Forsíða Fréttir Fréttir 2006 Glæsileg ferðaáætlun Útivistar
Glæsileg ferðaáætlun Útivistar Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Föstudagur, 15. Desember 2006
Glæsileg ferðaáætlun ÚtivistarÍ dag kom út ferðaáætlun Útivistar fyrir árið 2007 en um er að ræða 36 síðna blað sem dreift var til áskrifenda Morgunblaðsins á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurnesjum. Athygli er útgefandi ritsins og annaðist jafnframt auglýsingaöflun og umbrot. Þetta er í fjórða sinn sem Athygli hefur þetta verkefni með höndum.

Í ferðaáætluninni er nákvæmt yfirlit yfir allar ferðir á vegum Útivistar á árinu 2007 og greinar og annað fróðleiksefni um fjölmarga staði sem Útivistarfólk sækir. Fjallað er um Reykjanesskaga, Sveinstind og Skælinga, Kóngsveginn, Búrfell, Fimmvörðuháls, Bása, Laugaveginn, Strútsstíg, Vatnajökul og Grænland. svo eitthvað sé nefnt.

Skúli Skúlason, framkvæmdastjóri Útivistar, hafði umsjón með verkefninu fyrir hönd félagsins og er hann jafnframt ábyrgðarmaður blaðsins. Um val og vinnslu mynda sá Gunnar S. Guðmundsson af alkunnri smekkvísi.