Forsíða Fréttir Fréttir 2006 Veglegt Akureyrarblað komið út
Veglegt Akureyrarblað komið út Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Fimmtudagur, 07. Desember 2006
Veglegt AkureyrarblaðÍ dag var dreift til áskrifenda Morgunblaðsins og í öll hús á Akureyri blaðinu Akureyri -  eins og í útlöndum!, sem Athygli og Kaupmannafélag Akureyrar gefa út.

Þetta er þriðja árið sem þessir aðilar gefa út slíkt blað á jólaföstu og er blaðið í ár það veglegasta til þessa. Árið 2004 voru síðurnar 32, í fyrra voru þær 36 og í ár 52.

Sem fyrr er fjallað vítt og breitt um málefni Akureyrar - frá ýmsum sjónarhornum. Verslun og þjónusta, iðnaður, menningarmál, afþreying og fleira.

Óskar Þór Halldórsson á Athygli á Akureyri skrifaði blaðið að stórum hluta og naut aðstoðar Sigurðar Boga Sævarssonar á Athygli í Reykjavík. Umbrot var í höndum Jóhanns Ólafs Halldórssonar á Athygli á Akureyri og Guðmundar Þorsteinssonar á Athygli í Reykjavík og Ingibjörg Ágústsdóttir annaðist auglýsingasölu.