Forsíða Fréttir
Evrópustofa opnuð Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Mánudagur, 23. Janúar 2012

Oddný G. Harðardóttir fjármálaráðherra og Timo Summa, sendiherra Evrópusambandsins á Íslandi, ávörpuðu gesti í tilefni dagsins og hleypt var af stokkum ljósmyndasamkeppnin Ísland og Evrópa.Evrópustofa var opnuð að Suðurgötu 10 á laugardaginn var að viðstöddu fjölmenni. Oddný G. Harðardóttir fjármálaráðherra og Timo Summa, sendiherra Evrópusambandsins á Íslandi, ávörpuðu gesti í tilefni dagsins og hleypt var af stokkum ljósmyndasamkeppnin Ísland og Evrópa.

Lesa meira...
 
Útivist í 90.000 eintökum Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Föstudagur, 16. Desember 2011

Ferðaáætlun Útivistar fyrir árið 2012 er komin út í nýjum búningi en Athygli er útgefandi ritsins í samvinnu við Ferðafélagið Útivist. Blaðið var að þessu sinni prentað í um 90.000 eintökum í dagblaðsbroti og dreift með Finni Morgunblaðsins inn á öll heimili á höfuðborgarsvæðinu nema þau sem hafa beðist undan fjölpósti. Þá fékk Útivist þúsundir eintaka til eigin dreifingar.  Blaðið er stærra en nokkru sinni fyrr, 40 bls. og að mestu fjármagnað með sölu auglýsinga eins og undanfarin ár.



Lesa meira...
 
Akureyrarblað Athygli Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Fimmtudagur, 08. Desember 2011

akbl

Athygli gaf í dag út blaðið Akureyri sem helgað er verslun, þjónustu, menningu og öðru áhugaverðu efni sem tengist Akureyri og nágrenni. Við vinnslu blaðið er samstarf við Kaupmannafélag Akureyrar, Akureyrarstofu og fleiri aðila. Í blaðinu er til að mynda að finna yfirlit um alla viðburði á dagskrá Aðventuævintýris á Akureyri til jóla.

Lesa meira...
 
Samskip dyggur bakhjarl UNICEF á Íslandi Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Fimmtudagur, 08. Desember 2011

Rauttnef1308-webSamskip hafa verið styrktaraðili UNICEF á Íslandi frá upphafi og í tilefni dags rauða nefsins á morgun gaf félagið öllu starfsfólki rauð nef sem sett voru upp í dag, í árlegum hátíðarmat félagsins. Með kaupum á rauðum nefjum fyrir starfsfólkið vilja Samskip leggja sitt af mörkum til söfnunar UNICEF.

Lesa meira...
 
Nýr vefur HRV Engineering Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Fimmtudagur, 08. Desember 2011

hrv vefur

Mikil andlitslyfting hefur verið gerð á vef HRV Engineering og var hann settur formlega í loftið við athöfn 30. nóvember sl., á 15 ára afmæli fyrirtækisins.Nýi HRV vefurinn er á ensku og byggir á eldri vef félagsins sem unnin var af Athygli og Atómstöðinni upp úr aldamótum og var hann því orðinn barn síns tíma.

Athygli hafði umsjón með verkinu í samstarfi við HRV, skipulagði veftré, lagði til texta og hafði hönd í bagga með vali á myndum og innsetningu efnis. Veffyrirtækið Skapalón, arftaki Atómstöðvarinnar, var svo fengið til að hanna vefinn og annast innsetningu efnis en vefurinn er keyrður á nýjasta Disel-vefkerfinu frá Skapalóni.

Lesa meira...
 
VR krefst aðgerða gegn atvinnuleysi Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Miðvikudagur, 07. Desember 2011

 

vrlogoVR hefur hrint af stað herferð til að mótmæla óásættanlegu atvinnuleysi meðal félagsmanna sinna en það hefur nánast fimmfaldast á þremur árum. Til að vekja athygli á atvinnuleysinu hefur VR látið útbúa endurskinsborða fyrir hvern atvinnulausan VR félaga og voru borðarnir hengdir upp við Kringlumýrarbraut í gærkvöldi.

Lesa meira...
 
Framkvæmdastýra nýrrar Evrópustofu ráðin Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Fimmtudagur, 01. Desember 2011

Birna euic_directorBirna Þórarinsdóttir stjórnmálafræðingur hefur verið ráðin framkvæmdastýra Evrópustofu – upplýsingamiðstöðvar ESB, sem opnuð verður eftir áramótin. Markmið Evrópustofu er að veita hlutlægar upplýsingar og auka umræðu, þekkingu og skilning á eðli og starfsemi ESB.

Lesa meira...
 
Nýtt Sóknarfæri komið út Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Fimmtudagur, 01. Desember 2011

sokndesfor

Athygli gaf í dag út blaðið Sóknarfæri - frumkvæði og fagmennska í íslenskum atvinnulífi. Í blaðinu er fjölbreytt efni sem tengist atvinnulífi, nýsköpun, hönnun, iðnaðarframleiðslu og mörgu öðrum. Sóknarfæri er 44 síður að stærð og var því dreift um land allt með Morgunblaðinu í dag.

.

Lesa meira...
 
Upplýsingavefur um háspennuloftlínur og jarðstrengi Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Þriðjudagur, 22. Nóvember 2011

 reykjaneslinaLandsnet hefur opnað upplýsingavef um háspennuloftlínur og jarðstrengi. Markmiðið er að þar geti allir sem áhuga hafa fundið á einum stað helstu staðreyndir um kosti og galla lína og strengja, stefnumótun í þessum efnum, bæði heima og erlendis, sem og fjölmiðlaumfjöllun hérlendis um þetta umdeilda málefni.

Lesa meira...
 
Sameining háskóla -kostir og gallar Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Föstudagur, 11. Nóvember 2011

fraedagardur

Kostir og gallar mögulegra sameininga háskólanna í kjölfar kreppu verða í brennidepli á ráðstefnu sem Fræðagarður, eitt af aðildarfélögum Bandalags háskólamanna, efnir til á Grand hótel næstkomandi þriðjudag undir yfirskriftinni: Gildi háskólamenntunar – sameining háskólanna, kostir og gallar.

Lesa meira...
 


Bls. 1 af 75