Forsíða Fréttir Fréttir 2006 Athygli gefur út jólablað Hafnarfjarðar
Athygli gefur út jólablað Hafnarfjarðar Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Föstudagur, 24. Nóvember 2006
Jólablað HafnarfjarðarBlaðið Hafnarfjörður - Velkomin í Jólaþorpið kom út í vikunni. Eins og nafnið ber með sér er Jólaþorpið á Thorsplani og fjölbreytt dagskrá á aðventunni tilefni þessar útgáfu. Starfsfólk Athygli ehf. hafði umsjón með útgáfu blaðsins, sá um efnisöflun, sölu auglýsinga og umbrot.

Meðal efnis í blaðinu eru viðtöl við nokkra einstaklinga sem eru með sölubása í Jólaþorpinu, en þeir koma hver úr sinni áttinni og selja margskonar varning. Þar má meðal annars nefna konfektgerðarkonu frá Belgíu, pólskar nunnur sem selja kerti, hönnuð með sköpunarkraft og handverkskonur sem bjóða ýmiskonar leirvörur.

Í blaðinu segja bæjarfulltrúarnir Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, Rósa Guðbjartsdóttir og Lúðvík Geirsson frá jólaundirbúningi og bakstri á sínum heimilum. „Gleðin sem skín úr augum barnanna besta gjöfin og ekkert stenst henni snúning,“ segir Rósa meðal annars í viðtali.

Í blaðinu er viðtal Þórarinn Guðnason forstöðumann Kvikmyndasafns Íslands sem er í Hafnarfirði, kaupkonurnar í Seymu segja frá selskapfatnaði, rætt er við einu starfandi netagerðarkonu landsins og fasteignasali segir frá sívaxandi vinsældum þess að búa í Hafnarfirði. Er þá fátt eitt nefnt af mörgu áhugaverðu í blaðinu.

Hafnarfjörður - Velkomin í Jólaþorpið var dreift til áskrifenda Morgunblaðsins um allt land aukinheldur sem blaðið fór til allra heimila og fyrirtækja í Hafnarfirði. Umsjón og ábyrgð með útgáfu fyrir hönd Athygli hafði Sigurður Bogi Sævarsson blaðamaður en Steinunn Þorsteinsdóttir upplýsingafulltrúi hafði hönd í bagga með útgáfunni fyrir hönd Hafnarfjarðarbæjar.