| AT tímarit komið út |
|
|
| Fimmtudagur, 30. Nóvember 2006 |
Annað tölublað AT tímarits 2006 er komið út en það er gefið út af Athygli ehf. í samvinnu við Arkitektafélag Íslands og Félag íslenskra landslagsarkitekta. Blaðið er stútfullt af áhugaverðu efni um arkitektúr, skipulag og landmótun.Meðal efnis í blaðinu nú má nefna ítarlegt viðtal við Pétur H. Ármannsson arkitekt, 10 síðna grein í máli og myndum er um sendiherrabústað Íslands í Berlín og önnur löng grein um Bláa lónið - Heiluslind, en þessi tvö verk eru unnin af íslenskum arkitektum og hafa vakið mikla athygli víða um heim. Þá er í blaðinu að finna áhugaverða grein eftir Óskar Valdimarsson, forstjóra Framkvæmdasýslu ríkisins er hann nefnir Gæðastjórnun við mannvirkjagerð og ekki síður áhugaverð umfjöllun er um andrými í manngerðu umhverfi eftir Braga Bergsson, ungan nema á Umhverfisskipulagsbraut LBHÍ. Í blaðinu er fjallað um þrjár samkeppnir arkitekta og niðurstöður þeirra kynntar, fjallað er um arkitektúr á svokölluðu Þróttarsvæði í Reykjavík og skipulag lóðar að Grænumörk 2 á Selfossi kynnt til sögunnar svo fátt eitt sé nefnt. Ritstjóri AT tímarits er Valþór Hlöðversson hjá Athygli ehf. Tímaritið er prentað á gæðapappír hjá Gutenberg ehf., er 124 síður að stærð og því dreift til fagaðila hér heima og erlendis auk þess sem það er til sölu í bókabúðum Pennans. |