|
Njörður P. Njarðvík, rithöfundur og fyrrverandi prófessor, hlýtur Barnamenningarverðlaun Velferðarsjóðs barna árið 2006 fyrir ómetanlegt starf til hjálpar munaðarlausum börnum í Afríku. Verðlaunaféð, fjórar milljónir króna, verður nýtt til frekari uppbyggingar á heimilum fyrir munaðarlaus börn á vegum hugsjónafélagsins SPES. Alls var úthlutað 11 milljónum króna úr Velferðarsjóði barna að þessu sinni, þ.á.m. 1½ milljón króna til nýs stuðningsverkefnis fyrir drengi, sem eru ofvirkir eða með skyldar hegðunarraskanir, og tveimur milljónum til að styðja börn sem flosnað hafa upp úr skóla og vilja bæta grunnmenntun sína.
Þetta er í annað sinn sem Barnamenningarverðlaun Velferðarsjóðs barna eru veitt og í greinargerð með verðlaununum kemur fram að þau hljóti að þessu sinni einstaklingur sem "hefur lyft Grettistaki til hjálpar munaðarlausum börnum í Afríku".
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðargreiningar, afhenti Nirði P. Njarðvík verðlaunin við hátíðlega athöfn í Iðnó í dag, fjaðurstaf og bók úr silfri eftir Dýrfinnu Torfadóttur gullsmið og ávísun að upphæð fjórar milljónir króna.
Hugsjónafélagið SPES starfar undir kjörorðinu Sá sem bjargar einu barni bjargar mannkyninu. Stefna þess er að koma upp og reka heimili fyrir munaðarlaus börn í þróunarlöndum og er allt stjórnarstarf unnið í sjálfboðavinnu, skrifstofu- og umsýslukostnaður er enginn og öllum öðrum kostnaði er haldið í lágmarki.
Aðrar úthlutanir Við sama tækifæri var einnig úthlutað styrk upp á 1½ milljón króna til sumarbúðastarfs í Vatnaskógi, sem fengið hefur nafnið Gauraflokkurinn, og er fyrir 10-12 ára drengi sem eru ofvirkir eða með skyldar hegðunarraskanir.
Ábyrgðarmenn verkefnisins eru Bóas Valdórsson, sálfræðingur á Barna- og unglingageðdeild, og séra Sigurður Grétar Sigurðsson, sóknarprestur á Hvammstanga. Þess er vænst að dvöl í Gauraflokki auki sjálfstraust þessara drengja og hafi uppbyggileg áhrif á sjálfsímynd þeirra.
Þá fékk Framtíðarsjóður hjálparstarfs kirkjunnar í dag afhentar tvær milljónir króna til að styrkja til mennta ungmenni sem hafa flosnað upp úr skóla og eru án grunnmenntunar. Felst stuðningurinn í að greiða skólagjöld og annan kostnað er að náminu lítur.
Hjálparstarf kirkjunnar og Mæðrastyrksnefnd fengu hvort um sig eina milljón króna til að gleðja fyrir jólin börn sem búa við erfiðar aðstæður. Styrknum er ætlað að standa straum af fatakaupum fyrir börnin.
Geisladiskum með uppbyggjandi efni, tengdu jólum fyrr og nú, verður úthlutað til allra 258 leikskóla landsins. Jafnframt fær Mæðrastyrksnefnd úthlutað yfir 200 diskum til að setja með jólafötunum sem afhent verða um miðjan desember þeim börnum sem þess þurfa. Kostnaður við gerð diskanna nam samtals um einni milljón króna.
Enn má nefna að samvinnuverkefni Laugarneskirkju, Laugalækjarskóla og Íþróttafélags fatlaðra í Reykjavík, Harðjaxlarnir, hlaut 200 þúsund króna styrk og Bjöllukórinn fékk 300 þúsund króna styrk úr sjóðnum.
400 milljónir á sex árum Íslensk erfðagreining stofnaði Velferðarsjóð barna fyrir rúmlega sex árum og er frumkvöðull hér á landi hvað varðar slíkan styrktarsjóð. Á þessum sex árum hefur nú alls verið úthlutað úr sjóðnum um 400 milljónum króna til margvíslegra verkefna. Þau helstu eru:
- Mentorverkefnið Vinátta sem starfrækt hefur verið á sjötta ár og fjöldi þátttakenda er að nálgast 900 hefur hlotið um 65 milljónir króna.
- Rjóður, endurhæfingar- og hjúkrunarheimili fyrir langveik börn, sem starfrækt er í Kópavogi hefur hlotið um 100 milljónir króna. Þar dvelja nú 10 börn í senn í lengri eða skemmri tíma. Fyrirhugað er að Velferðarsjóður barna standi að enn frekari uppbyggingu þar.
- Grunnskólaverkefnið Víðátta hefur hlotið um 20 milljónir króna.
- Styrkir til forvarna og fræðslumyndagerðar/leiksýninga nema um 10 milljónum króna.
- Um 20 milljónir króna hafa farið í kennsluefni, fræðslustarf og ráðstefnur til handa börnum.
- Styrkir til ýmissa framfaramála nema samtals um 45 milljónum króna.
- Sumargjafir til barna, sem búa við erfiðar aðstæður, styrkir sem veittir eru í samstarfi við Mæðrastyrksnefnd, Hjálparstarf kirkjunnar og félagsþjónustu 8 sveitarfélaga, nema samtals um 50 milljónum króna. Þar með taldir eru styrkir til Foreldra- og styrktarfélags Öskjuhlíðarskóla og ferðastyrkir til félagasamtaka sem fagráð Velferðarsjóðs barna hefur haft umsjón með.
- Styrkur til Félag lesblindra, samtals að upphæð 4½ milljón króna.
- Um 50 milljónir króna til ýmissa verkefna í þágu barna, bæði stærri og smærri styrkir.
Um sjóðinn Stofnfjármagn Velferðarsjóðs barna, rúmur hálfur milljarður króna, kom frá Íslenskri erfðagreiningu. Markmið sjóðsins er að hlúa að velferð og hagsmunamálum barna á Íslandi, m.a. með fjárframlögum til heilbrigðis-, velferðar- og menntamála og samtaka og félaga á Íslandi sem hafa velferð og lækningar barna að megintilgangi. Markmiðum með stofnun sjóðsins skal náð með beinum fjárframlögum og styrkjum, svo sem nánar greinir í skipulagsskrá Velferðarsjóðs barna. Úthlutað er ú sjóðnum 6-8 sinnum á ári.
Í stjórn Velferðarsjóðs barna sitja Bjarni Ármannsson, forstjóri Glitnis, fulltrúi atvinnulífsins og formaður sjóðsstjórnar, Kári Stefánsson forstjóri og fulltrúi Íslenskrar erfðagreiningar, og Sólveig Guðmundsdóttir lögfræðingur, fulltrúi heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra. Framkvæmdastjóri sjóðsins er Ingibjörg Pálmadóttir.
Fagráð sjóðsins, sem m.a. kemur með tillögur til sjóðsstjórnar um úthlutun styrkja, skipa Valgerður Ólafsdóttir, Þórólfur Þórlindsson, Guðrún Helgadóttir, Elín Þorgeirsdóttir, Þórkatla Aðalsteinsdóttir, Grétar H. Gunnarsson og Rósa Guðbjartsdóttir.
Velferðarsjóður barna er til húsa að Krókhálsi 5d í Reykjavík.

|