| Aukin umsvif Samskipa í Mið-Ameríku |
|
|
| Miðvikudagur, 27. Desember 2006 |
Vegna aukinna umsvifa Samskipa í Mið-Ameríku hefur verið samið við flutningafélagið Container Transport Solutions Inc. í Panama um að vera umboðsaðili félagsins í þessum heimshluta.Til að byrja með er einkum um að ræða flutninga á ferskum ávöxtum frá Panama til Rotterdam en einnig er verið að kanna möguleika á flutningi sjávarfangs til Evrópu og flutning á osti og fleiri vörum frá Evrópu til Panama. Flutningar á ferskum ávöxtum frá Costa Rica til Rotterdam eru einnig til skoðunar. „Flutningsþjónusta við ávaxta- og grænmetisframleiðendur í Mið- og Suður-Ameríku er ört stækkandi markaður og mjög áhugaverður fyrir okkur,“ segir Ásbjörn Gíslason, forstjóri Samskipa. „Við höfum verið að fikra okkur áfram á þessum vettvangi og opnuðum tvær söluskrifstofur í Brasilíu fyrr á árinu, í borgunum Salvador og Petrolina, og með samstarfinu við Container Transport Solutiions í Panama erum við að styrkja stöðu okkar enn frekar.“ Framkvæmdastjóri Container Transport Solutions er af dönsku bergi brotinn og heitir Paul Bastrup. Hann hefur verið búsettur í Panama í 30 ár og hefur starfað sem umboðsmaður fyrir ýmis skipafélög, nú síðast P&O Nedlloyd sem hann starfaði fyrir þar til á síðasta ári. |