|
Ævintýri á 80 síðum! |
|
|
|
Föstudagur, 18. Maí 2012 |
|
Út á þrykk er komið blaðið Ævintýralandið – ferðalag um Ísland 2012 sem Athygli ehf. gefur út í 7. sinn. Er blaðið eitt stærsta kynningarblað sem gefið er út hér á landi, 80 síður í dagblaðsbroti, dreift með Morgunblaðinu til áskrifenda en að auki í stóru upplagi á upplýsingamiðstöðvar ferðamanna um land allt auk fleiri staða.
|
|
Lesa meira...
|
|
Vel heppnuð Evrópuhátíð í Hörpu |
|
|
|
Mánudagur, 14. Maí 2012 |
|
Húsfyllir var á tónleikum European Jazz Orcherstra og Stórsveitar Reykjavíkur í Eldborg í gærkvöldi í boði Evrópustofu og góður rómur gerður að flutningi beggja hljómsveitanna. Fyrr um daginn stóð Evrópustofa fyrir Evrópuhátíð í Hörpu þar sem boðið var upp á kynningar tengdar ESB og Evrópusamstarfi, skemmtiatriði og Evrópuköku.
|
|
Lesa meira...
|
|
Lovísa leiðir stórstjörnu á völlinn í úrslitaleiknum |
|
|
|
Þriðjudagur, 08. Maí 2012 |
|
Það verður átta ára Gróttu-hnáta af Setjarnarnesinu, Lovísa Scheving, sem verður þeirrar upplifunar aðnjótandi að fá að leiða einn leikmanna Chelsea eða heimamanna í Bayern München inn á völlinn í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í knattspyrnu, UEFA Champions League, sem fram fer á Allianz Arena í München í Þýskalandi þann 19. maí næstkomandi.
|
|
Lesa meira...
|
|
Evrópustofa opnuð á Akureyri |
|
|
|
Mánudagur, 07. Maí 2012 |
|
Evrópustofa – upplýsingamiðstöð ESB á Íslandi - tók til starfa í dag í Norrænu upplýsingaskrifstofunni, Kaupvangsstræti 23 á Akureyri. Þar munu gestir hafa aðgang að upplýsingaefni, bæði almennu kynningarefni sem og fræðilegum bókakosti um ESB, ásamt því sem fólki stendur til boða að setjast niður við tölvu og sækja sér upplýsingar um ESB og starfsemi þess á vefnum.
|
|
Lesa meira...
|
|
Evrópuvika haldin hátíðleg á Íslandi |
|
|
|
Föstudagur, 04. Maí 2012 |
|
Í tilefni af Evrópudeginum 9. maí stendur Evrópustofa - upplýsingamiðstöð ESB á Íslandi - fyrir Evrópuviku dagana 7.-13. maí. Markmið okkar er að gera Evrópu hátt undir höfði þessa viku og vekja athygli fólks á því hvað Evrópusamstarfið er og fyrir hvað það stendur," segir Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastýra Evrópustofu.
|
|
Lesa meira...
|
|
Kemi kynnir ný byltingarkennd bætiefni fyrir eldsneyti, PD-5 |
|
|
|
Fimmtudagur, 03. Maí 2012 |
|
Ný byltingarkennd bætiefni fyrir eldsneyti, PD-5, voru í fyrsta sinn kynnt með formlegum hætti utan Bretlands á fréttamannafundi sem Kemi ehf. boðaði til á Hilton Reykjavík Nordica. Um er að ræða þrjár mismunandi gerðir af PD-5 en þessi umhverfisvænu bætiefni draga verulega úr útblástursmengun og jafnframt úr notkun eldsneytis. Prófanir sem gerðar hafa verið hér á landi staðfesta 6-13% eldsneytissparnað. Efnið er nú komið í sölu á Íslandi.
|
|
Lesa meira...
|
|
Samskip fjárfesta í skipum |
|
|
|
Mánudagur, 16. Apríl 2012 |
|
Samskip hafa fest kaup á gámaflutningaskipunum Arnarfelli og Helgafelli sem verið hafa í siglingum fyrir félagið milli Íslands og Evrópuhafna frá ársbyrjun 2005. Um er að ræða nærri fjögurra milljarða króna fjárfestingu fyrir Samskip. Félagið hefur verið með skipin á leigu frá því að þau voru smíðuð fyrir sjö árum. Þau hafa reynst afar vel og verið í farsælum rekstri frá upphafi.
|
|
Lesa meira...
|
|
Lítill fótboltasnillingur á leið á úrslitaleik Meistaradeildarinnar í knattspyrnu! |
|
|
|
Þriðjudagur, 03. Apríl 2012 |
|
Íslenskum strák eða stelpu á aldrinum 7-9 ára gefst nú tækifæri á að komst í hóp evrópskra barna sem leiða munu leikmenn í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í knattspyrnu, UEFA Champions League, inn á leikvanginn í München í Þýskalandi þann 19. maí næstkomandi.
|
|
Lesa meira...
|
|
Mottumars 2012 lokið |
|
|
|
Föstudagur, 30. Mars 2012 |
|
Alls höfðu safnast 28,9 milljónir króna þegar formlegri söfnun áheita í árveknis – og fjáröflunarátakinu Mottumars lauk síðdegis í dag. Sigurvegari í einstaklingskeppni var Magnús Sigurbjörnsson en í liðakeppni reyndist lið Arionbanka fengsælast. Fallegustu mottunni, að mati Meistarafélags hárskera, skartaði Guðmundur Þorlákur Guðmundsson. Þótt formlegri söfnun áheita í Mottumars 2012 sé nú lokið verður hægt að leggja átakinu áfram lið fram yfir mánaðamót í gegnum vefsíðuna mottumars.is
|
|
Lesa meira...
|
|
Knattspyrnudómarar styðja Mottumars |
|
|
|
Fimmtudagur, 29. Mars 2012 |
|

Knattspyrnudómarar afhentu í morgun 600 þúsund króna styrk í Mottumars, árveknis- og fjáröflunarátak Krabbameinsfélags Íslands. Dómarar sem taka þátt í dómgæslu við Lengjubikarinn í marsmánuði ákváðu allir að gefa til átaksins laun fyrir dómgæslu við einn leik og tók Ragnheiður Haraldsdóttir forstjóri Krabbameinsfélags Íslands við framlagi þeirra í höfuðstöðvum KSÍ.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
|
|
Bls. 1 af 76 |