|

Meðal efnis í 7. tölublaði:
Myndun aflahlutdeilda 1999-2010 Helgi Áss Grétarsson beinir í greinarflokki sínum kastljósinu að myndun aflahlutdeilda í nokkrum tegundum nytjastofna á áðurnefndu tímabili.
„Kerin eru okkar matvælakistur" - segir Magnús Kristinsson, útgerðarmaður í Vestmanneyjum sem tók nýverið við keri nr. 500.001 hjá Promens á Dalvík.
Mikil fjölgun farþega hjá Herjólfi Þrátt fyrir hnökra í siglingum Herjólfs til Landeyjarhafnar sýndi sig á fyrstu vikum siglinganna að farþegum fjölgaði verulega með tíðari ferðum.
Norðurskel að ná tökum á bláskeljaræktinni Ægir heimsækir Norðurskel í Hrísey og fræðist um þau tækifæri sem virðast vera í þessari grein sjávarútvegs hér á landi. Mengun og þrengsli við strendur víða erlendis gera að verkum að bláskeljarækt er að færast á norðlægari slóðir.
Hvalveiðarnar eru atvinnuskapandi Spjallað við Gunnlaug Gunnlaugsson, stöðvarstjóra hvalstöðvarinnar í Hvalfirði
Vel lukkuð hátíð síðutogarajaxlanna Gríðarleg þátttaka var í fyrstu hátíð gamalla sjómanna af síðutogurunum í júlí síðastliðnum. Áformað er að endurtaka leikinn að ári.
Nógur fiskur fyrir Norðurlandi - segir Árni Þorgilsson sem fiskaði allra mest af þorski á strandveiðunum í sumar.
|