Forsíða Fréttir
Samið við SPITAL hópinn um frumhönnun og gerð alútboðsgagna vegna byggingar nýs Landspítala Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Föstudagur, 27. Ágúst 2010

Samninginn undirrituðu Gunnar Svavarsson, stjórnarformaður hlutafélagsins Nýr Landspítali ohf., og Arinbjörn Friðriksson, stjórnarformaður SPITAL hópsins. Vottar að undirskrift voru Álfheiður Ingadóttir heilbrigðisráðherra, Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, Björn Zoëga forstjóri Landspítala og Halldóra Bragadóttir og Páll Gunnlaugsson, fulltrúar SPITAL.  Ljósmynd: Hreinn MagnússonGengið hefur verið frá samningi um frumhönnun og gerð alútboðsgagna milli SPITAL hópsins, sem bar sigur úr bítum í sumar í hönnunarsamkeppni um nýjan Landspítala, og hlutafélagsins Nýr Landspítali ohf., sem stofnað var í vor til að standa að undirbúningi og útboði á byggingu nýs háskólasjúkrahúss við Hringbraut.

Lesa meira...
 
Fjárhagslegri endurskipulagningu S. Helgasonar ehf. lokið Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Miðvikudagur, 04. Ágúst 2010

Fjárhags- og rekstrarlegri endurskipulagningu S. Helgasonar ehf. er lokið, félags sem rekur stærstu og elstu steinsmiðju landsins og einnig verslun með afurðir sínar að Skemmuvegi 48 í Kópavogi. Jafnframt endurskipulagningunni hefur Eignarhaldsfélagið Björg slhf., sem er í eigu Sparisjóðabanka Íslands, eignast fyrirtækið að fullu og tekið við rekstri þess. Með þeim ráðstöfunum, sem gripið var til, er rekstur þess tryggður.

Lesa meira...
 
Lagfæringar á glerhjúp seinka ekki opnun Hörpu Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Miðvikudagur, 04. Ágúst 2010

Harpa - tónlistar og ráðstefnumiðstöðRannsóknir á álagsþoli sexstrendinganna, sem mynda glerhjúp suðurhliðar Tónlistar- og ráðstefnuhússins Hörpu, hafa leitt í ljós að veggurinn stenst ekki mesta vindálag sem búast má við á næstu 50 árum. Að dómi aðalverktaka hússins, ÍAV, er nauðsynlegt að taka vegginn niður og endurbyggja. Að þeirra mati mun þessi framkvæmd ekki seinka opnun hússins í maí á næsta ári.

Lesa meira...
 
SPITAL hópurinn sigurvegari í samkeppni um hönnun nýs Landspítala við Hringbraut Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Föstudagur, 09. Júlí 2010

 

Sóleyjartorg - vinningstillaga SPITALHönnunarteymið SPITAL varð hlutskarpast í samkeppni um áfangaskipt heildarskipulag fyrir nýtt háskólasjúkrahús við Hringbraut og frumhönnun 1. áfanga nýja spítalans og tengdrar háskólastarfsemi. Niðurstaða dómnefndar var kynnt við hátíðlega athöfn á Háskólatorgi í dag. Í SPITAL teyminu eru ASK arkitektar, Bjarni Snæbjörnsson arkitekt, Kanon arkitektar, Medplan, Teiknistofan Tröð, Landark, Efla verkfræðistofa, Lagnatækni og Norconsult.

Lesa meira...
 
Athygli gefur út "Akureyri" Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Fimmtudagur, 01. Júlí 2010

Akureyri - júlí 2010Í dag, fimmtudaginn 1. júlí, er dreift með Morgunblaðinu blaðinu Akureyri, sem eins og nafnið gefur til kynna hefur að geyma efni um höfuðstað Norðurlands. Athygli gefur blaðið út í samvinnu við Kaupmannafélag Akureyrar og Akureyrarstofu. Efni blaðsins var unnið að stærstum hluta af skrifstofu Athygli á Akureyri og fyrirtækið annaðist einnig umbrot og auglýsingaöflun.

Blaðið berst öllum áskrifendum Morgunblaðsins og er þar að auki dreift í öll hús á Akureyri.

 

Lesa meira...
 
Ragnheiður I. Margeirsdóttir hannar Bleiku slaufuna 2010 Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Mánudagur, 28. Júní 2010

Ragnheiður I. Margeirsdóttir tekur við verðlaunum Nýverið efndu Krabbameinsfélag Íslands og Hönnunarmiðstöð Íslands til samkeppni um hönnun á bleiku slaufunni 2010, tákni Krabbameinsfélagsins í baráttunni gegn krabbameini hjá konum. Fjölmargir tóku þátt í keppninni og dómnefnd fór yfir á áttunda tug tillagna. Það var einróma niðurstaða dómnefndar að hönnun Ragnheiðar I. Margeirsdóttur bæri af og verður slaufan hennar því fjöldaframleidd og seld til styrktar Krabbameinsfélaginu í október.

Lesa meira...
 
Umhverfisráðherra opnar Snæfellsstofu á Skriðuklaustri Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Fimmtudagur, 24. Júní 2010

thjodgardsopnun_anna_svandis_agnesÍ dagtók Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra formlega í notkun Snæfellsstofu á Skriðuklaustri, nýja gestastofu fyrir austursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs. Við þetta tækifæri var einnig opnuð í Snæfellsstofu umhverfisfræðslusýningin „Veraldarhjólið“ sem fjallar um hringrás náttúrunnar með áherslu á samspil gróðurs og dýralífs á svæðinu. Auk sýningarinnar hýsir Snæfellsstofa upplýsinga- og þjónustumiðstöð fyrir ferðafólk og minjagripaverslun auk þess sem þar verða skrifstofur og vinnuaðstaða fyrir starfsfólk þjóðgarðsins.

Lesa meira...
 
Bílaleiga Akureyrar fjölgar Kia bílum í flotanum Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Miðvikudagur, 16. Júní 2010

Bergþór Karlsson framkvæmdastjóri Bílaleigu Akureyrar og Jón Trausti Ólafsson (th)framkvæmdastjóri Öskju innsigla samning um að fjölga stórlega Kia bílum í flota Bílaleigu Akureyrar.  Með þeim á myndinni er Kjartan Baldursson, sölustjóri Kia hjá bílaumboðinu Öskju.Bílaleiga Akureyrar hefur samið við Bílaumboðið Öskju um kaup á liðlega 30 nýjum Kia bifreiðum sem afhentar verða á næstu vikum. Eins og fram hefur komið í sölutölum Bílgreinasambandsins hefur sala á nýjum bílum tekið að glæðast undanfarið og má meðal annars rekja það til þess að bílaleigurnar hafa verið að endurnýja flota sína fyrir sumarið. Forsvarsmenn Bílaleigu Akureyrar eru bjartsýnir á ferðasumarið 2010 og segja að eftirspurn eftir bílaleigubílum sé nú aftur að færast í eðlilegt horf eftir talsverðan samdrátt í bókunum í apríl og maí vegna eldgossins í Eyjafjallajökli.

Lesa meira...
 
Spor þúsunda kvenna Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Fimmtudagur, 10. Júní 2010

krabbameinsfelagid_vefurFimmtudaginn 10. júní kl. 16:00 verður opnuð myndlistarsýningin „ Spor þúsunda kvenna“  í göngugötunni á Garðatorgi. Hluti verksins, sem skapað var í Kvennahlaupinu 2009, hefur verið bútaður niður í litlar myndir sem verða til sýnis og sölu frá 10.- 20. júní , en allur ágóði  rennur óskiptur til Krabbameinsfélags Íslands. Hinn hluti verksins hefur verið keyptur af Garðabæ og mun forstjóri Krabbameinsfélagsins, Ragnheiður Haraldsdóttir, afhenda bænum verkið í dag.

Allir eru velkomnir á opnunina en veitingar verða í boði Vífilfells og Góu.

Fjölmennasti listgjörningur sem gerður hefur verið á Íslandi

Í Kvennahlaupinu 2009, sem haldið var í samstarfi við Krabbameinsfélag Íslands, tóku þúsundir kvenna þátt í sköpun á listaverki er þær hlupu yfir renning við startlínu hlaupsins og mótuðu þannig með sporum sínum glæsilegt listaverk sem skiptist í tvo 10x2 m striga sem endurspegla hvorn annan. Listgjörningurinn var framinn af sautján listakonum frá Garðabæ og Álftanesi sem í kjölfarið hafa stofnað samtökin Grósku.

Lesa meira...
 
Stefnt að stórauknum hlut innlendrar orku í samgöngum Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Fimmtudagur, 03. Júní 2010

Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra afhjúpar hið nýja merki á rafbíl ráðuneytisins. Með henni á myndinni er Hólmfríður Sveinsdóttir formaður nefndar um orkuskipti í samgöngumÁ ráðstefnu um visthæfar samgöngur sem haldin var í Háskólanum í Reykjavík í dag afhjúpaði Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra nýtt merki áætlunar um orkuskipti í samgöngum. Áætlunin kallast „Græna orkan, Vistorka í samgöngum“ og er markmið hennar að byggja upp klasasamstarf þar sem ráðuneyti, stofnanir, sveitarfélög og fyrirtæki geta unnið saman að því sameiginlega markmiði að auka nýtingu á innlendu vistvænni orku.

Lesa meira...
 


JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL
Senda á Facebook