athygli ehf. annaðist fjölmiðlasamskiupt vegna Heiðursverðlauna Myndstefs 2006.
 |