|

Meðal efnis í 10. tölublaði:
Að leiðarlokum - aðalatriði íslenskrar fiskveiðistjórnar Helgi Áss Grétarsson lýkur fróðlegri samantekt sinni um stjórnkerfi fiskveiða hér á landi.
Godthaab í Nöf - stærsta frystihúsið í Eyjum Rætt við Einar Bjarnason, skrifstofustjóra og einn eigenda fyrirtækisins
Hagnýtt gildi hraðvirkra aðferða í fiskiðnaði. Fjallað um Sequid greiningartækni
Sjávarútvegurinn í lykilhlutverki Ægisviðtal við Svein Margeirsson, nýjan forstjóra Matís, sem telur mikil sóknarfæri til aukinnar verðmætasköpunar í sjávarútvegi.
Amerískir lúðuveiðarar við Ísland Fjallað um nýútkomna bók um þessar merkilegu veiðar sem stundaðar voru í lok 19. aldar hér við land.
Stórt skref inn í fortíðina Segir Róbert Hlöðversson, sviðsstjóri hjá Frumherja hf., um þá ákvörðun að Matvælastofnun taki yfir framleiðslueftirlit sjávarútvegi.
Ævintýri varðskipsins Óðins Rætt við Helga Mána Sigurðsson, höfund nýrrar bókar um 50 ára sögu varðskipsins Óðins. Birtur er einnig kafli úr bókinni þar sem sagt er frá eltingarleik Óðinsmanna við breskan togara sem rændi tveimur lögreglumönnum í Reykjavík og ætlaði að stinga af með þá til Bretlands!
40 ár frá komu hafrannsóknaskipsins Bjarna Sæmundssonar Ólafur S. Ástþórsson, aðstoðarforstjóri Hafrannsóknastofnunarinnar skrifar um þetta merka skip sem var á sínum tíma mikill fengur fyrir hafrannsóknir hér við land. |